Mynd/Hari

Verðbréfamarkaðir

Á verðbréfamarkaði fara fram viðskipti með fjármálagerninga, ýmist á viðskiptavettvangi eða utan hans. Útgáfa og viðskipti með fjármálagerninga eru háð ýmsum lagaskilyrðum, sérstaklega ef þeir eru skráðir á markað. Þau skilyrði eiga bæði við um útgáfu og í kjölfar hennar og er þeim m.a. er ætlað að tryggja fjárfestavernd. Rekstur viðskiptavettvanga, þ.m.t. skipulegra markaða, er starfsleyfisskyld starfsemi samkvæmt lögum um markaði fyrir fjármálagerninga.

Hið sama á við um fjárfestingarþjónustu- og fjárfestingarstarfsemi, sem m.a. felur sér í kaup og sölu fjármálagerninga fyrir viðskiptavini, eignastýringu og fjárfestingarráðgjöf.

Fjárfestingar á verðbréfamarkaði eiga sér oft stað fyrir tilstilli sjóða um sameiginlega fjárfestingu. Rekstur verðbréfasjóða er starfsleyfisskyld starfsemi samkvæmt lögum um verðbréfasjóði, en rekstur sérhæfðra sjóða er ýmist háður starfsleyfisskyldu eða skráningarskyldu eftir fjárhæðum heildareigna í rekstri rekstraraðila, sbr. lög um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.

Sjá einnig: