Þjónusta við Íslendinga
Aðalræðisskrifstofan aðstoðar íslenska ríkisborgara og fyrirtæki í samskiptum við fyrirtæki og stjórnvöld og dreifir upplýsingum og fróðleik um Ísland ásamt því að taka þátt í kynningum um land og þjóð.
Íslendingar í Færeyjum
Samkvæmt upplýsingum frá Fólkayfirlitinu eru um 200 Íslendingar búsettir í Færeyjum. Íslendingafélagið Frón í Færeyjum er með um 70 meðlimi. Sjá Facebook: @FelagidFron.
Útflutningur ferðamanna á kjöti til Íslands
Ferðamenn frá Færeyjum mega taka með sér til Íslands allt að 10 kg af kjöti (skerpikjöti / ræstu kjöti) að fengnu leyfi frá MAST.
Kosningar
Allt um kosningar má finna á kosning.is.
Spurningar og svör
1. Get ég kosið í Færeyjum?
SVAR: Já, íslenskir ríkisborgar geta kosið í Alþingiskosningum utan kjörfundar allt að 8 vikum fyrir kjördag ef þeir eru á kjörskrá.
2. Hvar get ég kosið:
SVAR: Á aðalræðisskrifstofu Íslands, Ydun, Reyngöta 9, kl. 10-15 virka daga. Kjósandinn ber ábyrgð á sendingu atkvæðisins sem þarf að berast kjörstjórn í síðasta lagi á kjördag.
3. Hverjir eru á kjörskrá sem búa erlendis?
SVAR: Íslenskur ríkisborgari sem hefur:
a) lögheimili á Íslandi,
flutt lögheimili sitt erlendis innan 8 ára talið frá 1. desember næstum fyrir kjördag,
fyrir þann tíma, sótt um að vera tekinnn inn á kjörskrá til Þjóðskrá Íslands ([email protected]) fyrir tiltekinn frest fyrir kosningar. Slík skráning gildir í 4 ár. Eyðublað: Íslendingur búsettur erlendis tekinn á kjörskrá.
4. Hvernig get ég fengið staðfest að ég sé á kjörskrá?
SVAR:
Þessu má fletta upp á vefnum með því að fara inn á skra.is, smella á Kjörskrá og kosningaréttur, síðan Hvar ertu á kjörskrá og slá inn kennitölu. Ef ekkert kemur upp þá ertu ekki á kjörskrá.
Einnig er hægt að senda fyrirspurn til Þjóðskrár á [email protected].
Vegabréf Íslendinga
Hægt er að sækja um íslenskt vegabréf í aðalræðisskrifstofu Íslands í Þórshöfn.
Vinsamlegast pantið tíma í síma +298 308100 eða með tölvupósti á [email protected]
Vegabréf og ferðaskilríki útlendinga
Ferðamenn til Íslands þurfa almennt að hafa vegabréf, en önnur ferðaskilríki eru heimiluð í vissum tilfellum. Færeyingar og aðrir Norðurlandabúar sem ferðast beint frá Færeyjum til Íslands þurfa ekki vegabréf en þurfa að geta sýnt skilríki með mynd, m.a. að kröfu flug- og skipafélaga. Nánar um ferðaskilríki á vef utanríkisráðuneytisin (á ensku).
Vegabréfsáritanir (Visa)
Erlendir ferðamenn til Íslands þurfa Schengen-vegabréfsáritun, nema séu þeir undanþegnir (sem á við um flesta Evrópubúa). Aðalræðisskrifstofan tekur ekki á móti umsóknum um áritanir og gefur ekki út áritanir. Ferðamenn frá Færeyjum sem þurfa Schengen-áritun til Íslands þurfa að senda umsókn beint til Útlendingarstofnunar. Áritunin er gefin út við komu til Íslands. Nánari um áritanir á vef Útlendingastofnunar.
Fjarpróf
Nemendum við íslenskar menntastofnanir, sem staddir eru erlendis, stendur til boða að taka fjarpróf hjá tilteknum sendiskrifstofum Íslands og eftir atvikum kjörræðismönnum. Miðað er við að próftakan sé á virkum dögum á opnunartíma sendiskrifstofu. Þeir próftímar sem standa til boða fara eftir getu sendiskrifstofunnar hverju sinni.
Ferlið
- Ef bókunarvél er ekki til staðar á vef sendiskrifstofunnar þá skal nemandi senda próftökubeiðni í tölvupósti með góðum fyrirvara á almenna netfang sendiskrifstofu.
- Í próftökubeiðninni skal taka fram fullt nafn nemanda, kennitölu, heiti menntastofnunar og námsbrautar, dagsetningu og tímasetningu prófs.
- Nemandi sendir næst inn umsókn um fjarpróf til skólans eftir að hafa fengið svar frá sendiskrifstofunni.
- Skólinn upplýsir sendiskrifstofuna um að heimild sé veitt fyrir próftöku.
- Nemandi staðfestir viku fyrir próf að hann/hún/hán ætli að þreyta prófið.
- Skólinn sendir sendiskrifstofunni prófið a.m.k. einum virkum degi fyrir prófdag.
Nemandi greiðir póstburðargjald/umsýslugjald til sendiskrifstofunnar fyrir hvert próf sem senda þarf til Íslands með pósti. Einnig þarf nemandi að greiða fyrir ljósritun/útprentun prófgagna ef svo ber undir.
Annað
- Tilkynna ber forföll eins fljótt og auðið er til sendiskrifstofunnar.
- Framvísa verður persónuskilríkjum áður en próf hefst.
- Nemendur mega ekki yfirgefa prófstað fyrr en prófið á Íslandi er hafið (nema að um annað hafi verið samið við viðkomandi menntastofnun).
- Sendiskrifstofur eru ekki hannaðar fyrir próftökur. Því er ekki tryggt að þar sé hljótt vegna almennrar starfsemi í húsinu. Mælt er með því að nemendur taki með sér eyrnatappa.
- Sendiskrifstofum er heimilt að hafna beiðnum um próftökur sökum anna tengdum reglubundinni starfsemi eða plássleysis. Í slíkum tilfellum er það alfarið á ábyrgð próftaka að finna annan stað til að þreyta prófið.