Geðrækt, forvarnir og snemmbær úrræði

1.B.3. Að skýrt samræmt verklag og leiðbeiningar um stuðning við eftirlifendur eftir sjálfsvíg liggi fyrir og sé fylgt.

1.B.3. Að skýrt samræmt verklag og leiðbeiningar um stuðning við eftirlifendur eftir sjálfsvíg liggi fyrir og sé fylgt. 

Tilgangur: Að tryggja viðeigandi stuðning í kjölfar sjálfsvígs.  

Ábyrgðaraðili: Embætti landlæknis. 

Samstarf: Heilbrigðisstofnanir, opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu, sjúkraflutningar, mennta- og barnamálaráðuneyti (skólar), félags- og vinnumarkaðsráðuneyti (félagsþjónusta, vinnustaðir), dómsmálaráðuneyti (prestar, fangelsi og lögregla og aðrar stofnanir dómsmálaráðuneytis sem þjónusta hælisleitendur), innviðaráðuneyti (sveitarfélög), notenda- og aðstandendasamtök, frjáls félagasamtök á sviði sjálfsvígsforvarnar og meðferðar.

Tímabil: 2023-2030.

Samfélagsáhrif: Upplifun einstaklingsins er að aðgengi að stuðningi er öruggt fyrir alla og óháð búsetu og aldri.

Hafið