Stafræn heilsa
Stafræn heilsa er starfseining innan heilbrigðisráðuneytisins sem tók til starfa í byrjun janúar árið 2026. Stafræn heilsa gegnir miðlægu þróunar- og þjónustuhlutverki á sviði stafrænna lausna fyrir allt heilbrigðiskerfið, samhæfir stafræn verkefni og styður við nýsköpun.
Verkefni Stafrænnar heilsu felast í því að:
- samhæfa öll stafræn verkefni heilbrigðisþjónustunnar á einum stað með skýrri forgangsröðun.
- leiða og styðja við nýsköpun með stofnunum og nýsköpunarsamfélaginu.
- tryggja yfirsýn og forgangsröðun, minnka sóun og efla innleiðingu stafrænnar tækni til að skapa heilbrigðiskerfi framtíðarinnar.
Hlutverk Stafrænnar heilsu felst einnig í því að taka saman og forgangsraða þeim verkefnum sem brýnust eru til að mæta þörfum skjólstæðinga til þess að bæta þjónustu og upplifun þeirra ásamt því að tengja heilbrigðisþjónustu betur við nýsköpunarsamfélagið.
Öldrunarmál