Þjónusta við aldraða

Félagsstarf aldraðra

Mörg sveitarfélög starfrækja félagsmiðstöðvar þar sem fram fer félagsstarf. Markmið félagsstarfsins er að fyrirbyggja og draga úr félagslegri einangrun með því að bjóða upp á opið félags- og tómstundastarf auk námskeiða. Félagsstarfið stuðlar að samskiptum, hreyfingu og veitir félagsskap. Þar er meðal annars boðið upp á mat og kaffi, tómstundaiðju og hreyfingu. Nánari upplýsingar fást hjá sveitarfélögum.

Heimaþjónusta

Alla jafna er fyrirkomulag heimaþjónustu með þeim hætti að heilsugæsla viðkomandi heilbrigðisumdæmis sér um heilbrigðisþjónustuna, þar með talið heimahjúkrun, og sveitar­félög sjá um að veita félagslega þjónustu, þar með talið stuðnings­þjónustu/heimastuðning. Reykjavíkurborg hefur frá árinu 2009 annast rekstur heimahjúkrunar og félagslegrar þjónustu samkvæmt samningi við ríkið. Öll heimaþjónustan er þannig samþætt á einni hendi. Á vegum verkefnisins Gott að eldast er einnig unnið að þróunarverkefnum víða um land sem miða að því að samþætta félagsþjónustu og heimahjúkrun við eldra fólk í heimahúsum.

Í þjónustukeðju hins opinbera fyrir eldra fólk eru einnig: þjónusta heilsugæslunnar vegna heilsu­farslegra vandamála, sjúkrahúsþjónusta, endurhæfingarþjónusta, heimsendingar á mat, aksturs­þjónusta, aðkoma heima-endurhæfingarteymis, dagdvalir, velferðartækni, m.a. fjar­heil­brigðisþjónusta, félagsráðgjöf og sólarhringsþjónusta í þjónustuíbúðum í eigu sveitar­félaga. Ólíkt er eftir svæðum hverjir af þessum þjónustuþáttum eru í boði.

Félagsleg heimaþjónusta

Eldra fólk í heimahúsum á rétt á heimaþjónustu eða heimastuðningi geti þeir ekki hjálparlaust annast heimilishald og persónulega umhirðu. Sveitarfélög veita þessa þjónustu á grundvelli laga um félagsþjónustu sveitarfélaga en setja sjálf nánari reglur um framkvæmdina. Gjald fyrir félagslega heimaþjónustu fer eftir gjaldskrá hvers sveitarfélags.

Nánari upplýsingar um félagsþjónustu sveitarfélaga

Heimahjúkrun

Heimahjúkrun er ætlað að gera þeim sem þjónustunnar njóta kleift að búa heima við sem eðlilegastar aðstæður þrátt fyrir veikindi eða heilsubrest. Heimahjúkrun er almennt á hendi heilbrigðisstofnana í hverju heilsugæsluumdæmi.

Reykjavíkurborg hefur frá árinu 2009 annast rekstur heimahjúkrunar og félagslegrar þjónustu samkvæmt samningi við ríkið. Öll heimaþjónustan er þannig samþætt á einni hendi. Á vegum verkefnisins Gott að eldast er einnig unnið að þróunarverkefnum víða um land sem miða að því að samþætta félagsþjónustu og heimahjúkrun við eldra fólk í heimahúsum.

Dagdvöl

Í flestum stærri sveitarfélögum er möguleiki á dagdvöl eða dagþjálfun en dagdvöl er tímabundið stuðningsúrræði við eldra fólk sem býr í heimahúsum. Dagdvöl getur verið almenn dagdvöl, sérhæfð dagdvöl fyrir fólk með heilabilun og dagdvöl með endurhæfingu. Dagdvöl aldraðra þarf a.m.k. að bjóða upp á tómstundaiðkun, aðstöðu til léttra líkamsæfinga, máltíð, hvíldaraðstöðu og aðstoð við böðun. Í dagdvöl aldraðara skal veita hjúkrunar- og læknisþjónustu og þar skal einnig vera aðstaða til þjálfunar. Akstur til og frá heimili er innifalinn í dvalargjaldi. Hægt er að sækja um dagdvöl hjá viðkomandi stofnun, en á höfuðborgarsvæðinu eru biðlistar og umsóknir vegna dagdvalar fyrir fólk með heilabilun í umsjón félagsráðgjafa á Landakoti.

Þjónustuíbúðir

Sum sveitarfélög leigja út þjónustuíbúðir til eldri borgara sem þurfa meiri þjónustu en hægt er að fá í heimahúsum án þess að hafa þörf fyrir dvöl á dvalar- eða hjúkrunarheimili. Í lögum um málefni aldraðra er skilgreint hvaða þjónusta skuli veitt í þjónustuíbúðum og segir að í þeim skuli vera öryggiskerfi og völ á fjölbreyttri þjónustu, svo sem mat, þvotti og þrifum, og aðgangur að félagsstarfi. Íbúar í þjónustuíbúðum eiga sama rétt á heimaþjónustu og aðrir íbúar sveitarfélagsins. Upplýsingar um þjónustuíbúðir eru veittar hjá viðkomandi sveitarfélögum.