Skrifstofa stjórnunar og umbóta

Skrifstofa stjórnunar og umbóta sinnir fjárstýringu og rekstrarmálefnum ríkisins, lánamálum, umbótastarfi, eigna- og framkvæmdamálum. Það felur í sér fjármálastjórnun og fjárstýringu, lánsfjáröflun og skuldastýringu ríkissjóðs, eftirlit með framkvæmd fjárlaga í samstarfi við aðrar skrifstofur ráðuneytisins, mat á afkomu ríkissjóðs og einstakra ríkisaðila, ásamt þróun rekstraráætlana og reikningsskila.

Skrifstofan annast innkaupamál, ríkisaðstoðarmál og samskipti við einkamarkaðinn. Skrifstofan fer með eigna- og framkvæmdamál ríkisins, þ.m.t. eignarhald félaga, og undirbúning og framkvæmd eigendastefnu hluta- og sameignarfélaga í ríkiseigu, auk þess að fara með málefni alþjóðabanka sem eru á forræði ráðuneytisins. Skrifstofan fer með eignarráð ríkisins í fast- og jarðeignum og samninga vegna nýtingar auðlinda þeirra. Skrifstofan vinnur að umbótum og nýsköpun í rekstri og stofnanakerfi ríkisins, stefnumótun og árangursstjórnun, þróun stafrænna innviða, notkun upplýsingatækni í opinberri þjónustu og stjórnsýslu.

Á verkefnasviði skrifstofunnar er innleiðing og þróun miðlægrar stafrærmar þjónustu sem Stafrænt Ísland hefur með höndum.