03 desember 2018
Fyrstu Rakarastofuráðstefnurnar haldnar í Afríku
„Tími þöggunar er liðinn, nú þurfum við að beita okkur gegn ofbeldi gagnvart konum og stúlkum. Konurnar sem verða fyrir ofbeldi eru eiginkonur okkar, systur, dætur og frænkur. Þess vegna þurfum við að standa saman og berjast gegn ofbeldinu,“ sagði Moses Chimphepo héraðsstjóri Mangochi í Malaví á Rakarastofuráðstefnu í síðustu viku.