Framkvæmdasjóður aldraðra
Gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra er lagt á þá einstaklinga sem eru 16–70 ára á viðkomandi tekjuári og eru með tekjuskattsstofn yfir tekjumörkum. Gjaldið er lagt á við álagningu opinberra gjalda ár hvert. Undanþegnir gjaldinu eru elli- og örorkulífeyrisþegar sem dvelja á dvalar- og hjúkrunarheimilum.
Framkvæmdasjóður aldraðra er í vörslu heilbrigðisráðuneytisins og skal stjórn sjóðsins annast stjórn hans og gera árlega tillögur til heilbrigðisráðherra um úthlutun úr sjóðnum.
Sjá einnig:
Lög um málefni aldraðraUmfjöllun um framkvæmdasjóð aldraðra á vef heilbrigðisráðuneytisins
- Umfjöllun á vef Skattsins um gjald í framkvæmdasjóð aldraðra
Skattar og þjónustugjöld einstaklinga