Útvarpsgjald

Útvarpsgjaldið, sem lagt er á við álagningu opinberra gjalda ár hvert, er lagt á einstaklinga 16-70 ára, sem eru með tekjuskattsstofn yfir tekjumörkum. Gjaldið er lagt á í fyrsta skipti við álagningu ári eftir að 16 ára aldri er náð.

Undanþegnir greiðslu útvarpsgjalds eru elli- og örorkulífeyrisþegar sem dvelja á dvalar- og hjúkrunarheimilum og þeir sem eru 70 ára og eldri í lok tekjuársins. Tekjumörk vegna útvarpsgjalds einstaklinga eru reiknuð skattleysismörk fyrir hvert ár.

Lög um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþáguLög um tekjuskattUpplýsingar um útvarpsgjald á vef Skattsins