Þjónusta við Íslendinga
Umsókn um vegabréf
hHér að neðan er að finna upplýsingar um þjónustu sendiráðsins við Íslendinga.
Sendiráðið vekur athygli á að utan opnunartíma þess er í neyðartilfellum hægt að óska eftir borgaraþjónustu í neyðarvakt utanríkisráðuneytisins í síma +354 545-0112.
Dvöl í Bandaríkjunum
Sendiráð Íslands í Washington D.C., leggur lið bæði þeim Íslendingum sem búsettir eru í umdæmislöndunum, námsmönnum og ferðamönnum. Aðstoð sendiráðsins getur verið með ýmsum hætti. Algengast er að fólk leiti til sendiráðsins vegna útgáfu vegabréfa, neyðarvegabréfa og þess háttar.
Það skal tekið fram að sendiráðið veitir enga fjárhagsaðstoð af nokkru tagi.
Allar upplýsingar um Bandríkin má finna á http://www.usa.com/
Ferðamenn
Íslenskir ríkisborgarar þurfa ekki vegabréfsáritun til að ferðast til Bandaríkjana og mega dvelja í allt að þrjá mánuði (90 daga). Hins vegar er brýnt að hafa gilda ESTA-heimild og að gildistími vegabréfs sé út dvölina. ESTA umsókn.
Bandaríska sendiráðið í Reykjavík veitir nánari upplýsingar is.usembassy.gov
Skráning íslenskra barna sem eru fædd í Bandaríkjunum
Íslenskir ríkisborgarar búsettir erlendis geta óskað eftir að fá börn sín skráð í þjóðskrá. Nánari upplýsingar veitir Þjóðskrá Íslands.
Flutningur til Íslands
Þegar fjölskylda eða einstaklingur flytur aftur til Íslands eftir að hafa búið erlendis þarf að huga að ýmsu. Nánari upplýsingar má finna á island.is.
Vestur-Íslendingar
Talið er að um 100-500 þúsund Bandaríkjamenn eigi rætur sínar að rekja til Íslands. Vestur-Íslendingar reka blómlega félagsstarfsemi víða í Bandaríkjunum og á Íslandi sinna nokkrir samstarfi við Vestur-Íslendinga.
Hér að neðan er að finna tengla í vefsetur sem tengjast Vestur-Íslendingum í Bandaríkjunum og á Íslandi.
Vegabréfsáritanir
Íslenskir ríkisborgarar þurfa ekki vegabréfsáritun til Bandaríkjanna, hyggist þeir dvelja þar skemur en 90 daga í landinu. Skv. nýjum reglum ber öllum ferðamönnum til Bandaríkjanna að framvísa raflesanlegu vegabréfi og fylla ESTA út fyrir komu til Bandaríkjanna.
Sérstök athygli er vakin á því að það er refsivert skv. bandarískum lögum að dvelja lengur en 90 daga á ferðamannaáritun og framfylgja bandarísk yfirvöld því nákvæmlega.
Hyggist íslenskur ríkisborgari dvelja lengur en 90 daga í Bandaríkjunum þarf hann að sækja um vegabréfsáritun í sendiráði Bandaríkjanna á Íslandi, sjá vefsetur sendiráðsins.
Tvöfalt ríkisfang
Fyrir íslenska ríkisborgara:
Þann 1. júlí 2003 tók gildi breyting á lögum um íslenskan ríkisborgararétt nr.100/1952. Breytingin heimilar íslenskum ríkisborgurum að halda íslensku ríkisfangi þótt þeir sæki um ríkisborgararétt í öðru ríki.
Fyrir erlenda ríkisborgara:
Þegar útlendingi er veittur íslenskur ríkisborgararéttur með lögum frá Alþingi er ekki gerð krafa til þess að hann afsali sér fyrri ríkisborgararétti sínum til þess að fá íslenska ríkisborgararéttinn. Hins vegar getur verið að lög ríkis þess sem útlendingurinn átti ríkisborgararétt í kveði á um að ríkisborgararéttur hans í því ríki falli niður er hann fær ríkisborgararétt í öðru ríki. Gildir það til dæmis um Danmörku og Noreg.
Umsóknum um tvöfalt ríkisfang skal beint til dómsmálaráðuneytis Íslands, sjá frekari upplýsingar á vef ráðuneytisins.
Fjarpróf
Nemendum við íslenskar menntastofnanir, sem staddir eru erlendis, stendur til boða að taka fjarpróf hjá tilteknum sendiskrifstofum Íslands og eftir atvikum kjörræðismönnum. Miðað er við að próftakan sé á virkum dögum á opnunartíma sendiskrifstofu. Þeir próftímar sem standa til boða fara eftir getu sendiskrifstofunnar hverju sinni.
Ferlið
- Ef bókunarvél er ekki til staðar á vef sendiskrifstofunnar þá skal nemandi senda próftökubeiðni í tölvupósti með góðum fyrirvara á almenna netfang sendiskrifstofu.
- Í próftökubeiðninni skal taka fram fullt nafn nemanda, kennitölu, heiti menntastofnunar og námsbrautar, dagsetningu og tímasetningu prófs.
- Nemandi sendir næst inn umsókn um fjarpróf til skólans eftir að hafa fengið svar frá sendiskrifstofunni.
- Skólinn upplýsir sendiskrifstofuna um að heimild sé veitt fyrir próftöku.
- Nemandi staðfestir viku fyrir próf að hann/hún/hán ætli að þreyta prófið.
- Skólinn sendir sendiskrifstofunni prófið a.m.k. einum virkum degi fyrir prófdag.
Nemandi greiðir póstburðargjald/umsýslugjald til sendiskrifstofunnar fyrir hvert próf sem senda þarf til Íslands með pósti. Einnig þarf nemandi að greiða fyrir ljósritun/útprentun prófgagna ef svo ber undir.
Annað
- Tilkynna ber forföll eins fljótt og auðið er til sendiskrifstofunnar.
- Framvísa verður persónuskilríkjum áður en próf hefst.
- Nemendur mega ekki yfirgefa prófstað fyrr en prófið á Íslandi er hafið (nema að um annað hafi verið samið við viðkomandi menntastofnun).
- Sendiskrifstofur eru ekki hannaðar fyrir próftökur. Því er ekki tryggt að þar sé hljótt vegna almennrar starfsemi í húsinu. Mælt er með því að nemendur taki með sér eyrnatappa.
- Sendiskrifstofum er heimilt að hafna beiðnum um próftökur sökum anna tengdum reglubundinni starfsemi eða plássleysis. Í slíkum tilfellum er það alfarið á ábyrgð próftaka að finna annan stað til að þreyta prófið.