Aðgerðir í geðheilbrigðismálum

Þingsályktun um aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum 2023-2027 var samþykkt á Alþingi í júní 2023 og samanstendur af 27 aðgerðum. Litið er svo á að sérhver áhersluþáttur samþykktrar stefnu í geðheilbrigðismálum til 2030 sé meginmarkmið aðgerðaáætlunarinnar og áherslur þess markmiðs séu undirmarkmið. Aðgerðir eru svo tengdar hverju meginmarkmiði.

Líta skal á aðgerðaáætlunina sem heildstæða og samþætta því víxlverkun er á milli aðgerða innan hvers áhersluþáttar og einnig á milli áhersluþátta. Markvisst innleiðingarferli liggur til grundvallar aðgerðaáætluninni og verður aðgerðum komið til framkvæmda í áföngum. Viðameiri aðgerðir byggja á hefðbundnu flæði verkefnis og því gjarnan skipt upp í undirbúning, fram-kvæmd, mat og eftirfylgd. Þróunaraðgerðum þar sem unnið er nánar með flókin úrlausnarefni eins og hlutverk, verkefni, samfellu og samhæfingu innan geðheilbrigðisþjónustu sem og við aðra velferðarþjónustu er forgangsraðað. Þá er fjölgun fagfólks og bætt mönnun grundvöllur þess að hægt sé að ráðast í frekari þróun og nauðsynlegar breytingar í geðheilbrigðismálum. Aðgerðir er lúta að geðrækt, forvörnum og snemmtækum inngripum hjá börnum og ungu fólki sem og aðkoma notenda að skipulagi og starfi geðheilbrigðisþjónustunnar eru í forgangi til framkvæmda.

Staða
Flokkur
Sýni 1-27 af 27 niðurstöðum

Aðgerð

Flokkur

Staða

Nýsköpun, vísindi og þróun í geðheilbrigðisþjónustu

Ekki hafið

Nýsköpun, vísindi og þróun í geðheilbrigðisþjónustu

Lokið

Nýsköpun, vísindi og þróun í geðheilbrigðisþjónustu

Hafið

Notendasamráð og notendamiðuð þjónusta

Hafið

Samhæfð og samþætt geðheilbrigðisþjónusta veitt af hæfu starfsfólki

Hafið

Samhæfð og samþætt geðheilbrigðisþjónusta veitt af hæfu starfsfólki

Ekki hafið

Samhæfð og samþætt geðheilbrigðisþjónusta veitt af hæfu starfsfólki

Ekki hafið