Upplýsingar fyrir kærendur

Kærur til Mannréttindadómstóls Evrópu eru sendar á þar til gerðum eyðublöðum. Heimilt er að fylla út kæruformið á íslensku og skila fylgigögnum á íslensku en ákveði dómstóllinn að taka málið til meðferðar verða samskiptin við hann að fara fram á ensku eða frönsku.

Kærueyðublað - á ensku

Hægt er að fylla inn í eyðublaðið með rafrænum hætti, en fyrst þarf að vista það (hægrismella og velja "save link as") á tölvu notanda og opna síðan með Adobe Acrobat Reader. Ef skjalið vistast með endinguna „.crdownload“ þarf að eyða henni áður en það er opnað.

Upplýsingar m.a. um þau stýrikerfi, vafra og útgáfur Acrobat sem þarf til að kærueyðublaðið opnist rétt.

Ýmsar gagnlegar upplýsingar fyrir kærendur - á íslenskuÝmsar gagnlegar upplýsingar fyrir kærendur - á ensku

Þegar búið er að fylla út alla reiti eyðublaðsins er það prentað út, undirritað og sent ásamt öllum fylgigögnum vegna málsins í bréfpósti. Mikilvægt er að gæta að því að öll skjöl sem varða málið séu send með. Þá verður að póstleggja bréfið innan 4 mánaða frá því að endanleg niðurstaða í málinu liggur fyrir. Sé ekki gætt að þessu verður kæran ekki tekin til skoðunar hjá dómstólnum.

Handbók um meðferðarhæfi kæra - á enskuÍtarlegar leiðbeiningar um hvernig skuli fylla út eyðublaðið - á enskuLeiðbeiningarmyndband um hvernig er fyllt í eyðublaðið - á enskuGagnlegur bæklingur um kærur til dómstólsins og hvernig meðferð þeirra er háttað innan dómstólsins - á enskuReglur Mannréttindadómstólsins
Sjá einnig: