Þjónusta við Íslendinga

Sendiráðið sinnir margvíslegri þjónustu við íslenska ríkisborgara á Indlandi, s.s. með milligöngu um útgáfu vegabréfa og ökuskírteina, og almennri aðstoð þegar persónuleg vandamál koma upp sem kalla á íhlutun stjórnvalda.

Íslendingum sem hyggjast ferðast til Indlands er bent á að hafa samband við sendiráð Indlands í Reykjavík til að fá vegabréfsáritun. Upplýsingar um bólusetningar vegna ferðalaga til Indlands fást hjá Heilsuverndarstöð Reykjavíkur.

Í neyðartilvikum er bent á sólarhringssíma utanríkisráðuneytisins s. 545 9900 þar sem fá má upplýsingar um heimasíma starfsmanna sendiráðs Íslands í Nýju Delí.

Ökuskírteini

Hægt er að sækja um endurnýjun ökuskírteinis hjá sendiráðinu. Til þess að flýta fyrir afgreiðslu er mælt með því að umsækjandi hafi samband við sendiráðið og gefi upp nafn og íslenska kennitölu. Sendiráðið sendir ríkislögreglustjóra beiðni um svonefnt kennispjald og hefur samband við umsækjanda þegar það berst sendiráðinu. Umsækjandi kemur þá í sendiráðið með passamynd, fyllir út umsókn og greiðir gjald með reiðufé. Umsækjandi fær ökuskírteinið sent með pósti frá Íslandi þegar það er tilbúið.

Fjarpróf

Nemendum við íslenskar menntastofnanir, sem staddir eru erlendis, stendur til boða að taka fjarpróf hjá tilteknum sendiskrifstofum Íslands og eftir atvikum kjörræðismönnum. Miðað er við að próftakan sé á virkum dögum á opnunartíma sendiskrifstofu. Þeir próftímar sem standa til boða fara eftir getu sendiskrifstofunnar hverju sinni.

Ferlið

  • Ef bókunarvél er ekki til staðar á vef sendiskrifstofunnar þá skal nemandi senda próftökubeiðni í tölvupósti með góðum fyrirvara á almenna netfang sendiskrifstofu.
  • Í próftökubeiðninni skal taka fram fullt nafn nemanda, kennitölu, heiti menntastofnunar og námsbrautar, dagsetningu og tímasetningu prófs.
  • Nemandi sendir næst inn umsókn um fjarpróf til skólans eftir að hafa fengið svar frá sendiskrifstofunni.
  • Skólinn upplýsir sendiskrifstofuna um að heimild sé veitt fyrir próftöku.
  • Nemandi staðfestir viku fyrir próf að hann/hún/hán ætli að þreyta prófið.
  • Skólinn sendir sendiskrifstofunni prófið a.m.k. einum virkum degi fyrir prófdag.

Nemandi greiðir póstburðargjald/umsýslugjald til sendiskrifstofunnar fyrir hvert próf sem senda þarf til Íslands með pósti. Einnig þarf nemandi að greiða fyrir ljósritun/útprentun prófgagna ef svo ber undir.

Annað

  • Tilkynna ber forföll eins fljótt og auðið er til sendiskrifstofunnar.
  • Framvísa verður persónuskilríkjum áður en próf hefst.
  • Nemendur mega ekki yfirgefa prófstað fyrr en prófið á Íslandi er hafið (nema að um annað hafi verið samið við viðkomandi menntastofnun).
  • Sendiskrifstofur eru ekki hannaðar fyrir próftökur. Því er ekki tryggt að þar sé hljótt vegna almennrar starfsemi í húsinu. Mælt er með því að nemendur taki með sér eyrnatappa.
  • Sendiskrifstofum er heimilt að hafna beiðnum um próftökur sökum anna tengdum reglubundinni starfsemi eða plássleysis. Í slíkum tilfellum er það alfarið á ábyrgð próftaka að finna annan stað til að þreyta prófið.

Þjónusta við Íslendinga