Handbók um barnalög
Í fyrsta lagi er hér að finna almennan hluta þar sem fjallað er um þróun, hugtök og undirstöðuatriði í barnarétti. Í öðru lagi miðast umfjöllun hér fyrst og fremst við gildandi rétt án vísana til eldri laga nema þegar það þykir varpa sérstöku ljósi á þróun og túlkun lagaákvæða. Í þriðja lagi er efni úr almennum athugasemdum sem fylgt hafa lagafrumvörpum fléttað inn í umfjöllun um einstaka greinar ásamt frekari túlkun höfundar eftir því sem við á. Í fjórða lagi er stuðst við aðrar heimildir í einhverju mæli. Að lokum í fimmta lagi byggir ritið á ítarlegri yfirferð dóma á réttarsviðinu fram til 1. desember 2021 og margir þeirra reifaðir í tengslum við einstaka ákvæði.
Í fyrsta hluta bókarinnar er fjallað stuttlega um þróun barnalaga og ýmis grundvallaratriði.
Í öðrum hluta er að farið yfir hvern kafla laganna og fjallað um einstök ákvæði.
Í lok bókarinnar er að finna barnalögin með innfærðum öllum breytingum, meðal annars skv. breytingarlögum nr. 28/2021. Í öðrum kafla er einnig vikið að reglugerð nr. 1450/2021 um ráðgjöf, sáttameðferð og samtal að frumkvæði barns.
Handbókin frá 2013 var gefin út af Úlfljóti í samvinnu við innanríkisráðuneytið. Að þessu sinni er útgefandi dómsmálaráðuneytið sem hefur valið að gera bókina aðgengilega rafrænt. Rétt er að geta þess að ráðuneytið hefur auk þess gert samning við Úlfljót um heimild til eintakagerðar og dreifingar.
Sjá einnig:
Lög
Barnalög, nr. 76/2003Barnalög, ensk þýðing (PDF) Act in Respect of Children, no. 76/2003, with later amendmentsGreinargerð með frumvarpinu sem varð að lögumÍ greinargerðinni er að finna skýringar við alla kafla laganna og sérstakar skýringar við einstakar greinar þeirra.
Reglur og reglugerðir
Reglugerð um stjórnsýslumeðferð mála skv. barnalögum, nr. 231/1992Reglur um ráðgjöf og sáttameðferð (PDF)Þjónusta sýslumanna
Sjá upplýsingar og ýmis eyðublöð sem varða faðerni á vef sýslumanna.
Barnaréttur