13 mars 2020
Ferðalangar frá Íslandi til Noregs skulu fara í 14 daga heimasóttkví
Í kvöld föstudag 13. mars var birt uppfærð útgáfa af nýjum ákvörðunum norskra yfirvalda um sóttkví fyrir ferðalanga sem koma erlendis frá til Noregs. Hafa yfirvöld nú ákveðið að á miðnætti í kvöld, föstudaginn 13/3, munu ekki gilda undanþágur um sóttkví fyrir ferðalanga frá Íslandi og Danmörku við komu til Noregs.