Leyfisbréf kennara
Ný lög um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla tóku gildi í ársbyrjun 2020. Með þeim er lögfestur hæfnirammi um menntun og hæfni kennara og skólastjórnenda, í takt við alþjóðlega þróun, sem lýsir betur þeirri hæfni sem kennarar þurfa að búa yfir til samræmis við þá ábyrgð sem felst í starfi þeirra. Við gildistöku laganna féllu úr gildi lög um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, nr. 87/2008.
Umsókn um leyfisbréf kennara
Sótt er um á eyðublaðavef Stjórnarráðsins. Nauðsynlegt er að hafa rafræn skilríki.