Fiskeldissjóður

Fiskeldissjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2026

Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Fiskeldissjóði fyrir árið 2026. Til úthlutunar á árinu 2026 eru 554.000.000 kr.

Skilyrðum fyrir veitingu styrkja úr Fiskeldissjóði hefur verið breytt. Breytingarnar eru gerðar að höfðu samráði við fulltrúa þeirra sjö sveitarfélaga sem eiga rétt á að sækja um styrki í Fiskeldissjóð sem eru Bolungarvík, Fjarðabyggð, Múlaþing, Ísafjarðarbær, Súðavík, Strandabyggð og Vesturbyggð.

  • Eftirfarandi skilyrði eru sett til að umsókn teljist gild:
  • Að umsækjandi sé styrkhæft sveitarfélag.
  • Kostnaðar- og framkvæmdaáætlun liggi fyrir.
  • Framkvæmd sé á fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2026.
  • Að framkvæmdir hefjist árið 2026 og séu ekki hafnar þegar umsókn er send inn.
  • Styrkfjárhæð sé að hámarki 50% af heildarkostnaði verkefnisins.
  • Verkefnið falli að áherslum sjóðsins.
  • Verkefnið sé á forræði sveitarfélagsins.
  • Verkefnið skal vera fjárfesting í uppbyggingu innviða enda er það fært til eignar í
    reikningshaldi sveitarfélagsins.
  • Stefnt sé að verkefninu sé lokið innan þriggja ára.
    Til að teljast styrkhæft skal lágmarksumfang verkefnis vera 40.000.000 kr. Hámarksstyrkur til einstaks sveitarfélags er 150.000.000 kr.

Nauðsynleg gögn sem fylgja þurfa umsókn eru:

  • Greinargerð um þörf fyrir uppbyggingu innviða og þjónustu í sveitarfélaginu.
  • Staðfesting þess að verkefnið sé samþykkt í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.
  • Lýsing á verkefninu ásamt kostnaðar- og framkvæmdaáætlun.
  • Greinargerð um hvernig verkefnið falli að áherslum sjóðsins árið 2026.
    Almennar áherslur sjóðsins árið 2026 eru að umsóknarverkefni stuðli að öflugri og sjálfbærri uppbyggingu innviða í sveitarfélaginu. Verkefni sem lögð verður áhersla á árið 2026 skulu m.a. snúa að:
  • Uppbyggingu innviða vegna skóla- og frístundastarfs.
  • Úrbótum á meðhöndlun úrgangs, þ.m.t. fráveituframkvæmdum.
  • Úrbótum á neysluvatni.
  • Uppbyggingu og undirbúningi íbúðahverfa.
  • Uppbyggingu á brunavörnum og öðrum verkefnum sem efla öryggi íbúa.
  • Uppbyggingu hafnarsvæða.
  • Eflingu mannlífs og heilsueflingu svo sem sundlauga, íþróttamannvirkja og safna.
    Falli verkefni ekki að ofangreindu er stjórn heimilt að kalla eftir sérstökum rökstuðningi varðandi mikilvægi verkefnisins, enda falli verkefnið að uppbyggingu innviða. Stjórn er heimilt að hafna verkefnum sem ekki falla að áherslum sjóðsins.

Styrkhæf sveitarfélög eru vinsamlegast beðin um að kynna sér nýju skilyrðin vel. Ábendingar eða ósk um skýringar skulu sendar til atvinnuvegaráðuneytisins fyrir lok umsóknarfrests.

Umsóknarfrestur er til og með 17. febrúar 2026. Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum eyðublaðavef Stjórnarráðsins .

Fiskeldissjóður starfar á grundvelli 7. gr. laga nr. 89/2019 um töku gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóð. Sjóðnum er ætlað að veita sveitarfélögum styrki til uppbyggingar innviða, þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað, og styrkja þar með samfélög og stoðir atvinnulífs á þeim svæðum. Stjórn sjóðsins starfar eftir starfsreglum sjóðsins.

Frekari upplýsingar veitir Jón Baldur Lorange, [email protected] eða í síma í 545-9700.

Uppfærðar úthlutunarreglur eru í vinnslu.

Staða verkefna

Skýrslu yfir stöðu verkefna, sem hér að neðan, er hægt að opna í nýjum glugga til að stækka.

Úthlutanir sjóðsins

Fiskeldissjóður úthlutar 465 miljónum króna

Stjórn fiskeldisjóðs hefur úthlutað rúmlega 465 milljónum kr. til 15 verkefna í sjö sveitarfélögum.

Alls bárust 30 umsóknir frá sjö sveitarfélögum sem námu rúmlega 1,7 milljarði króna, tæplega fjórfalt hærri fjárhæð en var til úthlutunar.

Umsóknarfrestur var til 10. mars og lauk úthlutun 19. maí. Eftirtalin 15 verkefni hlutu styrk að þessu sinni:

  • Bolungarvík - 43.250.000 kr.
    Göngustígar og aðkoma „Sandinum“ við Tjarnarkamb í Bolungarvík - 2.880.000 kr. Lundahverfi - nýtt íbúðahverfi í Bolungarvík - 40.370.000 kr.
  • Fjarðabyggð -134.520.000 kr.
    Endurbætur á Íslenska stríðsárasafninu - 44.840.000 kr.
    Fjarðabyggðarhöllin, laga þak og skipta um ljós - 44.840.000 kr.
    Fráveitan á Eskifirði - 44.840.000 kr.

  • Ísafjarðabær - 76.660.000 kr.
    Slökkvistöð Ísafjarðarbæjar - 44.840.000 kr.
    Torfnes upphitun aðalvallar - 31.820.000 kr.

  • Múlaþing - 44.840.000 kr.
    1. áfangi í stækkun leikskólans Bjarkatúns á Djúpavogi - 44.840.000 kr.

  • Strandabyggð - 8.690.000 kr.
    Vatnsveita í Strandabyggð - húsnæði og geislunarbúnaður - 8.690.000 kr.

  • Súðavík - 61.270.000 kr
    Heitir pottar og aðstaða í Súðavík - framhaldsumsókn - 35.610.000 kr.
    Slökkvibifreið - 25.660.000 kr.

  • Vesturbyggð - 95.840.000 kr.
    Bíldudalsskóli bygging - 44.840.000 kr.
    Fráveita Bíldudal - 7.760.000 kr.
    Fráveita Patreksfirði - 7.110.000 k.r
    Skólalóð Patreksskól - 36.130.000 kr.

Samtals: 465.070.000 kr.

Stjórnin metur það svo að verkefnin sem hljóta styrk að þessu sinni falli öll vel að áherslum sjóðsins og séu til þess fallin að styrkja innviði sveitarfélaga og atvinnulíf á þeim svæðum þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað.

Úthlutun 2021 – 2025

Frá stofnun sjóðsins 2021 hafa tæplega 1.440 milljónir króna runnið til fjölbreyttra og krefjandi verkefna í viðkomandi sveitarfélögum sem hefur auðveldað þeim að mæta vaxandi kröfum íbúa og atvinnulífs í takt við aukin umsvif í sjókvíaeldi.

Úthlutanir sjóðsins árin 2021-2025:

  • 2025: 465,1 m. kr.
  • 2024: 437,2 m.kr.
  • 2023: 247,7 m.kr.
  • 2022: 185 m.kr.
  • 2021: 105 m. kr.

Úthlutun ársins 2025 rann að stærstum hluta styrkja í flokkinn annað eða samtals rúmlega 200 milljónir króna en því næst til skóla, ríflega 125 milljónir króna. Skiptingu eftir verkefnaflokkum 2025 má sjá á meðfylgjandi mynd.

Línurit 1, Chart element

Verklag og regluverk
Stjórn sjóðsins ber að leggja faglegt mat á umsóknir og verkefni og forgangsraða þeim í samræmi við hlutverk sjóðsins og áherslur stjórnar hverju sinni

Fjárhæð samþykktra umsókna nam samtals um 1.123.114.018 kr. Þar sem ráðstöfunarfé sjóðsins er lægra en sú fjárhæð ákvað stjórn sjóðsins að setja hámark á styrki að fjárhæð 60 milljónir króna. Samþykktar umsóknir voru skertar hlutfallslega samkvæmt fyrir fram ákveðnum matsaðferðum og síðan hlutfallaðar með hliðsjón að ráðstöfunarfé sjóðsins sem nam í ár 465,1 milljón.

Stjórn sjóðsins var samstíga í mati á umsóknum. Stjórnin metur það svo að aðferðafræðin sem beitt var við mat á umsóknum hafi gefist vel og einkum það að halda fjarfundi með fulltrúum sveitarfélaganna. Stefnir stjórnin að því að beita sambærilegri aðferðafræði við úthlutun á næsta ári og leggur áherslu á að hafa áfram gott samráð við sveitarfélögin.

Úthlutun úr fiskeldissjóði 2024 

 Stjórn fiskeldisjóðs hefur úthlutað 437,2 milljónum kr til sextán verkefna í sjö sveitarfélögum.

Alls bárust 29 umsóknir frá átta sveitarfélögum, samtals að fjárhæð rúmlega 1,5 milljarður króna, sem er meira en þrefalt hærri fjárhæð en var til úthlutunar.

Umsóknarfrestur var til 6. mars og lauk úthlutun 8. apríl. Eftirtalin sextán verkefni hlutu styrk að þessu sinni:

 

Bolungarvík

34.469.000

Aðkoma, aðstaða og aðgengi að hafnarsvæði

15.447.000

Neysluvatnsholur í Bolungarvík

19.022.000

Fjarðabyggð

151.840.000

Fráveita á Breiðdalsvík, seinni hluti, hreinsivirki

26.494.000

Kaup á slökkvibifreið, Fjarðabyggð

44.452.000

Leikskólinn Dalborg, Eskifirði, innanhúsfrágangur

40.447.000

Lenging Strandabryggju, Fáskrúðsfirði

40.447.000

Ísafjarðarbær

79.407.000

Fráveita á Þingeyri, hreinsivirki

51.660.000

Verknámshús við Menntaskólann á Ísafirði

27.747.000

Múlaþing

39.646.000

Þjónustumiðstöð, hafnarhús og slökkvistöð, Djúpavogi

39.646.000

Strandabyggð

25.384.000

Fráveita í Strandabyggð, uppbygging hreinsistöðva

25.384.000

Súðavíkurhreppur

17.307.000

Mengunarvarnabúnaður fyrir Súðavíkurhöfn

1.457.000

Heitir pottar og aðstaða á Langeyri

15.850.000

Vesturbyggð

89.147.000

Nýbygging leik- og grunnskóla, Bíldudal

46.454.000

Kaup og uppsetning varmadælu við sundlaugina, Patreksfirði

13.000.000

Rannsóknarrými í Verbúðinni, Patreksfirði

7.175.000

Endurnýjun skólalóðar Patreksskóla, Patreksfirði

22.518.000

Samtals kr.

437.200.000

 

Stjórnin metur það svo að verkefnin sem hljóta styrk að þessu sinni falli öll vel að áherslum sjóðsins og séu til þess fallin að styrkja innviði sveitarfélaga og atvinnulíf á þeim svæðum þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað. Til Vestfjarða runnu 56% styrkja í ár, en 44% til Austurlands.

 

Úthlutun 2021 – 2024

Frá stofnun sjóðsins 2021 hafa 975 milljónir króna runnið til fjölbreyttra og krefjandi verkefna í viðkomandi sveitarfélögum sem hefur auðveldað þeim að mæta vaxandi kröfum íbúa og atvinnulífs í takt við aukin umsvif í sjókvíaeldi. Úthlutunarfjárhæð 2024 er sem fyrr segir 437,2 milljónir króna. Á árinu 2023 var úthlutað 247,7 m.kr., 185 milljónum á árinu 2022 og 105 milljónum á árinu 2021.

Á þessu ári rann stærsti hluti styrkja til skóla og bætts aðbúnaðar nemenda, samtals nær 140 milljónir króna, en því næst til fráveitumála, ríflega 100 milljónir króna. Skiptingu eftir verkefnaflokkum 2024 og 2021-2024 má sjá á meðfylgjandi myndum.

  

Verklag og regluverk

Um sjóðinn gilda lög nr. 89/2019. Stjórn sjóðsins ber að leggja faglegt mat á umsóknir og verkefni og forgangsraða þeim í samræmi við hlutverk sjóðsins og áherslur stjórnar hverju sinni. Þær áherslur koma fram í 4. gr. úthlutunarreglna sjóðsins og eru óbreyttar frá fyrra ári. Stjórn sjóðsins hélt fund með fulltrúum sveitarfélaga 9. janúar 2024 og kynnti þar lítilsháttar breytingar á úthlutunarreglum sem felast í ríkari kröfum um að stærri verkefnum sé áfangaskipt þannig að sýnt sé að einstaka verkþáttum geti lokið innan 12 mánaða frá því samningur er undirritaður.

Stjórn sjóðsins fundaði 13 sinnum frá 8. mars til 9. apríl til að fara yfir og meta umsóknir. Stjórn hélt fjarfundi með sveitarfélögunum hverju fyrir sig þar sem færi gafst á að kynna og ræða umsóknirnar og fyrirliggjandi verkefni. Er það mat stjórnar að það hafi gefist vel.

Verklag við mat umsókna var óbreytt en fimm áhersluþættir vega á bilinu 7,5% til 20% og fullnægjandi kostnaðar- og framkvæmdaáætlun gildir allt að 30%. Forgangsröðun matsþátta kemur fram á matsblaði sem stjórn studdist við og er hluti af úthlutunarreglum.

Fjárhæð samþykktra umsókna nam samtals um 1.133.771.703 kr. Þar sem ráðstöfunarfé sjóðsins er lægra en sú fjárhæð ákvað stjórn sjóðsins að setja hámark á styrki að fjárhæð 70 milljónir króna. Allar samþykktar umsóknir sem voru hærri en 20 milljónir króna voru fyrst skertar hlutfallslega miðað við einkunn, en til þess að samtala úthlutaðra styrkja væri 437,2  m.kr., sem er sú fjárhæð sem sjóðurinn hefur til úthlutunar, voru samþykktar umsóknir, hærri en 20 milljónir króna, síðan skertar um 24%.

Stjórn sjóðsins var samstíga í einkunnagjöfinni. Stjórnin metur það svo að aðferðafræðin sem beitt var við mat á umsóknum hafi gefist vel og einkum sú nýbreytni að halda fjarfundi með fulltrúum sveitarfélaganna. Stefnir stjórnin að því að beita sambærilegri aðferðafræði við úthlutun á næsta ári og leggur áherslu á að hafa áfram gott samráð við sveitarfélögin.

Úthlutun úr Fiskeldissjóði 2023

Stjórn Fiskeldisjóðs hefur úthlutað styrkjum til 12 verkefna í sjö sveitarfélögum, samtals að fjárhæð 247,7 milljónir króna. 

Alls bárust 25 umsóknir frá átta sveitarfélögum, ein var dregin til baka þannig að fyrir lágu 24 gildar umsóknir að fjárhæð 758.512 m.kr. eða þrefalt hærri fjárhæð en var til úthlutunar.

Úthlutun lauk 3. maí og hljóta eftirtalin verkefni styrk að þessu sinni:

Sveitarfélag/verkefni
Ár 2023
Bolungarvík
33.280.000
Vatnsveita (framhaldsverkefni)
33.280.000
Fjarðabyggð
46.950.000
Dýpkun, Eskifjörður
24.500.000
Fráveita, í sex byggðakjörnum
22.450.000
Ísafjarðarbær
46.280.000
Fráveita Flateyri
22.010.000
Hreinsivirki og sameining útrása á Suðureyri
24.270.000
Strandabyggð
24.440.000
Færanlegar kennslustofur, Hólmavík
24.440.000
Súðavíkurhreppur
2.750.000
Afmörkun hafnarsvæðis f. ISPS vottun
2.750.000
Tálknafjarðarhreppur
24.760.000
Húsnæði leikskóla, Börn breyta heiminum
24.760.000
Vesturbyggð
69.230.000
Slökkvibifreið á Bíldudal
29.020.000
Vatneyrarbúð, þekkingar- og þróunarsetur á Patreksfirði
8.480.000
Viðbygging við leikskólann Araklett, Patreksfirði
26.480.000
Örveruhreinsun með geislatækni
5.250.000
Samtals
247.690.000

Stjórnin metur það svo að verkefnin sem hljóta styrk að þessu sinni falli öll vel að áherslum sjóðsins og séu til þess fallin að styrkja innviði sveitarfélaga og atvinnulíf á þeim svæðum þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað.

Verklag og regluverk

Um sjóðinn gilda lög nr. 89/2019. Stjórn sjóðsins ber að leggja faglegt mat á umsóknir og verkefni og forgangsraða þeim í samræmi við hlutverk sjóðsins og áherslur stjórnar hverju sinni. Þær áherslur koma fram í 4. gr. úthlutunarreglna sjóðsins og eru óbreyttar frá fyrra ári:

1. Styrkari samfélagsgerð (menntun, menning, íbúaþróun) allt að 20%;

2. Uppbygging innviða (atvinnulíf, þjónusta) allt að 17,5%;

3. Loftslagsmarkmið og umhverfisvernd (fráveita, orkuskipti, vatnsveita) allt að 15%;

4. Tenging við sjókvíaeldi (hafnir, aðstaða í landi) allt að 10%;

5. Nýsköpun hvers kyns, tengd ofangreindum þáttum allt að 7,5%.

Stjórn sjóðsins fundaði 14 sinnum á tímabilinu 2. mars til loka apríl til að fara yfir og meta umsóknir. Stjórn hélt fjarfundi með sveitarfélögunum hverju fyrir sig þar sem færi gafst á að kynna og ræða umsóknirnar og fyrirliggjandi verkefni. Er það mat stjórnar að sú nýbreytni hafi gefist vel.

Metið var að hve miklu leyti hver umsókn félli að hverjum og einum áhersluþætti, sem hafa vægi á bilinu 7,5%-20%, en fullnægjandi kostnaðar- og framkvæmdaráætlun gildir allt að 30%. Við mat á umsóknum ber sjóðnum einnig að leggja áherslu á þörf fyrir uppbyggingu innviða og þjónustu á umsóknarsvæðum sem og raunhæfni áætlana, sbr. 2. mgr. 8. gr. rg. 100/2022. Forgangsröðun matsþátta kemur fram á matsblaði sem stjórn studdist við og er hluti af úthlutunarreglum.

Sem fyrr gaf stjórnin umsóknum einkunn eftir sjö matsþáttum, sem skipt var í tvo fasa. Í fyrri fasa voru skoðaðir tveir þættir; lýsing á markmiði verkefnisins og framkvæmdar- og kostnaðaráætlun. Gerð var krafa um að lýsing á markmiði verkefnisins væri skýr og vel skilgreind, enn fremur að framkvæmdar- og kostnaðaráætlun væri vel unnin, raunhæf og fjármögnun trúverðug. Ef umsókn uppfyllti ekki þessi skilyrði var hún ekki metin styrkhæf og fékk ekki frekari umfjöllun.

Í síðari fasa voru verkefni sem uppfylltu áðurnefndar kröfur metin skv. matsþáttunum fimm sem endurspegla áherslur sjóðsins. Voru áhrifin metin eftir því hvort þau væru engin, lítil, nokkur, mikil eða afgerandi og verkefnum síðan raðað í samræmi við þá einkunnagjöf.

Fjárhæð samþykktra umsókna nam samtals um 455.860 m.kr. Þar sem ráðstöfunarfé sjóðsins er lægra en sú fjárhæð voru allar umsóknir fyrst skertar hlutfallslega miðað við einkunn. Til þess að samtala úthlutaðra styrkja væri 247,7 m.kr., sem er sú fjárhæð sem sjóðurinn hefur til úthlutunar, voru samþykktar umsóknir síðan skertar um 33,4%.

Úthlutun 2021-2023

Frá stofnun sjóðsins 2021 hafa 537,8 milljónir króna runnið til fjölbreyttra og krefjandi verkefna í viðkomandi sveitarfélögum til að mæta vaxandi kröfum íbúa og atvinnulífs í takt við aukin umsvif í sjókvíaeldi. Úthlutunarfjárhæð 2023 var sem fyrr segir  247,7 milljónir króna. Á árinu 2021 var úthlutað 105 milljónum króna og 185 milljónum á árinu 2022.

Úthlutunarreglum sjóðsins var breytt lítillega á fundi stjórnar 12. janúar 2023 að undangenginni kynningu og  viðræðum við sveitarfélögin. Fallið var frá því að ákveða hámarksfjárhæð styrkja til einstakra verkefna, sem á fyrra ári nam 50 milljónum króna, en stjórn hefur rétt til að setja hámark á styrki með hliðsjón af úthlutunarfjárhæð og umfangi umsókna hverju sinni. Ekki kom til þess við úthlutun í ár. Þá er nú áskilið að þegar sótt er um framhaldsstyrk til verkefnis, sem áður hefur hlotið styrk úr Fiskeldissjóði, skuli liggja fyrir lokaskýrsla vegna fyrri áfanga og/eða greinargott yfirlit um ásættanlega framvindu verkefnisins að mati stjórnar. Sem fyrr voru ekki veittir styrkir til sama verkþáttar sem áður hefur hlotið styrk og verkefni sem eru á könnunar- og frumstigi víkja fyrir öðrum sem sýnt er að komi til framkvæmdar á tímabilinu.

Stjórn sjóðsins var samstiga í einkunnagjöfinni. Stjórnin metur það svo að aðferðafræðin sem beitt var við mat á umsóknum hafi gefist vel og einkum sú nýbreytni að halda fjarfundi með fulltrúum sveitarfélaganna. Stefnir stjórnin að því að beita sambærilegri aðferðafræði við úthlutun á næsta ári og leggur áherslu á að hafa áfram gott samráð við sveitarfélögin.

Stjórn Fiskeldisjóðs hefur úthlutað öðru sinni styrkjum til eflingar innviða og atvinnulífs í sveitarfélögum þar sem sjókvíaeldi er stundað.

Stjórn sjóðsins fundaði sex sinnum á tímabilinu 4. apríl til 13. maí til að fara yfir og meta umsóknir. Samþykktar umsóknir námu samtals um 299,5 milljónum króna en þar sem ráðstöfunarfé sjóðsins er lægra en sú fjárhæð voru styrkfjárhæðir skertar hlutfallslega í samræmi við forgangsröðun stjórnar. Eftirfarandi níu verkefni frá sex sveitarfélögum hljóta styrk í ár:

 

Vatnsveita í Bolungarvík, bygging miðlunartanks, Bolungarvíkurkaupstaður, 33,4 milljónir kr.

Endurnýjun vatnslagna í Staðardal, Ísafjarðarbær (framhaldsverkefni), 33,4 milljónir kr.

Nemendagarðar Háskólaseturs, frágangur lóðar, Ísafjarðarbær, 16 milljónir kr.

Fráveituframkvæmdir í Djúpavogi (framhaldsverkefni), Múlaþing, 32,4 milljónir kr.

Smitvarnir í Súðavíkurhöfn, Súðavíkurhreppur, 4,1 milljón kr.

Uppbygging á hafnarsvæði, Tálknafjarðarhreppur, 28,8 milljónir kr.

Áhaldahús og slökkvistöð á Bíldudal, Vesturbyggð, 22,6 milljónir kr.

Vatnsöryggi í Vesturbyggð, (framhaldsverkefni), Vesturbyggð, 4,1 milljón kr.

Öruggar gönguleiðir, gerð gangstétta, Patreksfirði, Vesturbyggð, 10,3 milljónir kr.

Þrjú af ofangreindum verkefnum fengu styrk við úthlutun 2021.

 

Stjórnin metur það svo að verkefnin sem hljóta styrk að þessu sinni falli öll vel að áherslum sjóðsins og séu til þess fallin að styrkja innviði sveitarfélaga og atvinnulíf á þeim svæðum þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað.

Frá stofnun sjóðsins 2021 hafa tæplega 300 milljónir króna runnið til fjölbreyttra og krefjandi verkefna í viðkomandi sveitarfélögum til að mæta vaxandi kröfum íbúa og atvinnulífs í takt við aukin umsvif í sjókvíaeldi. Að þessu sinni var úthlutað styrkjum til níu verkefna í sex sveitarfélögum, samtals að fjárhæð 185,1 milljón króna. Úthlutun á fyrra ári nam 105 milljónum króna. 

Stjórn Fiskeldissjóðs hefur úthlutað styrkjum í samræmi við lög nr. 89/2019 fyrir árið 2022. Auglýst var eftir umsóknum 18. febrúar s.l. og var umsóknarfrestur til 25. mars. Alls bárust 15 umsóknir frá átta sveitarfélögum, samtals að fjárhæð rúmlega 457 milljónir króna en framlög á fjárlögum til úthlutunar á árinu 2022 námu 185,1 milljónum króna. Sjóðnum ber að leggja faglegt mat á umsóknir og verkefni og forgangsraða þeim í samræmi við hlutverk sjóðsins og áherslur stjórnar hverju sinni. Þær áherslur koma fram í 4. gr. úthlutunarreglna sjóðsins og eru við úthlutun 2022:

1. Styrkari samfélagsgerð (menntun, menning, íbúaþróun)

2. Uppbygging innviða (atvinnulíf, þjónusta)

3. Loftslagsmarkmið og umhverfisvernd (fráveita, orkuskipti, vatnsveita)

4. Tenging við sjókvíaeldi (hafnir, aðstaða í landi)

5. Nýsköpun hvers kyns, tengd ofangreindum þáttum.

Við mat á umsóknum ber sjóðnum einnig að leggja áherslu á þörf fyrir uppbyggingu innviða og þjónustu á umsóknarsvæðum sem og raunhæfni áætlana, sbr. 2. mgr. 8. gr. rg. nr. 100/2022. Metið var að hve miklu leyti hver umsókn félli að hverjum og einum áhersluþætti. Forgangsröðun matsþátta kom fram á matsblaði sem stjórn studdist við og er hluti af úthlutunarreglum. Stjórn sjóðsins skipti matsþáttum í tvo hluta. Í fyrri hluta voru skoðaðir tveir þættir; lýsing á markmiði verkefnisins og framkvæmdar- og kostnaðaráætlun. Gerð var krafa um að lýsing á markmiði verkefnisins væri skýr og vel skilgreind, enn fremur að framkvæmdar- og kostnaðaráætlun væri raunhæf, ítarleg og sundurliðuð og fjármögnun trúverðug. Ef svo var ekki, var umsóknin ekki metin styrkhæf og fékk ekki nánari umfjöllun. Í síðari hluta voru verkefni, sem uppfyllt höfðu áðurnefndar kröfur, metin skv. áðurnefndum fimm matsþáttum sem endurspegla áherslur sjóðsins. Voru áhrifin metin eftir því hvort þau væru engin, lítil, nokkur, mikil eða afgerandi.

 

Umsóknir

Umsækjandi

Heiti verkefnis

Bolungarvík

Göngustígar og aðkoma að Sandinum við Tjarnarkamb í Bolungarvík

Bolungarvík

Lundahverfi – nýtt íbúðahverfi í Bolungarvík

Fjarðabyggð

Endurbætur á Íslenska stríðsárasafninu

Fjarðabyggð

Fjarðabyggðarhöllin

Fjarðabyggð

Fráveitan á Eskifirði

Fjarðabyggð

Varðveisluhús safna

Ísafjarðarbær

Félagsheimilið á Þingeyri – endurbætur

Ísafjarðarbær

Jarðgerðarstöð í Ísafjarðarbæ

Ísafjarðarbær

Slökkvistöð Ísafjarðarbæjar

Ísafjarðarbær

Sundhöll Ísafjarðar – endurbætur

Ísafjarðarbær

Torfnes upphitun aðalvallar

Múlaþing

1 áfangi í stækkun leikskólans Bjarkatúns á Djúpavogi

Múlaþing

Þjónustumiðstöð – hafnarhús

Strandabyggð

Vatnsveita í Strandabyggð – húsnæði og geislunarbúnaður

Súðavíkurhreppur

Avant fjölnotatæki

Súðavíkurhreppur

Flotbryggja fyrir Súðavíkurhöfn

Súðavíkurhreppur

Heitir pottar og aðstaða í Súðavík – framhaldsumsókn

Súðavíkurhreppur

Slökkvibifreið

Súðavíkurhreppur

Vatnsveita

Vesturbyggð

Bíldudalsskóli bygging

Vesturbyggð

Bíldudalsskóli innirými og húsgögn

Vesturbyggð

Félagsheimili Patreksfjarðar

Vesturbyggð

Fráveita Bíldudal

Vesturbyggð

Fráveita Patreksfirði

Vesturbyggð

Gangstétt Túngata Tálknafirði

Vesturbyggð

Grunnskóli og sundlaug Tálknafirði

Vesturbyggð

Iðnaðarsvæði við Járnhól

Vesturbyggð

Ný þök, Vindheimar og Kambur

Vesturbyggð

Rafmagnsbíll fyrir þjónustumiðstöð

Vesturbyggð

Skólalóð Patreksskóla

 

UmsækjandiHeiti verkefnis
BolungarvíkurkaupstaðurAðkoma, aðstaða og aðgengi almennings að hafnarsvæði í Bolungarvík
BolungarvíkurkaupstaðurNeysluvatnsholur í Bolungarvík
FjarðabyggðSlökkvibifreið Fjarðabyggð
FjarðabyggðLeikskólin Dalborg Eskifirði viðbygging framhaldsumsókn innanhúsfrágangur
FjarðabyggðBreiðablik þjónustuíbúð aldraðra
FjarðabyggðFráveita á Breiðdalsvík seinni hluti hreinsivirki
FjarðabyggðahafnirLenging Strandabryggju Fáskrúðsfirði
ÍsafjarðarbærSkógarhús Tanga
ÍsafjarðarbærStækkun Sólborgar - hönnun
ÍsafjarðarbærFráveita á Þingeyri - hreinsivirki
ÍsafjarðarbærNý aðveituæð á Suðurtanga
ÍsafjarðarbærFélagsheimilið á Þingeyri - endurbætur
ÍsafjarðarbærSundhallarloft - grunnskóli og dægradvöl
ÍsafjarðarbærVerknámshús við Menntaskólann á Ísafirði
MúlaþingUppbygging á þrek og líkamsræktaraðstöðu
MúlaþingÞjónustumiðstöð, hafnarhús og slökkvistöð á Djúpavogi
StrandabyggðFráveita í Strandabyggð - uppbygging hreinsistöðva
SúðavíkurhreppurMengunarvarnarbúnaður fyrir Súðavíkurhöfn
SúðavíkurhreppurLíkamsræktaraðstaða í Súðavík
SúðavíkurhreppurHeitir pottar og aðstaða í Súðavík
TálknafjarðarhreppurFráveita frá þéttbýli á Tálknafirði
VesturbyggðKaup og uppsetning varmadælu við sundlaugina á Patreksfirði
VesturbyggðSöfnunarsvæði úrgangs í dreifbýli
VesturbyggðNýbygging leik- og grunnskóla á Bíldudal
VesturbyggðEndurnýjun skólalóðar Patreksskóla
VesturbyggðBætt aðstaða fyrir ferðamenn
VesturbyggðKaup á rafmagns vinnubíl
VesturbyggðVatneyrarbúð, þekkingarsetur
VesturbyggðRannsóknarrými - Verbúðin Patreksfirði

Fundargerðir

Ársskýrslur

Ársskýrsla Fiskeldissjóðs 2024