Eldri ársskýrslur ráðherra

Ársskýrslur ráðherra eru birtar samkvæmt 62. gr. laga nr. 123/2015, um opinber fjármál. Í lögunum er kveðið á um að hver ráðherra skuli birta slíka skýrslu þar sem gera skal grein fyrir útgjöldum málefnasviða og málaflokka og bera saman við fjárheimildir fjárlaga. Þá skal í ársskýrslunum gera grein fyrir fjárveitingum til einstakra ríkisaðila og verkefna og leggja mat á ávinning af þeim með tilliti til aðgerða og markmiða sem sett hafa verið fram í fjármálaáætlun.