Geðrækt, forvarnir og snemmbær úrræði
1.A.1. Að efla sérhæfða þjónustu í barneignaferlinu við verðandi foreldra og foreldra með ung börn til að draga úr vanlíðan og auka foreldrahæfni þeirra.
1.A.1. Að efla sérhæfða þjónustu í barneignaferlinu við verðandi foreldra og foreldra með ung börn til að draga úr vanlíðan og auka foreldrahæfni þeirra.
Tilgangur: Að styrkja fjölskyldur í barneignaferli með fræðslu og snemmíhlutun. Að auka aðgengi foreldra/fjölskyldna að sérhæfðri geðheilbrigðisþjónustu frá meðgöngu að fimm ára aldri barnsins.
Ábyrgðaraðili: Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins (Geðheilsumiðstöð barna), Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu.
Samstarf: Heilbrigðisstofnanir, félags-og húsnæðismálaráðuneyti og mennta- og barnamálaráðuneyti.
Tímabil: 2023-2030.
Samfélagsáhrif: Öruggari foreldrar og heilbrigðari börn.
Endurmat: Árlega.
Hafið