27 maí 2022
Trúnaðarbréf afhent framkvæmdastjóra Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna
Í dag afhenti Dr. Matthías G. Pálsson, fastafulltrúi Íslands gagnvart Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO), Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) og Alþjóðasjóði um þróun landbúnaðar (IFAD) í Róm, David Beasley framkvæmdastjóra WFP trúnaðarbréf sitt við stofnunina.