Styrkir til kennslu grunnnáms í listdansi
Mennta-og menningarmálaráðuneyti veitir rekstrarstyrki til dansskóla er kenna listdans samkvæmt aðalnámskrár fyrir listdansskóla. Styrkirnir eru ætlaðir til að greiða fyrir kennslu nemenda í grunnnámi í listdansi.
Ásamt umsókn skal fylgja greinargerð þar sem fram koma upplýsingar um fyrirkomulag og aðstöðu til kennslu, faglega getu og fjárhagslega stöðu.
Umsókn
Umsókn um rekstrarstyrk til kennslu grunnnáms í listdansiUmsókn um rekstrarstyrk þurfa að fylgja upplýsingar um nemendafjölda á hverju stigi grunnnámsins, upplýsingar um kennslustundafjölda og skólagjöld. Nánari leiðbeiningar um frágang umsókna eru á umsóknareyðublaðinu