TALIS-rannsóknin
TALIS rannsóknin er framkvæmd af OECD á sex ára fresti og er ætlað að fylla upp í þá mynd af skólakerfum þátttökulandanna, sem þegar hefur fengist úr öðrum alþjóðlegum rannsóknum svo sem PISA.
Aflað er gagna frá kennurum og skólastjórnendum á unglingastigi um störf þeirra, vinnuumhverfi og aðstæður. Í rannsókninni gefst kennurum, skólastjórum og öðru starfsfólki kostur á að lýsa starfsaðstæðum sínum, starfsháttum, endurgjöf, starfsþróun, starfsánægju og öðrum mikilvægum þáttum í starfi þeirra.
Hér á landi er ávallt lagt fyrir allt þýðið (ekki úrtak) til þess að ná tilskyldum þátttakendafjölda. Gerð er krafa um að 75% skóla og 75% starfsmanna taki þátt til þess að niðurstöður séu marktækar, birtar opinberlega og samanburður gerður við önnur lönd í skýrslum OECD.
Mennta- og barnamálaráðuneytið sér um framkvæmd rannsóknarinnar en nýtur aðstoðar Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu og fagfélaga Kennarasambands Íslands. Mennta- og barnamálaráðuneytið fjármagnar rannsóknina, að hluta til með styrk frá Evrópusambandinu.
Skýrslur og kynningarefni
2024
TALIS 2024 – landsskýrsla fyrir ÍslandSamantekt á helstu niðurstöðum landsskýrslunnarFrétt mennta- og barnamálaráðuneytisins um TALIS 2024Alþjóðlega skýrslan í heild sinni(Results from TALIS 2024: The State of Teaching)
(á ensku) (Insights and Interpretations)
(á ensku og íslensku) (Participant note)
(Power BI) (Statistical compendia)