Öldrunarmál

Ráðherra félagsmála fer með yfirstjórn öldrunarmála samkvæmt lögum um málefni aldraðra. Í því felst stefnumótun og áætlanagerð um málefni aldraðra fyrir landið í heild, annað en heilbrigðisþjónustu. Undir hann heyrir jafnframt Framkvæmdasjóður aldraðra og uppbygging öldrunarstofnana. Heilbrigðisþjónusta við aldraða og rekstur hjúkrunarheimila, dvalarrýma og dagdvala fyrir aldraða er á ábyrgð heilbrigðisráðherra.

Markmið laga um málefni aldraðra er að tryggja að aldraðir eigi völ á þeirri heilbrigðis- og félagsþjónustu sem þeir þurfa á að halda og að hún sé veitt á því þjónustustigi sem er eðlilegast miðað við þarfir hvers og eins. Einnig er markmið laganna að aldraðir geti eins lengi og unnt er búið við eðlilegt heimilislíf en sé jafnframt tryggð stofnanaþjónusta þegar hennar er þörf. Við framkvæmd laganna skal þess gætt að aldraðir njóti jafnréttis á við aðra þjóðfélagsþegna og að sjálfsákvörðunarréttur þeirra sé virtur.

Fjöldi og staðsetning hjúkrunar- dvalar- og dagdvalarrýma um allt land

Samstarfsnefnd um málefni aldraðra

Ráðherra félagsmála skipar fimm manna samstarfsnefnd um málefni aldraðra. Hlutverk hennar er að vera ráðherra og ríkisstjórn til ráðgjafar um málefni aldraðra og vera tengiliður milli ráðuneyta, stofnana og samtaka sem starfa að málefnum aldraðra.

Framkvæmdasjóður aldraðra

Framkvæmdasjóður aldraðra fær tekjur af sérstöku gjaldi sem skattstjórar leggja á alla sem eru skattskyldir, að undanskildum börnum yngri en 16 ára, þeim sem eru 70 ára og eldri og þeim sem hafa tekjur undir ákveðnum tekjumörkum sem skilgreind eru í lögum um málefni aldraðra. Fé úr Framkvæmdasjóði aldraðra skal varið til uppbyggingar þjónustumiðstöðva, dagdvala og stofnana fyrir aldraða og til breytinga og endurbóta á slíku húsnæði. Sjóðurinn fjármagnar viðhald á húsnæði dagdvala, dvalar- og hjúkrunarheimila og fé úr honum er einnig varið til ýmissa annarra verkefna sem stuðla að uppbyggingu öldrunarþjónustu.

Færni- og heilsumatsnefndir

Í hverju heilbrigðisumdæmi starfar færni- og heilsumatsnefnd sem leggur mat á þörf fólks fyrir búsetu í dvalar- og hjúkrunarrými eða tímabundna hvíldarinnlögn. Hver nefnd skal skipuð lækni með sérmenntun í öldrunar- eða heimilislækningum eða langvinnum sjúkdómum, hjúkrunarfræðingi með þekkingu á öldrunarþjónustu eða hjúkrun langveikra og félagsráðgjafa, sálfræðingi eða öldrunarfræðingi með þekkingu á félagsþjónustu við aldraða eða langveikt fólk.

Færni- og heilsumatsnefndir skulu í störfum sínum hafa að leiðarljósi það markmið að fólki skuli gert kleift að búa á eigin heimili utan stofnana eins lengi og unnt er með viðeigandi heilbrigðis- og félagsþjónustu og öðrum raunhæfum úrræðum.

Embætti landlæknis hefur yfirumsjón með framkvæmd færni- og heilsumats og má sjá nánari upplýsingar um matið, aðsetur nefnda og umsóknareyðublöð á vef embættisins.

Öldrunarþjónusta

Ríki og sveitarfélög bera saman ábyrgð á opinberu þjónustukerfi fyrir eldra fólk, annars vegar er heilbrigðisþjónusta sem ríkið ber ábyrgð á og hins vegar félagsþjónusta sem er á ábyrgð sveitarfélaga. Samkvæmt lögum er þjónustunni skipt upp í opna öldrunarþjónustu og stofnana­þjón­ustu.

Opin þjónusta

Undir opna þjónustu fellur:

  • Heimaþjónusta, sem skiptist í heilbrigðis- og félagsþjónustu, og
  • þjónustumiðstöðvar aldraðra sem eru starfræktar af sveitarfélögum til að tryggja eldri borgurum félagsskap, næringu, hreyfingu, tómstundaiðju, skemmtun og heilsufarslegt eftirlit.
  • Dagdvöl eða dagþjálfun aldraðra sem er skilgreind sem stuðningsúrræði við þau sem að staðaldri þurfa eftirlit og umsjá til að geta búið áfram heima. Þær skiptast í almennar dagdvalir og sérhæfðar dagdvalir fyrir fólk með heilabilun.
  • Þjónustuíbúðir aldraðra sem hafa fengið framkvæmdaleyfi hjá ráðherra. Íbúar þjón­ustuíbúða eiga rétt á sömu heimaþjónustu samkvæmt mati og aðrir íbúar sveitarfélagsins.

Stofnanaþjónusta

Undir stofnanaþjónustu falla stofnanir fyrir aldraða, svo sem dvalar- og hjúkrunar­heimili eða hjúkrunarrými á heilbrigðisstofnunum og er þar veitt hjúkrunar- og læknisþjónusta og endurhæfing. Ríki, sveitarfélög, fyrirtæki og sjálfseignarstofnanir sjá um rekstur hjúkrunar­- og dvalarrýma.

Fjöldi og staðsetning hjúkrunar- dvalar- og dagdvalarrýma um allt land