Gildandi byggðakort fyrir Ísland

Byggðakort fyrir Ísland gildir fyrir tímabilið 1. júlí 2014 til 31. desember 2021. Byggðakortið skilgreinir á hvaða svæðum á Íslandi unnt er að veita svokallaða byggðaaðstoð í samræmi við leiðbeinandi reglur ESA þar um. Byggðaaðstoð eða svæðisbundin ríkisaðstoð er stuðningur ríkis eða sveitarfélaga til að efla byggðaþróun og efnahagslíf á ákveðnu landsvæði. Kortið skiptist í höfuðborgarsvæðið (Reykjavíkurkjördæmin tvö og Suðvesturkjördæmi) og Ísland utan höfuðborgarsvæðisins (Norðvesturkjördæmi, Norðausturkjördæmi og Suðurkjördæmi). Á síðarnefnda svæðinu, þar sem rúmlega 35% þjóðarinnar búa, er mögulegt að veita byggðaaðstoð samkvæmt reglum EES-samningsins um ríkisaðstoð.

Byggðaaðstoð er ýmist veitt að fengnu samþykki ESA að undangenginni tilkynningu stjórnvalda um fyrirhugaðar ráðstafanir, eða í samræmi við reglur um aðstoð sem undanþegin er tilkynningarskyldu, sbr. kafli um byggðaaðstoðar vegna fjárfestingarverkefna í reglugerð (ESB) um almenna hópundanþágu (GBER). Ígildi aðstoðar getur numið 15% af styrkhæfum fjárfestingarkostnaði þegar um stór fyrirtæki er að ræða en hámarks hlutföllin eru 25% og 35% fyrir meðalstór og lítil fyrirtæki.

Ákvörðun ESA um byggðakortiðÁkvörðun ESA um framlengingu byggðakorts til 31. 12. 2021

(birt 3.9.2020).

Íslensk þýðing ákvörðunar ESA um byggðakortLeiðbeinandi reglur ESA um svæðisbundna ríkisaðstoð fyrir árin 2014-2020 (e. National regional aid)Íslensk þýðing leiðbeinandi reglna ESA um svæðisbundna ríkisaðstoð fyrir árin 2014-2016