28 ágúst 2019
Sendiherra afhendir trúnaðarbréf í Namibíu
Þann 22. ágúst afhenti Unnur Orradóttir Ramette, Hage Gottfried Geingob forseta Namibíu, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í landinu með aðsetur í Kampala, Úganda. Eftir athöfnina ræddu þau um samskipti landanna, þ.á.m. árangur af þróunarsamvinnu Íslands í landinu á árunum 1990-2010 á sviði sjávarútvegs, sólardrifinna vatnsveitna og
félagslegra innviða fyrir jaðarhópa.