Bankamarkaður
Bankamarkaður gegnir veigamiklu hlutverki við miðlun fjármagns frá sparifjáreigendum til lántaka og miðlun greiðslna fyrir vörur og þjónustu. Regluverki á bankamarkaði er ætlað að treysta fjármálastöðugleika og vernda neytendur. Meðal mikilvægustu reglna eru fyrirmæli um eigið fé og laust fé, sem auka getu banka til að mæta óvæntum áföllum, fyrirmæli um virka eignarhluti, sem eiga að tryggja að ráðandi hlutir í bönkum séu í eigu traustra aðila, og fyrirmæli um stjórnarhætti og áhættustýringu, sem stuðla að varfærinni stjórnun banka. Veigamesta löggjöf á þessu sviði eru lög um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002. Þau byggjast á samevrópsku regluverki, svonefndri CRD-tilskipun (e. Capital Requirements Directive) og CRR-reglugerð (e. Capital Requirements Regulation), sem aftur taka mið af alþjóðlegum viðmiðum um bankaregluverk, svonefndum Basel-stöðlum. Fjármálaeftirlitið, sem er hluti Seðlabanka Íslands, hefur eftirlit með því að farið sé að reglum á bankamarkaði.
Sjá einnig:
Yfirlit um lög á vef Alþingis
Ríkisfjármál og ríkisábyrgðirBankar og fjármálafyrirtækiVátryggingarFélög, firmu og stofnanirYfirlit um reglugerðir á reglugerd.is
Ríkisfjármál og ríkisábyrgðirBankar og fjármálafyrirtækiVátryggingarFélög, firmu og stofnanirFjármálamarkaður