Samhæfð og samþætt geðheilbrigðisþjónusta veitt af hæfu starfsfólki
2.C.1. Að verkefnahópur: a) skilgreini hlutverk og verkefni veitenda geðheilbrigðisþjónustu, b) greini samvinnu, samfellu og skort þar á og c) komi með aðgerðaáætlun til úrbóta.
2.C.1. Að verkefnishópur skilgreini hlutverk og verkefni veitenda geðheilbrigðisþjónustu, greini samvinnu, samfellu og skort þar á og komi með aðgerðaáætlun til úrbóta.
Tilgangur: Að hlutverk og verkefni veitenda geðheilbrigðisþjónustu séu skýr og að samvinna og samfella sé í þjónustunni.
Framkvæmd: A) Að skilgreina hlutverk og verkefni þjónustustiga (1.2.3) og heilbrigðisstofnana (m.a. byggt á fyrirliggjandi vinnu úr þjónustuferlavinnustofu í júní 2021). B) Að skilgreina ferð notandans gegnum geðheilbrigðiskerfið og koma með tillögur til úrbóta út frá hönnunarhugsun og greina núverandi samvinnu/samfellu og skort þar á. Sérstaklega þarf að huga að eftirfarandi þáttum: i) sérhæfðri geðheilbrigðisþjónustu fyrir foreldra og börn 0-6 ára, ii) yfirfærslu geðþjónustu við 18 ára aldur, iii) snemmíhlutun í geðsjúkdóma, iv) þróun geðheilbrigðisþjónustu fyrir aldraða, v) þróun geðheilbrigðisþjónustu fyrir einstaklinga með taugaþroskaröskun, vi) þróun geðheilbrigðisþjónustu fyrir einstaklinga með tvígreiningar (fíkn og alvarlegur langvinnur geðvandi), vii) þróun geðheilbrigðisþjónustu fyrir innflytjendur, viii) þróun geðheilbrigðisþjónustu fyrir fólki með langvinnan alvarlegan geðheilsuvanda. Sem leiðarljós við vinnuna skal hafa í huga þróun einstaklingsáætlana og málastjórn, eflingu samstarfs við félagsþjónustu og einföldun heildarskipulags geðheilbrigðismála.
Ábyrgðaraðili: Heilbrigðisráðuneytið.
Samstarf: Breiður hópur haghafa, fyrst of fremst stofnanir sem sinna þjónustu en einnig fulltrúar notenda þjónustunnar og aðstandenda þeirra. Sjúkratryggingar Íslands.
Tímabil: 2023 -2024. Í framhaldi frekari aðgerðir sem auka samfellu þjónustunnar.
2023: Skipun verkefnishóps. Framkvæmd A) hefst.
2024: Vinna við greiningu ferla B) hefst og lýkur með tillögum að næstu aðgerðum sem auka samfellu.
Samfélagsáhrif: Rétt þjónusta, á réttum stað, á réttum tíma. Jafnræði í aðgengi að þjónustu, óháð búsetu og bakgrunni.
Hafið