Um sendiskrifstofu

Ríkisstjórn og utanríkisráðherra hverju sinni móta íslenska utanríkisstefnu og er það hlutverk fastanefndar Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum að framkvæma hana á vettvangi Sameinuðu þjóðanna samkvæmt fyrirmælum utanríkisráðuneytisins. Áherslur í starfi fastanefndar fara eftir þeim markmiðum, þeirri stefnu og þeim hagsmunamálum sem stjórnvöld hafa og vinna að á hverjum tíma gagnvart Sameinuðu þjóðunum.

Fastanefndin, eftir því sem við á, tekur þátt í umræðum í stjórnum, ráðum og nefndum á vegum samtakanna í New York, með það að markmiði að hafa áhrif á stefnu, verkefni og stjórnun samtakanna í samræmi við stefnu Íslands í málefnum Sameinuðu þjóðanna.

Hlutverk fastanefndar er að vera tengiliður í samskiptum, upplýsa ráðuneytið um framvindu mála með reglulegum hætti og veita utanríkisráðuneytinu ráðgjöf um atkvæðagreiðslur á allsherjarþinginu. Fastanefndin starfar samkvæmt fyrirmælum ráðuneytisins meðal annars á grundvelli upplýsinga sem sendar eru ráðuneytinu um eðli máls og afstöðu annarra ríkja og greiðir atkvæði í nafni Íslands.

Þá er fastanefndin einnig sendiráð Íslands gagnvart Dóminíska lýðveldinu og Kúbu.

Fastanefnd Íslands - New York

Heimilisfang:

733 Third Avenue (11 Grand Central East), 18th Floor
New York NY 10017

Sími: +1 (212) 593 2700

Netfang: [email protected]

Opnunartími: Afgreiðsla virka daga frá kl. 09:00 - 16:30

Nafn Starfsheiti Netfang
Ágúst Flygenring varafastafulltrúi

[email protected]

Anna Jóhannsdóttir sendiherra/ fastafulltrúi

[email protected]

Berglind St.Louis fulltrúi

[email protected]

Dögg Guðmundsdóttir sendiráðsfulltrúi

[email protected]

Erla Ylfa Óskarsdóttir sendiráðsritari

[email protected]

Frank Gonzalez aðstoðarmaður

[email protected]

Guðrún Þorbjörnsdóttir sendiráðunautur

[email protected]

William Freyr Huntingdon-Williams sendiráðunautur

[email protected]

Fastafulltrúi

Ms. Anna Jóhannsdóttir

Fastanefnd Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum