Þjónusta við Íslendinga

Sendiráðið veitir þeim Íslendingum sem búsettir eru í Austurríki og eiga hér leið um margvíslega þjónustu. Þannig hefur sendiráðið milligöngu um útvegun vegabréfa og ökuskírteina og er Íslendingum sem eru í nauðum staddir til aðstoðar.

Sendiráðið veitir auk þess Íslendingum sem búsettir eru í umdæmislöndum þess eða eru þar á ferðalagi aðstoð af ýmsu tagi. Sú aðstoð felst t.d. í útgáfu neyðarvegabréfa, skjalavottunum, aðstoð vegna veikinda, slysa og sakamála.

Hægt er að hafa samband við borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins utan opnunartíma sendiráðsins, en hún stendur vaktina allan sólarhringinn í síma +354 545 9900. Nánari upplýsingar um borgaraþjónustuna.

Það skal tekið fram að sendiráðið veitir enga fjárhagsaðstoð af nokkru tagi.

Vegabréf

Sendiráðið hefur milligöngu um útvegun vegabréfa.

Umsókn um vegabréf

Íslendingafélög

Ökuskírteini

Íslensk ökuskírteini, gefin út eftir 1997, eru viðurkennd til aksturs innan EES-landanna. Þetta á við hvort sem viðkomandi dvelur sem ferðamaður í viðkomandi ríki eða tekur upp fasta búsetu í því.

Sendiráði Íslands er óheimilt að taka á móti umsóknum um íslensk ökuskírteini, hvort sem um er að ræða endurnýjun eða samrit, nema ef viðkomandi hafi fasta búsetu á Íslandi.

Föst búseta miðast við lögheimili og/eða að viðkomandi búi a.m.k. 185 daga á hverju almanaksári í viðkomandi landi. Íslendingar með fasta búsetu erlendis verða því að sækja um ökuskírteini í því landi þar sem þeir teljast hafa fasta búsetu. Undanskildir eru námsmenn sem flytja erlendis eingöngu til að fara í nám.

Um gildi íslenskra ökuskírteina í Austurríki má finna nánari upplýsinga á vef austurríska stjórnarráðsins, bæði á þýsku og ensku.

Fjarpróf

Nemendum við íslenskar menntastofnanir, sem staddir eru erlendis, stendur til boða að taka fjarpróf hjá tilteknum sendiskrifstofum Íslands og eftir atvikum kjörræðismönnum. Miðað er við að próftakan sé á virkum dögum á opnunartíma sendiskrifstofu. Þeir próftímar sem standa til boða fara eftir getu sendiskrifstofunnar hverju sinni.

Ferlið

  • Ef bókunarvél er ekki til staðar á vef sendiskrifstofunnar þá skal nemandi senda próftökubeiðni í tölvupósti með góðum fyrirvara á almenna netfang sendiskrifstofu.
  • Í próftökubeiðninni skal taka fram fullt nafn nemanda, kennitölu, heiti menntastofnunar og námsbrautar, dagsetningu og tímasetningu prófs.
  • Nemandi sendir næst inn umsókn um fjarpróf til skólans eftir að hafa fengið svar frá sendiskrifstofunni.
  • Skólinn upplýsir sendiskrifstofuna um að heimild sé veitt fyrir próftöku.
  • Nemandi staðfestir viku fyrir próf að hann/hún/hán ætli að þreyta prófið.
  • Skólinn sendir sendiskrifstofunni prófið a.m.k. einum virkum degi fyrir prófdag.

Nemandi greiðir póstburðargjald/umsýslugjald til sendiskrifstofunnar fyrir hvert próf sem senda þarf til Íslands með pósti. Einnig þarf nemandi að greiða fyrir ljósritun/útprentun prófgagna ef svo ber undir.

Annað

  • Tilkynna ber forföll eins fljótt og auðið er til sendiskrifstofunnar.
  • Framvísa verður persónuskilríkjum áður en próf hefst.
  • Nemendur mega ekki yfirgefa prófstað fyrr en prófið á Íslandi er hafið (nema að um annað hafi verið samið við viðkomandi menntastofnun).
  • Sendiskrifstofur eru ekki hannaðar fyrir próftökur. Því er ekki tryggt að þar sé hljótt vegna almennrar starfsemi í húsinu. Mælt er með því að nemendur taki með sér eyrnatappa.
  • Sendiskrifstofum er heimilt að hafna beiðnum um próftökur sökum anna tengdum reglubundinni starfsemi eða plássleysis. Í slíkum tilfellum er það alfarið á ábyrgð próftaka að finna annan stað til að þreyta prófið.