Notendasamráð og notendamiðuð þjónusta
3.A.1. Að stofna geðráð, breiðan samráðsvettvang helstu haghafa geðheilbrigðismála.
3.A.1. Að stofna geðráð, breiðan samráðsvettvang helstu haghafa geðheilbrigðismála.
Tilgangur: Að stofna sjálfstæðan og breiðan samráðsvettvang á sviði geðheilbrigðismála sem hafi ráðgefandi hlutverk fyrir heilbrigðisráðherra í stefnumótun, skipulagi og samþættingu geðheilbrigðisþjónustu.
Ábyrgðaraðili: Heilbrigðisráðuneyti.
Samstarf: Notenda- og aðstandendasamtök, heilbrigðisstofnanir, embætti landlæknis, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu, Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Háskólinn í Reykjavík, Virk, Samband íslenskra sveitarfélaga, umboðsmaður barna.
Tímabil: 2023 og starfar frá skipun.
Samfélagsáhrif: Breið, almenn samstaða um stefnu í geðheilbrigðismálum.
Lokið