Fylgirit með fjárlögum 2025

Yfirlit fylgirits fjárlaga eru í fyrsta sinn birt á gagnvirku skýrsluformi.

Hægt er að hala niður gögnunum úr yfirlitum 1-4 með því að smella á „export“ og velja á hvaða formi gögnin eru sótt (excel eða pdf). Einnig er í flestum skýrslunum hægt að velja ákveðið málefnasvið, málaflokk eða viðfang með því að smella á „parameters“ og haka við þau málefnasvið, málaflokk eða viðföng sem skýrslan á að sýna.

Forsendur fjárveitinga samkvæmt reiknilíkönum

Til samræmis við 19. gr. laga um opinber fjármál er í þessu yfirliti greint frá forsendum fjárveitinga sem byggjast á reiknilíkönum eða sérstökum reiknireglum, auk þess sem greint er frá fyrirhuguðum breytingum á líkönum eða reglum. Hér á eftir er lýsing á þeim reiknilíkönum, reiknireglum og helstu stikum sem notuð eru við skiptingu fjárheimildar í fjárveitingar til ríkisaðila fyrir eftirfarandi málefnasvið á útgjaldahlið:

  • 20 Framhaldsskólastig
  • 21 Háskólastig
  • 23 Sjúkrahúsþjónusta
  • 24 Heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa
  • 25 Hjúkrunar- og endurhæfingarþjónusta

20 Framhaldsskólastig

Reiknilíkan framhaldsskóla gegnir því hlutverki að skipta fé sem fjárveitingarvaldið veitir til skólanna og styðja við fagleg, fjárhagsleg og pólitísk markmið.

Við vinnslu fjárlaga árið 2025 voru gerðar breytingar sem snúa að úthlutun fjárheimilda til framhaldsskóla. Nemendatölur hafa verið uppfærðar með nýjum upplýsingum um reiknaða nemendur í fullu námi út frá fjölda vor og haust 2024, sem alls fjölgaði um 150. Þróun nemendafjölda í einstökum skólum er ólík og tekur fjárveiting breytingum í samræmi við þá þróun.

Vinna við endurskoðun reiknilíkans framhaldsskóla er langt komin. En líkanið mun halda áfram að þróast í takt við breyttar áherslur í framhaldsskólakerfinu. Meginmarkmið með endurskoðun líkans er að gera það einfaldara og gegnsærra en fyrra líkan og jafnframt að það styðji við breytingar sem orðið hafa í framhaldsskólakerfinu á síðastliðnum árum. Líkanið er samansett af eftirfarandi fjórum þáttum: Nám og kennsla, þjónustuframlag, útskriftarframlag og önnur framlög til skóla.

Við skiptingu fjárveitinga til framhaldsskóla í fjárlögum ársins 2018 voru annar og fjórði þáttur virkjaðir að hluta til og í fjárlögum ársins 2019 var talning framhaldsskólanema framkvæmd með nýju móti og framlagið tók mið af eftirfarandi fyrirkomulagi námsbrautar í stað áfanga:

**Nemandi í fullu námi.**Fram til fjárlaga ársins 2018 var miðað við einingar nemenda sem skiluðu sér til prófs í lok annar. Það kölluðust ársnemendur. Nú er miðað við fjölda nemenda þremur vikum eftir upphaf annar og 60 einingar á ári, eins og kveðið er á um í aðalnámskrá. Þar sem starfsnám er yfirleitt skipulagt þannig að starfsnámsnemendur skila síður 30 einingum á önn en bóknámsnemendur skilgreinist starfsnámsnemandi í verðflokki 4,5,6 og 7 í fullu námi, ef skráðar námseiningar hans eru 80% af fullu námi eða meira. Nemendur í fullu námi eru aldrei fleiri en höfðatala nemenda í viðkomandi skóla.

**Framlag til náms og kennslu.**Námsbrautum er skipt í 11 verðflokka og tekur framlag til hvers flokks mið af fjárheimild málefnasviðs framhaldsskólastigs á hverjum tíma. Námsbrautarlýsingar voru verðmetnar á grundvelli elda reiknilíkans þar sem m.a. var tekið tillit til launa, hópastærða, húsnæðis og tækjabúnaðar.

Eftirfarandi tafla sýnir yfirlit yfir námsbrautir sem liggja til grundvallar nemendaframlagi og á næstu síðu á eftir er tafla sem sýnir heildarfjárveitingu til framhaldsskóla ásamt nemendafjölda.

Verðflokkar námsbrauta
Verðflokkar námsbrauta frh.

21 Háskólastig

Í samræmi við áherslur stjórnvalda um aukin gæði og eflingu háskólastarfs hefur staðið yfir endurskoðun á forsendum fjármögnunar háskóla. Í september 2023 kynnti háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra til sögunnar nýtt fjármögnunarlíkan háskóla. Í kjölfarið voru drög að nýjum reglum um fjárframlög til háskóla birt í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Hinn 27. júní 2024 birtust reglur um fjárframlög til háskóla, nr. 755/2024, að teknu tilliti til þeirra umsagna sem bárust í samráðsgátt stjórnvalda. Reglurnar leystu af eldri reglur um fjárveitingar til háskóla, nr. 646/1999.

Markmið nýrra reglna er að auka gagnsæi í fjárveitingum til háskóla og hvetja til aukinna gæða í kennslu og rannsóknum. Með reglunum fylgir ítarleg greinargerð, Árangurstengd fjármögnun háskóla, sem ætlað er að varpa ljósi á þær breytur sem saman mynda nýja og árangurstengda fjármögnun háskóla.

Árangurstengd fjármögnun skiptist í þrennt: kennsluhluta, rannsóknahluta og stefnumiðaðar fjárveitingar undir yfirheitinu samfélagslegt hlutverk. Sjálfstætt starfandi háskólar sem innheimta skólagjöld fá úthlutað sem nemur 75% af því fjármagni sem þeir ella fengju vegna kennslu og rannsókna. Aðeins Háskólinn í Reykjavík innheimtir skólagjöld skólaárið 2024–2025. Vert er að nefna að þó að þessar tilteknu forsendur liggi til grundvallar árangurstengdri fjármögnun fá háskólar eina heildarupphæð frá hinu opinbera og hafa sjálf­dæmi um skiptingu fjárframlagsins innan hvers skóla. Í töflu hér að neðan má sjá hvernig framlag ríkisins árið 2025 til hvers skóla skiptist og samanburð við framlag ríkisins árið 2024.

1 Tölurnar í töflunni eru lokatölur, eftir að skerðing hefur verið reiknuð og endurúthlutað.

2 Eftir 2. umræðu fjárlaga veitti Alþingi 1 ma.kr. til háskóla vegna fjölgunar háskólanema. Helmingi þeirrar fjárveitingar var dreift samkvæmt kennsluhluta fjármögnunarlíkansins og hinum helmingnum verður dreift í upphafi árs 2025 í samráði við háskólana.

Þann 25. nóvember 2024 var ákvörðun um að fjármagna þriðja ár lögreglufræði við Háskólann á Akureyri birt. Talnagrunnur fjárlaga hafði þá verið afgreiddur og mun leiðrétting á framlögum til háskólanna verða afgreidd með millifærslum fjárheimilda.

Kennsluhluti

Kennsluhlutinn dreifir 60% af fjárveitingu ríkisins til háskóla og skiptist í framlög vegna ársverka nemenda og brautskráningarframlög. Ársverk nemenda eru skilgreind sem 60 ECTS-einingar sem nemandi lýkur með fullnægjandi árangri. Í stað 15 reikniflokka er nú notast við fjóra flokka, sbr. neðangreinda stuðla, sem leiðir til eftirfarandi verðgilda á hvert nemendaígildi eftir flokki miðað við þær forsendur sem fylgja hér að neðan til fjárlaga 2025:

Í stað 15 reikniflokka er nú notast við fjóra flokka
  • Verð í töflunni eru fyrir skerðingu framlaga vegna kennslu og rannsókna.

Flokkun námsleiða í ofangreinda reikniflokka í fjárlagafrumvarpi 2025 má sjá í töflu á næstu blaðsíðu. Í mörgum tilfellum þegar námsleiðir eru náskyldar, eins og „Enska“ og „Akademísk enska“, er aðeins önnur þeirra í upptalningunni þótt greitt sé með báðum:

Flokkur A
Flokkur B
Flokkur C
Flokkur D

Í kennsluhlutaer notast við þriggja ára meðaltal ársverka nemenda til þess að draga úr of miklum sveiflum í fjárveitingum til háskóla á milli ára. Greitt er fyrir loknar einingar. Greitt er fyrir þær einingar sem nemendur ljúka við háskóla, þ.m.t. skiptinemar við skólann. Ekki er greitt fyrir loknar einingar sem nemandi lýkur við annan skóla. Samningar ríkis við sjálfstætt starfandi háskóla kveða á um nemendaþök og ekki er greitt með nemendum umfram þak. Ársverk nemenda dreifa 70% kennsluhluta eða 42% af heild.

Brautskráningarframlög nema 30% af kennsluhluta (18% af heild) og fara greiðslur eftir tegund prófs, sbr. neðangreinda stuðla, sem leiðir til eftirfarandi verðgilda á hverja tegund útskrifta miðað við þær forsendur sem fylgja hér að neðan til fjárlaga 2025:

Flokkun brautskráningar

*Athugum að hér er um óskerta útreikninga að ræða. Sjálfstætt starfandi háskólar með skólagjöld eru skertir og skerðingin dreifist hlutfallslega jafnt til allra skóla.

Sjá nánari umfjöllun um brautskráningarframlög í greinargerð. Í töflunum hér að neðan má sjá hvernig kennsluhlutinn skiptist og forsendur um ársverk nemenda og brautskráningar hvers skóla sem framlög byggja á.

Breytur kennsluhluta

Hér koma töflur með meðaltölum skólaáranna 2021–2022 til 2023–2024.

Eftirfarandi sýnir meðalfjölda ársverka nemenda síðustu þriggja ára eftir háskóla og reikniflokki námsleiðar.

Ársverk nemenda

Eftirfarandi tafla sýnir meðalfjölda brautskráninga síðustu tveggja skólaára eftir háskóla og tegund brautskráningar. Brautskráningar úr meistaranámi og viðbótarnámi á meistarastigi hafa verið vegnar m.t.t. fjölda eininga námsleiðar, sbr. stuðla í flokkum brautskráninga.

Brautskráningar, meðaltal 2022-2023

*Athugum að hér er um óskerta útreikninga að ræða. Sjálfstætt starfandi háskólar með skólagjöld eru skertir og skerðingin dreifist hlutfallslega jafnt til allra skóla.

Rannsóknahluti

Rannsóknahlutinn dreifir 15% af fjárframlagi ríkis til háskóla. Dreifingin byggir á birtinga­tölfræði, brautskráningum doktorsnema og erlendum styrkjum. Í töflunum hér að neðan má sjá hvernig hlutinn skiptist og forsendur undirbreytna sem framlög byggjast á og hvernig framlög vegna rannsóknahluta dreifast.

Breytur rannsóknahluta

*Athugum að hér er um óskerta útreikninga að ræða. Sjálfstætt starfandi háskólar með skólagjöld eru skertir og skerðingin dreifist hlutfallslega jafnt til allra skóla.

Rannsóknahluti, upphæðir

Birtingatölfræði

Gagnagrunnur Scopus hefur upplýsingar um tímarit og bækur. Tólinu SciVal er beitt til að greina birtingar á tímabilinu 1.1.2021–31.12.2023. Greindir eru sex ólíkir mælikvarðar skv. meðfylgjandi töflu.

Birtingatölfræði

Erlendir styrkir

Þær erlendu styrkáætlanir sem liggja til grundvallar fjárveitingu 2025 eru skv. töflunni hér að neðan. Litið er til verkefna sem hefjast á tímabilinu 1.1.2019–31.12.2023.

Þetta er ekki tæmandi listi yfir erlendar sértekjur háskóla vegna styrkja en gefur vísbend­ingu um umfang. Styrkir úr þessum áætlunum eiga það sameiginlegt að bera með sér ótvíræð gæðamerki enda mikil samkeppni um þá. Framlagið í gegnum fjármögnunarlíkanið er reiknað þannig: Nordforsk-styrkjum á tímabilinu er breytt úr norskum krónum í evrur með gengi 10,5346, sem er meðalgengið á fyrrgreindu styrktímabili. Síðan eru allar evrur, sem hver skóli hefur fengið úr þessum áætlunum á tímabilinu, lagðar saman og samtalan fundin fyrir alla skólana. Þá er reiknuð út prósentuhlutdeild hvers skóla af heildinni.

Erlendir styrkir

Stefnumiðaðar fjárveitingar, samfélagslegt hlutverk

Stefnumiðaðar fjárveitingar, samfélagslegt hlutverk, dreifa fjórðungi af fjárframlagi ríkisins til háskóla í samræmi við þær forsendur sem tilgreindar eru hér að neðan.

Í töflunum hér að neðan má sjá hvernig stefnumiðaðar fjárveitingar skiptast og forsendur undirbreytna sem framlög byggjast á, sjá nánar í greinargerð.

Samfélagslegt hlutverk

Efling byggða og fjarnám, 12,8%.

Í samræmi við byggðasjónarmið og áherslur um að menntun sé gert hátt undir höfði í öllum landshlutum, sem og í samræmi við velsældaráherslur ríkisstjórnarinnar, verður fjármagni sér­staklega úthlutað til háskóla sem halda úti staðnámi á landsbyggðinni auk Háskólans á Bifröst vegna sterkra tengsla við landsbyggðina og áherslu á fjarnám.

Efling byggða og fjarnám

Sókn í STEAM, 12%.

Hlutfall háskólamenntaðra nemenda sem lokið hafa námi í raunvísindum, tæknigreinum, verkfræði, listum eða stærðfræði („STEAM“-greinum) er lægra á Íslandi en á Norður­lönd­unum. Ljóst er að þörfin fyrir fólk með þessa menntun mun aukast mikið í náinni framtíð sam­hliða frekari staf- og sjálfvirknivæðingu í samfélaginu. Markmið stjórnvalda er að hækka hlut­fall háskólamenntaðra nemenda sem ljúka námi í raunvísindum, tæknigreinum, verkfræði, list­um og stærðfræði. Markmiðið samræmist áherslu ríkisstjórnarinnar í stjórnarsáttmálanum um að búa íslenskt samfélag undir aukna tæknivæðingu, fjölga fólki með fjölbreyttan bakgrunn með tækni-, lista- og raungreinamenntun og auka samkeppnishæfni með því að hlúa að skapandi hugsun, þekkingu og vísindum. Framlagið skiptist í jöfnum hlutföllum á milli þriggja skóla, HÍ, HR og LHÍ, á grundvelli þess náms sem þeir bjóða upp á.

Stefna háskóla, 20%.

Fjárveiting er tengd við stefnumótun skólanna og fjármagn ætlað innleiðingu hennar. Í fyrstu dreifist fjármagn sem fall af úthlutun úr kennslu- og rannsóknalíkani en mun framvegis ráðast af hve vel innleiðing gengur, umfangi stefnu o.s.frv.

Stuðningur við fámennar, mikilvægar grunngreinar, 4%.

Kennsluhluti fjármögnunarlíkansins er fjöldadrifinn en ekki er raunhæft að allar náms­greinar geti staðið undir sér í slíku kerfi. Sumar námsgreinar eru fámennar en þjóðhagslega mikilvægar, fyrir ýmsar sakir.

Prósentu af heildarfjármagni verður varið í stuðning við fámennar, mikilvægar grunn­greinar. Forsendur þess að geta fengið þennan stuðning eru þær að sambærileg námsleið sé ekki kennd við annan skóla á Íslandi, að fámennið sé viðvarandi, að námsleiðin sé ekki í hæsta reikniflokki og að skólinn þiggi ekki þegar sértækan byggðastuðning í fjármögnunarlíkaninu. Fyrir fjárlagafrumvarp 2025 fellur Háskóli Íslands einn undir þessi skilyrði.

Kennsluauki, 20%.

Þessi liður dreifist í samræmi við fjölda skráðra nemenda og er ætlað að koma til móts við þá staðreynd að öllum nemendum fylgir kostnaður, ekki einungis þeim sem standast námsmat. Notast er við tölur frá Hagstofu Íslands. Útreikningar fyrir fjárlagafrumvarp 2025 miðast við fjölda skráðra nema haustið 2023.

Kennsluauki

Rannsóknarauki, 20%.

Þessi liður dreifist að tveimur fimmtu eftir ritrýndum birtingum í íslenskum tímaritum og þremur fimmtu eftir ársverkum akademískra starfsmanna. Taldar voru ritrýndar greinar í eftirfarandi íslenskum tímaritum á tímabilinu 2020–2022:

Rannsóknarauki

Ef höfundur að ritrýndri grein í einu þessara tímarita er merktur háskóla fær háskólinn stig. Þótt höfundarnir séu margir fær háskólinn aðeins eitt stig. Séu höfundar að einni grein frá þremur háskólum fær hver háskóli eitt stig.

Upplýsingar um ársverk akademískra starfsmanna eru meðaltal áranna 2020–2022.

Rannsóknarauki

Innleiðing, 11,2%.

Til að gefa háskólum færi á að aðlagast nýrri fjármögnun er sérstakt innleiðingarframlag. Framlagið fjarar út með tímanum og fjármagnið færist yfir á aðrar stefnumótandi fjárveitingar. Fyrir fjárlagafrumvarp 2025 er innleiðingin reiknuð að lokum, þegar búið er að dreifa 97,2% af heildar­framlagi. Innleiðingin jafnar alla háskóla upp að fjárlögum 2024 og dreifir rest eftir hlutföllum úr kennslu- og rannsóknarhluta. Reiknað er með að innleiðing minnki með hverju ári og dreifist á aðra liði fjármögnunarlíkans.

Innleiðing

Í töflunum hér að neðan má sjá hvernig stefnumiðaðar fjárveitingar skiptast og forsendur undirbreytna sem framlög byggjast á, sjá nánar í greinargerð.

Samfélagslegt hlutverk

23 Sjúkrahúsþjónusta

Eitt markmiða heilbrigðisstefnu til ársins 2030 er skilvirk þjónustukaup. Undir það fellur t.a.m. innleiðing á nýju fjármögnunarkerfi sjúkrahúsþjónustu, sem m.a. byggist á DRG (Diagnosis Related Groups eða flokkun samkvæmt greiningu) alþjóðlegu flokkunarkerfi sjúkdóma, til kaupa á allri sjúkrahúsþjónustu. Fyrir utan DRG-fjármögnun er sjúkrahúsþjónusta fjármögnuð með þrennum hætti: Sérstök fyrirmæli – kostnaður sem fellur til við klíníska þjónustu sem ekki fellur að DRG-kerfinu vegna ófyrirsjáanleika t.a.m. í eftirspurnarsveiflum og mismunandi legu-/meðferðartíma (dæmi: geðheilbrigðisþjónusta og bráðamóttaka). Skipulagskostnaður – nær yfir menntun, rannsóknir og fasteignir að undanskildum þeim sem falla undir DRG-fjármögnun. Önnur fjármögnun – utanaðkomandi fjármögnun eins og greiðslur vegna þjónustu við ósjúkratryggða.

DRG-kerfinu er ætlað að skapa hvata til að stytta legutíma, auka framleiðni og lækka þar með kostnað í heilbrigðiskerfinu til framtíðar. Frá og með árinu 2022 hefur klínísk starfsemi Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri verið reiknuð með tilliti til fjármagns samkvæmt þessu kerfi, þ.e. í samræmi við umfang þjónustu.

Þjónustutengd fjármögnun byggist á því að þjónusta sjúkrahúsanna er greind niður í flokka samkvæmt sjúkdómaflokkunarkerfi. Hver flokkur lýsir umfangi þeirrar þjónustu sem liggur að baki, t.d. vegna tiltekinna aðgerða eða meðferðar við tilteknum sjúkdómum. Umfangið er mælt í svokölluðum DRG einingum. Greiðslur fyrir aðgerð eða meðferð ráðast af fjölda DRG eininga þar sem einingaverðið er fast og fyrir liggur hvað margar DRG einingar hver aðgerð eða meðferð felur í sér að meðaltali.

Þjónustutengd fjármögnun hefur verið rúmlega 50% af heildarfjármögnun sjúkrahúsanna samkvæmt fjárlögum undanfarinna ára. Framleiðsluáætlanir Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri hljómuðu uppá samtals 49.301 einingu á árinu 2024 og munu áætlanir ársins 2025 byggja á þeim grunni að teknu tilliti til launa- og verðlagsbreytinga og aðhaldskröfu ársins 2025 við útreikning.

Samkvæmt samningum milli Sjúkratrygginga, Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri er greitt aukalega fyrir framleiðslu umfram framleiðsluáætlun að fullu upp að 4% en 30% fyrir framleiðslu eftir það upp að því hámarki sem ákvarðað er í fjárlögum. Fjárlagaliður framleiðslutengdrar fjármögnunar, eða svokallaður DRG-pottur, er til staðar fyrir þessi tilfelli.  Nemur potturinn 1.645 m.kr. á árinu 2025. Mikilvægt er að í kerfinu sé innbyggður hvati til að takast á við aukna eftirspurn eftir þjónustu og stuðla að skilvirkari framleiðslu. Gert er ráð fyrir áfram verði unnið að mótun framtíðarsýnar og stefnu fyrir DRG-kerfið á árinu 2025 í samráði við fjármála- og efnahagsráðuneytið og Sjúkratryggingar.

Á næstu misserum verður unnið að því að skoða möguleika þess að sjúkrahús heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni, og eftir atvikum aðrir þjónustuveitendur, verði fjármögnuð á þennan hátt.

24 Heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa

Í heilsugæslu eru tvö fjármögnunarlíkön þ.e. fyrir höfuðborgarsvæðið annars vegar og landsbyggðina hins vegar. Fjármögnunarlíkan fyrir heilsugæslur á landsbyggðinni tók gildi í ársbyrjun 2021 og er í grunninn byggt upp á sama hátt og kerfið sem verið hefur við lýði á höfuðborgarsvæðinu frá 2017, en þó með nokkrum nauðsynlegum viðbótum.

Samkvæmt kerfunum endurspeglar framlag til rekstrar hverrar stöðvar fjölda einstaklinga sem skráðir eru á stöðina auk þess sem tekið er tillit til ýmissa þátta eins og sjúkdómsbyrði og félagslegra aðstæðna einstaklinga ásamt viðmiðum sem snúa að gæðum þjónustunnar. Tilgangur kerfanna er að auka gæði og skilvirkni í þjónustu heilsugæslustöðva landsins. Kostnaður vegna húsaleigu er fyrir utan reiknilíkönin sem og gjöld vegna heimahjúkrunar, heilbrigðisþjónustu við fanga, sjúkraflutninga,  geðheilsuteyma og sérnámsstöðugildi lækna og hjúkrunarfræðinga.

Fjármögnunarlíkan heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu

Í samræmi við Heilbrigðisstefnu til ársins 2030 var nýtt átaksverkefni sem snýr að heilsuvernd og heilsueflingu eldra fólks og einstaklinga með fjölþættan og/eða langvinnan heilsuvanda bætt við árið 2020 auk þess sem fjármagn vegna félagsþarfavísitölu var aukið á árinu.

Fjármögnunarlíkönin ná til 51 heilsugæslustöðva og þar af eru 19 innan höfuðborgarsvæðislíkansins (fjórar í einkarekstri) og 32 innan landsbyggðarlíkansins. Heilsugæslustöðvarnar á landsbyggðinni heyra undir 6 heilbrigðisstofnanir og eru margar þeirra með minni stöðvar (heilsugæslusel) sem hafa takmarkaðan opnunartíma og eru starfsstöðvar á landsbyggðinni í heild sinni 56. Árið 2023 tók til starfa ný einkarekin heilsugæslustöð í Reykjanesbæ og fyrir liggur undirrituð viljayfirlýsing við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja um opnun nýrrar heilsugæslustöðvar í Suðurnesjabæ á árinu 2025. Heilsugæslu Grindavíkur hefur aftur á móti verið lokað tímabundið.

Fjármögnunarlíkan heilsugæslu á landsbyggðinni

Fjárheimildir til starfsemi heilsugæslustöðva, án fyrrgreindra þátta sem eru utan kerfis, er áætlaðir rúmlega 27 ma.kr. á árinu 2025 og þar af eru áætlaðir rúmlega helmingur fjármagnsins til dreifingar innan höfuðborgarsvæðislíkansins og tæplega helmingur til dreifingar innan landsbyggðarlíkansins. Verður fjárheimildunum dreift eftir þeim þáttum reiknilíkananna sem sjá má í meðfylgjandi töflum.

Í janúar 2022 setti heilbrigðisráðherra á laggirnar starfshóp með það að markmiði að skila tillögum að breytingum við lýsingar fjármögnunarlíkananna. Í kjölfarið voru gerðar umtalsverðar breytingar sem tóku gildi í ársbyrjun 2023. Þar má helst nefna aukið vægi félagsþarfavísitölu, breytt greiðslufyrirkomulag vegna vísitölunnar og uppfærsla á útreikningi hennar; breytt greiðslufyrirkomulag vegna túlkaþjónustu; sérstakar greiðslur vegna stofnun miðlægs lyfjakorts; ný gæðaviðmið í stað fjögurra sem féllu út og breyttur útreikningur á hlutdeild veittrar þjónustu. Þá var bætt við sérstöku virðisaukaskattsálagi fyrir einkareknar heilsugæslustöðvar sem fá ekki endurgreiddan virðisaukaskatt á sama hátt og opinbera stöðvar. Samhliða þessum breytingum var fjármagn til dreifingar innan kerfanna aukið um 1,3 ma.kr. á föstu verðlagi.

25 Hjúkrunar- og endurhæfingarþjónusta

Í gildi eru samningar milli Sjúkratrygginga Íslands við rekstraraðila hjúkrunarheimila um rekstur og þjónustu hjúkrunarheimila. Samningarnir gilda til loka mars 2025. Samningarnir taka til þjónustu í hjúkrunar- og dvalarrýmum á hjúkrunarheimilum sem ekki eru með fastar fjárveitingar. Þeir byggjast á einingarverðum sem ráðast af eftirfarandi þáttum:

  • Grunngjald fyrir dvalarkostnað, grunnheilbrigðisþjónustu og hjúkrunarþjónustu.
  • Breytileiki milli heimila byggir á hjúkrunarþyngd íbúa í hjúkrunarrýmum sem miðast við RUG-stuðul sem reiknaður er út frá vegnu meðaltali hjúkrunarþyngdar íbúa í svokölluðu RAI-mati.
  • Húsnæðisgjald reiknast út frá stærð heimilis en auk þess er álag reiknað vegna óhagræðis í rekstri minni heimila.
  • Sérstakar greiðslur eru vegna sérhæfðrar þjónustu, vegna langvinnra sjúkdóma, dvalar á sjúkrastofnunum og annarra kostnaðarútlaga sem hjúkrunarheimilin þurfa að greiða. Sér­stök ákvæði eru í samningnum um meðhöndlun þessara liða.

Rekstrar- og þjónustusamningar1

1Vakin er athygli á því að þar sem samningsupphæð vantar getur ýmist verið um tímabundinn samning að ræða eða eftir á að taka ákvörðun um endurnýjun samnings.

Rekstrargrunnur, m.kr.Áb.2024202520262027Gildir til
04 Utanríkismál
 
 
 
 
 
 
04.10 Utanríkisþjónusta og stjórnsýsla utanríkismála
6099   9999
Neytendastofa,tæknil. reglur um vörur og fjarþjónustuUTN3333Ótímab.
Samningur við Securitas um öryggisgæsluUTN57969696Ótímab.
04.20 Utanríkisviðskipti
1.1641.2341.3041.374
Samningur við ÍslandsstofuUTN1.1641.2341.3041.3742024
04.30 Samstarf um öryggis- og varnarmál
2.7302.6672.6672.667
Samningur við RíkislögreglustjóraUTN1256262622025
Samningur við Landhelgisgæslu ÍslandsUTN2.6052.6052.6052.6052026
05 Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla
 
 
 
 
 
 
05.10 Skattar og innheimta
979940940940
SkattvinnslukerfiFJR550520520520Ótímab.
TollvinnslukerfiFJR429420420420Ótímab.
05.30 Fjármálaumsýsla ríkisins
1.0841.0841.0841.084
TekjubókhaldskerfiFJR415415415415Ótímab.
Fjárhags- og mannauðskerfiFJR669669669669Ótímab.
05.40 Stjórnsýsla ríkisfjármála
2.2562.4222.4392.477
Samningur um rafræna auðkenningu .FJR1801982282282024
Aðild að NIISFJR130130130130Ótímab.
Samningur um Microsoft hugbúnaðarleyfiFJR1.7201.8581.8951.9332026
Hagstofa og Kjararannsókn.nefnd opinb.FJR141414142027
RannísFJR5050

2025
Lánaumsýsla ríkisinsFJR162172172172Ótímab.
07 Nýsköpun, rannsóknir og þekkingargreinar
 
 
 
 
 
 
07.20 Nýsköpun, samkeppni og þekkingargreinar
565050

Kvikmyndamiðstöð Íslands (endurgreiðslukerfi)MVF303030
2026
 Kvikmyndamiðstöð Íslands (viðaukasamningur)MVF26 20 20  2026 
08 Sveitarfélög og byggðamál
 





08.20 Byggðamál
241203201199
Samningar við sjö landshlutasamtök um atvinnuþ.IRN2412032011992027
09 Almanna- og réttaröryggi
 
 
 
 
 
 
09.10 Löggæsla
860910910910
NeyðarlínanDMR6877257257252026
Slysavarnarfélagið LandsbjörgDMR1731851851852026
10 Rétt. einstakl., trúmál og stjórnsýsla dómsmála
 
 
 
 
 
 
10.40 Stjórnsýsla dómsmálaráðuneytis
17171717
Íslensk ættleiðingDMR171717172024
11 Samgöngu- og fjarskiptamál






11.10 Samgöngur
13.02418.74611.17510.240
Áætlunarakstur á landsbyggðinniIRN1.5801.580

2025
Flugleið BíldudalurIRN223195

2025
Flugleið GjögurIRN7362

2025
Flugleið GrímseyIRN4511

2025
Flugleið HornafjörðurIRN3424204202782027
Flugleið HúsavíkIRN14


2024
Flugleið VestmannaeyjarIRN20


2024
Flugleið Vopnafjörður - ÞórshöfnIRN13233

2025
Rekstur Breiðafjarðarferjunnar BaldurIRN901300

2025
Rekstur Grímseyjarferjunnar SæfaraIRN240240

2025
Rekstur Hríseyjarferjunnar SævarIRN180180

2025
Rekstur Mjóafjarðarferjunnar BjörgvinIRN404025
2026
Rekstur Vestmannaeyjaferjunnar HerjólfurIRN818818818
2026
Samgöngusáttmáli á höfuðborgarsvæðinuIRN2.5056.7216.7716.8212033
Samningur um Vaktstöð siglingaIRN342342

2025
Samtök sveitarfélaga á HöfuðborgarsvæðinuIRN9063.1413.1413.1412027
Þjónustusamningur við Isavia innanlandsIRN4.6634.663

2025
11.30 Stjórnsýsla innviðaráðuneytis
84878685
Slysavarnarskóli sjómannaIRN848786852029
12 Landbúnaður
 
 
 
 
 
 
12.20 Rannsóknir, þróun og nýsköpun í landbúnaðarmál
482592592496
Matís ohf./Þjónustusamningur um matvælaranns.MAR4825925924962024
14 Ferðaþjónusta
 
 
 
 
 
 
14.10 Ferðaþjónusta
1818


FerðamálastofaMVF1818

2025
17 Umhverfismál
 
 
 
 
 
 
17.50 Stjórnsýsla umhverfismála
26262828
Samningur um grænfánaverkefniðURN262628282026
18 Menning, listir, íþrótta- og æskulýðsmál
 
 
 
 
 
 
 18.10 Safnamál   
 Reykjavíkurborg (viðhald á útilistaverkum)MVF           4           4           4   
18.20 Menningarstofnanir
1.2841.2911.2791.266
Harpa - tónlistar- og ráðstefnuhúsMVF1.2691.2761.2641.2512046
ÞjóðleikhúsiðMVF151515152028
18.30 Menningarsjóðir
363434

Rannsóknamiðstöð Íslands - RANNÍSMVF363434
2026
19 Fjölmiðlun
 
 
 
 
 
 
19.10 Fjölmiðlun
6.1056.3556.6556.915
RíkisútvarpiðMVF6.1056.3556.6556.9152027
20 Framhaldsskólastig
 
 
 
 
 
 
20.10 Framhaldsskólar
8.0978.1577.9977.921
Fisktækniskóli Íslands ehfMRN757575
2026
Keilir, frumgreinanám og annað nám á framh.sk.MRN426


2024
Kvikmyndaskóli ÍslandsMRN160160

2024
Menntaskóli BorgarfjarðarMRN3093323323322024
Myndlistarskólinn í ReykjavíkMRN1671781781782024
TækniskólinnMRN5.2185.5695.5695.5692024
Verzlunarskóli ÍslandsMRN1.7341.8311.8311.8312025
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins - Næstu skrefMRN77772028
21 Háskólastig
 
 
 
 
 
 
21.10 Háskólar og rannsóknastarfsemi
8.4469.7829.7129.641
Þjónustusamningur við Háskólann á BifröstHVIN7509439439432027
Þjónustusamningur við Háskólann í ReykjavíkHVIN5.1025.5325.5325.5322027
Listaháskóli Íslands, kvikmyndanámHVIN14114171
2026
Þjónustusamningur við Listaháskóla ÍslandsHVIN1.9942.7032.7032.7032026
Þekkingarsetur VestmanneyjaHVIN3846    46462027
Háskólafélag SuðurlandsHVIN324040402027
Þekkingarsetur SuðurnesjaHVIN283434342027
Háskólasetur VestfjarðaHVIN1491541541542023
Textílmiðstöð ÍslandsHVIN283434342027
Þekkingarnet ÞingeyingaHVIN675050502027
AusturbrúHVIN1171051051052027
23 Sjúkrahúsþjónusta
 
 
 
 
 
 
23.10 Sérhæfð sjúkrahúsþjónusta
59.23262.60966.17769.949
Samn. við Landspítala um þjónustutengda fjármögnunHRN51.50654.44257.54560.8252027
Samn. við SAK um þjónustutengda fjármögnunHRN7.7278.1678.6329.1242027
24 Heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa
 
 
 
 
 
 
24.20 Sérfræðiþjónusta og hjúkrun
28.75830.21530.21530.215
Samningur sérgreinalæknaHRN13.39014.07214.07214.0722028
Barnalæknaþjónustan ehf.HRN1581661661662024
HUH heimilislæknar utan heilsugæsluHRN137144144144Ótímab.
Samningar um myndgreininguHRN2.2002.3122.3122.3122024
Samningar um sýnarannsóknirHRN1.3841.4551.4551.455Ótímab.
Samningur um heilbrigðisþjónustu í fangelsumHRN41444444Ótímab.
AugasteinsaðgerðirHRN1261321321322024
BiðlistaaðgerðirHRN1.0001.0561.0561.0562024
Sérhæfð heimahjúkrun barnaHRN424444442024
Samningar um tannlækningarHRN9.71510.19210.19210.1922029
Ljósmæður í heimaþjónustuHRN5655985985982024
24.30 Sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og talþjálfun
8.5058.9898.9898.989
Samningar um sjúkraþjálfunHRN7.6808.1188.1188.1182029
Samningar um iðjuþjálfunHRN394141412024
Endurhæfing fatlaðra KópavogiHRN1151211211212025
TalmeinafræðingarHRN5615935935932024
Þverfagleg endurhæfing - Þraut hf.HRN1091161161162023
24.40 Sjúkraflutningar
3.5713.7903.7903.790
Samningur um sjúkraflugHRN6506806806802026
Samningar um sjúkraflutningaHRN2.6102.7862.7862.7862027
Samn. við Rauða kross Íslands um útvegun sjúkrabifreiðaHRN3113243243242024
24.10 Heilsugæsla
6.3867.0337.0337.033
Samningur um þjónustu heilsugæslu, LágmúlaHRN6667327327322024
Læknavaktin samningur um vaktþjónustu .HRN8198318318312024
Samningur um þjónustu heilsugæslu, SalastöðinHRN7087787787782024
Samningur um þjónustu heilsugæslu, HöfðiHRN1.0241.1521.1521.1522024
Samningur um þjónustu heilsugæslu, Höfði (Suð)HRN1001071071072024
Samningur um þjónustu heilsugæslu,UrðarhvarfHRN4725195195192024
Samningur um heimahjúkrun í ReykjavíkHRN2.5982.9152.9152.9152024
25 Hjúkrunar- og endurhæfingarþjónusta
 
 
 
 
 
 
25.10 Hjúkrunar- og dvalarrými
49.68555.42055.42055.420
Akureyri, leiga á hjúkr.heimiliHRN1371421421422052
Bolungarvík, leiga á hjúkr.heimiliHRN293030302054
Borgarbyggð, leiga á hjúkrunarheimiliHRN1011041041042052
Múlaþing, leiga á hjúkrunarheimiliHRN909393932054
Garðabær, leiga á hjúkrunarheimiliHRN1701761761762052
Hafnarfjörður, leiga á hjúkrunarheimiliHRN1621691691692058
Ísafjarðarbær, leiga á hjúkrunarheimiliHRN889191912054
Mosfellsbær, leiga á hjúkrunarheimiliHRN919595952052
Reykjanesbær, leiga á hjúkrunarheimiliHRN1671731731732053
Safnatröð, leiga á hjúkrunarheimiliHRN1031071071072058
Samningar SÍ við hjúkrunarheimilinHRN46.67552.23752.23752.2372025
Sóltún, ReykjavíkHRN1.8742.0032.0032.0032027
25.20 Endurhæfingarþjónusta
6.3526.9806.5806.580
SÁÁHRN1.4791.6741.5291.5292024
HL stöðvarnar, Reykjavík og AkureyriHRN848989892024
ReykjalundurHRN2.5342.6622.6622.6622024
HleinHRN2382502502502024
Heilsustofnun NLFÍ Hveragerði, endurhæfingHRN1.1291.1961.1961.1962024
Samningur um sjúkraþjálfun fyrir fatlaðaHRN1141211211212025
Endurhæfingarstöð Styrktarfélags lamaðraHRN3233773423422023
LjósiðHRN3294722772772024
AlzheimersamtökinHRN819686862024
ParkinsonsamtökinHRN404328282024
29 Fjölskyldumál
 
 
 
 
 
 
29.40 Annar stuðningur við fjölskyldur og börn
81848484
Samingur um rekstur sambýlis á Kópavogsbr.FRN818484842028
35 Alþjóðleg þróunarsamvinna
 
 
 
 
 
 
35.10 Þróunarsamvinna
847847847847
GRÓ Þekkingarmiðstoð þróunarríkja - framlagUTN8478478478472023
Samtals

210.468
230.764
226.406
229.267

1Vakin er athygli á því að þar sem samningsupphæð vantar getur ýmist verið um tímabundinn samning að ræða eða eftir á að taka ákvörðun um endurnýjun samnings.

Styrktar- og samstarfssamningar1

 

Rekstrargrunnur, m.kr.Áb.2024202520262027Gildir til
04 Utanríkismál
 
 
 
 
 
 
04.10 Utanríkisþjónusta og stjórnsýsla utanríkismála
79767018
Mannréttindaskrifstofa Íslands, samstarfssamningurUTN4


2024
Samstarfssamningur við AlþjóðamálastofnunUTN66

2025
Fulbright stofnunin á Ísl., norðurslóðasamstarfUTN43332026
Norðurslóðanet ÍslandsUTN292929
2026
Norska utanríkisrn., rannsókn á norðurslóðamálumUTN212222
2026
Hringborð Norðurslóða - samkomulag um samstarf.UTN151515152026
07 Nýsköpun, rannsóknir og þekkingargreinar
 
 
 
 
 
 
07.20 Nýsköpun, samkeppni og þekkingargreinar
369394294141
Háskólinn á Bifröst ses.MVF2020

2026
Hönnunarsafn Íslands.MVF1010

2025
Íslandsstofa (Skapandi Ísland).MVF3535

2025
Miðstöð hönnunar og arkitektúrs (Feneyjartvíæringurinn)MVF4040

2025
Miðstöð hönnunar og arkitektúrs (Hönnunarstefna)MVF530   
Auðna Tæknitorg.HVIN505050502024
Tæknisetur þjónustusamningurHVIN118118118
2026
Klak InnovitHVIN202020202026
FabLab - Háskólafélag Suðurlands SelfossiHVIN55552026
FabLab - Þekkingarsetur VestmannaeyjaHVIN121212122026
FabLab - Höfn í Hornarfirði.HVIN55552026
FabLab - NeskaupstaðurHVIN55552026
FabLab - Þekkingarnet Þingeyinga HúsavíkHVIN55552026
FabLab - Fabey AkureyriHVIN55552026
FabLab - Hátæknisetur SauðárkrókiHVIN55552026
FabLab - Menntaskólinn á Ísafirði.HVIN55552026
FabLab - AkraneskaupstaðurHVIN55552026
FabLab - Fjölbrautaskólinn í BreiðholtiHVIN141414142026
FabLab - Fjölbrautaskóli SuðurnesjaHVIN55552026
08 Sveitarfélög og byggðamál
 
 
 
 
 
 
08.20 Byggðamál
751620623424
Byggðaáætlun, styrktarsamningar v/ aðgerð A.9IRN151515
2026
Byggðaáætlun, styrktarsamningar v/ aðgerð C.1IRN135135170
2026
Byggðaáætlun, styrktarsamningar v/aðgerð A.10.IRN201510
2026
Innviðauppbygging í Langanesbyggð, staða verkefnisst.IRN88

2025
Rannsóknasetur í byggða- og sveitarstjórnarmálum.IRN1212

2025
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, styrktarsamningurIRN33

2025
Sóknaráætlanir landshlutaIRN5584324284242029
09 Almanna- og réttaröryggi
 
 
 
 
 
 
09.10 Löggæsla
12121212
Rannsóknarmiðstöð H.Í í jarðskjálftafræðum.DMR12121212Ótímab.
10 Rétt. einstakl., trúmál og stjórnsýsla dómsmála
 
 
 
 
 
 
10.20 Trúmál
4.3434.5074.5074.507
Þjóðkirkja ÍslandsDMR4.3434.5074.5074.5072034
12 Landbúnaður
 
 
 
 
 
 
12.10 Stjórnun landbúnaðarmála
18.35218.93718.81218.812
Búnaðarlagasamningur.MAR1.7811.8421.8341.8342026
Samningur um starfsskilyrði framleiðenda garðyrkjuafurðaMAR1.1111.1491.1441.1442026
Samningur um starfsskilyrði nautgriparæktarMAR8.9349.2159.1509.1502026
Samningur um starfsskilyrði sauðfjárræktarMAR6.5266.7326.6856.6852026
13 Sjávarútvegur og fiskeldi
 
 
 
 
 
 
13.20 Rannsóknir, þróun og nýsköpun í sjávarútvegi
3333
Framlag til Hafréttarstofnunar.MAR3333Ótímab.
14 Ferðaþjónusta
 
 
 
 
 
 
14.10 Ferðaþjónusta
243252125

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins ehf. (Hæfnissetur ferðaþj.)MVF506060 2026
Hagstofa Íslands (Ferðaþjónustureikningar)MVF1515

2025
Íslandsstofa (Film in Iceland)MVF    15    1515 2026
Íslenski ferðaklasinnMVF1010

2025
Íslandsstofa (Nature Direct - Your gateway to Iceland)MVF 15 15  2025
Katla jarðvangur ses.MVF1010  2025
 Reykjanes jarðvangur ses.MVF1010  2025
 Samtök um sögutengda ferðaþjónustu MVF5 55 2026
 Slysavarnafélagið Landsbjörg (Safetravel)MVF454545 2026
 Sýslumaðurinn á höfuðb. (eftirlit með skammtímaleigu)MVF5055  2025
Vegagerðin (Varða)MVF82

2025
 VestfjarðarstofaMVF1010  2025
15 Orkumál
 
 
 
 
 
 
15.10 Stjórnun og þróun orkumála
85858585
Orkubú Vestfjarða, framl.kostn.raforku, FlateyURN171717172026
RARIK, framl.kostn. Raforku, GrímseyURN606060602026
RARIK, framl.kostn. Raforku, Grímsstaðir.URN88882026
16 Markaðseftirlit og neytendamál      
 16.10 Markaðseftirlit og neytendamál        27       30   
Hagsmunasamtök heimilanna MVF         3         6          2025
Neytendasamtökin MVF       24       24          2025
18 Menning, listir, íþrótta- og æskulýðsmál
 
 
 
 
 
 
18.10 Safnamál
74288497278
Akureyrarbær (Amtsbókasafnið)MVF1010

2025
Rekstrafélagið Gríma (Listasafns Sigurjóns Ólafssona)MVF202020
2026
Samband íslenskra myndlistarmannaMVF 3333 332027
Síldarminjasafn Íslands ses.MVF171717
2026
Skagafjörður (Menningarhús í Skagafirði)MVF272094282462027
18.20 Menningarstofnanir
14519211010
Edinborgarhúsið  MVF  1010 2026
Fischersetur á SelfossiMVF444
2026
F. Chopin tónlistarfélagið á Íslandi    MVF11  2025
Hagstofa Íslands (Hagtölur menningar og skapandi gr.)MVF  25 25 2026
Listahátíð í ReykjavíkMVF515151
2026
MetamorPhonics á Íslandi ses. tónlistarsmiðjaMVF 11 2026
Sinfóníuhljómsveit SuðurlandsMVF 10 10 10 2027
SnorrastofaMVF5252

2025
Stórsveit Reykjavíkur.MVF789
2026
Vesturfarasetrið sesMVF3030

2025
18.30 Menningarsjóðir
381372161133
Almannarómur (Máltækni)MVF30255 2026
Almannarómur (Máltækniáætlun 2)MVF125 1251001252027
Bandalag íslenskra leikfélagaMVF7888 2027
List án landamæraMVF66

2025
Rithöfundasamband ÍslandsMVF555
2026
Rithöfundasamband Íslands (Skáld í skólum)MVF 3 33  2026
Sinfóníuhljómsveit NorðurlandsMVF88

2025
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum ClarinMVF404040
2026
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum (M.is)MVF83  2025
TónlistarmiðstöðMVF150150

2025
18.40 Íþrótta- og æskulýðsmál
1.1671.1851.1481.113
Afrekssjóður ÍSÍMRN3923923923922024
Bandalag íslenskra skáta.MRN434343432024
Bridgesamband Íslands.MRN141212122027
Ferðasjóður ÍSÍ.MRN1271271271272024
Háskóli Íslands - íslenska æskulýðsrannsókninMRN15   35 35 2026 
Íþrótta- og ólympíusamband ÍslandsMRN2722722722722024
Íþróttasamband fatlaðraMRN404040402024
KFUM og KFUK á Íslandi.MRN404040402024
Lyfjaeftirlit ÍslandsMRN3838

2025
Landssamband æskulýðsfélaga.MRN121212122024
Skáksamband ÍslandsMRN393939392024
Ungmennafélag Íslands.MRN1361361361362024
18.50 Stjórnsýsla menningar og viðskipta 108108   
Rannsóknarsetur verslunarinnar ses.MVF88  2025
Staðlaráð ÍslandsMVF101101  2025
19 Fjölmiðlun      
19.10 Fjölmiðlun  15 15 15  
 Háskóli Íslands (BA-nám í blaða- og fréttamennsku) 1515152027
20 Framhaldsskólastig
 
 
 
 
 
 
20.10 Framhaldsskólar
9181415959
Dansrækt JSB.MRN53


2025
Fjölsmiðjan á Akureyri.MRN55552024
Fjölsmiðjan í KópavogiMRN333333332024
Fjölsmiðjan SuðurnesjumMRN55552024
Iðan fræðslusetur.MRN8282  2024
Klassíski listdansskólinn.MRN55


2024
Listdansskóli ÍslandsMRN61


2025
Ljósmyndaskólinn ehf.MRN40


2024
Lýðskólinn á FlateyriMRN60


2024
Menntaskólinn í tónlist.MRN475


2024
Samband íslenskra framhaldsskólanema (SÍF)MRN161616162028
Slysavarnaskóli sjómanna,MRN6


2023
Verkiðn, Skills Ísland - keppni í iðn-& verkgr.MRN26


2024
20.20 Tónlistarfræðsla 729776   
 Tónlistarnám á vegum sveitarfélagaMRN 729776   2024
21 Háskólastig
 
 
 
 
 
 
21.10 Háskólar og rannsóknastarfsemi
10511110295
Þekkingarsetur Kaupvangi, Vopnafirði.HVIN141414142023
Þekkingarsetur Nýheimar sesHVIN283737372023
Menntastofnun Íslands og Bandaríkjanna.HVIN322929292026
Landssamtök íslenskra stúdentaHVIN121212122028
Samband íslenskra námsmanna erlendisHVIN33332027
Skapa.is - NýsköpunargáttHVIN22

2025
Nýmennt - Inspiring the futureHVIN14147
2026
22 Önnur skólastig og stjórnsýsla mennta- og barnamá
 
 
 
 
 
 
22.20 Framhaldsfræðsla og menntun óflokkuð á skólast
353363


Farskóli Norðurlands vestraFRN3233

2025
Framvegis, miðstöð um símenntun í ReykjavíkFRN2728

2025
Fræðslumiðstöð Vestfjarða.FRN3132

2025
Fræðslunet Suðurlands.FRN4849

2025
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum.FRN4546

2025
Mímir, símenntunFRN5860

2025
Símenntunarstöð á VesturlandiFRN4142

2025
Símenntunarstöð EyjafjarðarFRN4345

2025
Viska, miðst. fræðslu- og símenntunar, VestmannaeyjuFRN2829

2025
22.10 Leikskóla- og grunnskólastig
169381818
UNICEF samningur um RéttindaskólaMRN2020

2024
Grænfánaverkefni - Landvernd.MRN181818182027
Heimili og skóli - starfsemiMRN2121

2024
Skóla- og frístundasvið Rvk, málþroski og læsiMRN6


2024
Fjölís - ljósritun á öllum skólastigumMRN104


2024
29 Fjölskyldumál
 
 
 
 
 
 
29.40 Annar stuðningur við fjölskyldur og börn
694621277277
Samn. vegna aðstoðar við þolendur ofbeldis og athvörfFRN319277277277Ótímab.
Samtök sveitarfélaga á Suðurlandi ART verkefniMRN30


2024
Hfj. verkefni um farsæld barna á flóttaMRN4040

2024
ÍSÍ um svæðisbundinn stuðning við íþróttahéruð.MRN200200

2025
 Samband sveitarfélaga á Norðurlandi - farsæld barna MRN15    15         2025
 Vestfjarðarstofa - farsæld barnaMRN15 15  2025
 Samtök sunnlenskra sveitarfélaga - farsæld barna MRN1515   2025
 Samtök sveitarfélaga á höfuðb. - farsæld barna MRN15 15   2025
 Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum - farsæld barna MRN1515   2025
 Samband sveitarfélaga á Austurlandi - farsæld barnaMRN1515  2025
 Samband sveitarfélaga á Norðurlandi eystra - farsæld barnaMRN 1515  2025
30 Vinnumarkaður og atvinnuleysi
 
 
 
 
 
 
30.10 Vinnumál og atvinnuleysi
1.084555555555
VIRK starfendurhæfingarsjóðurFRN1.084555555555Ótímab.
30.20 Vinnumarkaður
71747474
Hagstofa Íslands, samningur um vinnumarkaðsrannsóknirFRN71747474Ótímab.
32 Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála
 
 
 
 
 
 
32.20 Jafnréttismál
84845252
Kvenréttindafélag Íslands, fræðsla um jafnrétti kynjanna FOR121212122027
Miðstöð menntunar og skólaþjónustuFOR66

2025
Samband íslenskra sveitarfélaga – forvarnarfulltrúiFOR1616

2025
Samtökin 78FOR404040402027
Women Political Leader - Heimsþing kvenleiðtogaFOR1010

2025
32.40 Stjórnsýsla félagsmála
14151515
Hagstofa Íslands, samningur um gerð félagsvísaFRN14151515Ótímab.
35 Alþjóðleg þróunarsamvinna
 
 
 
 
 
 
35.10 Þróunarsamvinna
6.1725.8155.2995.288
Jarðhitasamstarf við Alþjóðabankannn - ESMAPUTN585555552023
Jafnréttissamstarf við Alþjóðabankann - UFGE.UTN555555552023
Mannréttindasamstarf við Alþjóðabankannn - HRIE .UTN582828282024
Samstarf um bláa hagkerfið Alþjóðabankinn - PROBLUE .UTN555555552024
UNRWA (Palestínuflóttamannaaðstoð S.þj.)UTN1101101101102028
WCLAC (Women‘s Centre for Legal Aid and Counseling)UTN141414142028
PMRS (Palestinian Medical Relief Society ).UTN141414142028
WFP (Matvælaáætlun S.þj.).UTN2002002002002028
WFP (Matvælaáætlun S.þj.) - Sýrland.UTN505050502026
OCHA(Office f. Coordination of Humanitarian Affairs) UTN1201201201202028
UNFPA (Mannfjöldasjóður S.þj.) - Jemen.UTN404040402025
WFP (Matvælaáætlun S.þj.) - Jemen.UTN404040402025
CERF (Neyðarsjóður Sameinuðu þjóðanna)UTN1201201201202028
OCHA svæðasjóður (CBPF) - (Lebanon Humanitarian fund)UTN606060602026
OCHA svæðasjóður (CBPF) - (Syria Humanitarian fund)UTN606060602026
UNHCR (Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna)UTN2702002002002028
UNFPA (Mannfjöldasjóður SÞ) - SýrlandUTN302828282024
OCHA (United Nations Office for the Coordination ofUTN404040402024
UNHCR (Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna) - AfgUTN404040402024
WFP (Matvælaáætlun S.þj.) - Afganistan.UTN404040402024
ICRC (Alþjóðaráðs Rauða krossins)UTN303030302024
Styrktarfélagið Broskallar, Menntun í ferðatösku.UTN205

2025
Stelpur Rokka - Stelpur rokka áfram í Tógó.UTN3


2024
Rammasamn. Barnaheilla um mannúaðaraðstoðUTN70


2024
Rammasamn. Barnaheilla um verk. þróunarsamvinnu.UTN60


2024
Rammasamn. Hjálparstarf kirkjunnar - þróunarsamv.UTN90


2024
Rammasamn. Hjálparstarf kirkjunnar - mannúðaraðstoðUTN50


2024
Rammasamn. Rauða krossins - mannúðaraðstoðUTN140


2024
Rammasamn. Rauða krossins - þróunarsamvinnaUTN130


2024
Rammasamningur SOS barnaþorp - þróunarsamvinnaUTN90


2024
Rammasamn. við landsnefnd UNICEF um kynningarmályUTN1212

2025
Rammasamn. Félag S.þj. á Íslandi um kynningarmál UTN1212

2025
Rammasamn. við landsnefnd UN Women - kynningarm.UTN1515

2025
Rammasamningar við frjáls félagasamtökUTN
648692693Ótímab.
GEF - Global Equality FundUTN1001001001002028
GCF (Green Climate Fund)UTN861101101102024
UNDP (Þróunaráætlun S.þj.) Climate PromiseUTN707070702023
Aðlögunarsjóðurinn (Adaptation fund).UTN858585852023
SE4ALL (UNOPS).UTN555555552023
ITC (International Trade Centre ) - She tradesUTN141414142028
UNFPA (Mannfjöldasjóður S.þj.) afnám kynfæralimlesti UTN282828282025
Systematic Observation Financial Facility (SOFF).UTN282828282024
Eyðimerkursamningur Sameinuðu þjóðanna (UNCCD)UTN77772023
UN - DPPA (Department of Political Affairs)UTN202020202026
UN Women - kjarnaframlagUTN1801801801802023
UN Women - eyrnamerkt JórdaníuUTN505050502024
UNICEF (Barnahjálp S.þj )UTN130130130130Ótímab.
UNICEF/UNFPA - FGMC sjóður.UTN282828282025
UNICEF - jafnréttissjóðurUTN282828282024
FAO (Matvæla- og landbúnaðarstofnunar S.þj.)UTN15151515Ótímab.
IOM (The International Organization for Migration) -UTN2222Ótímab.
UNFPA (Mannfjöldasjóður S.þj.) - kjarnaframlagUTN210210210210Ótímab.
OHCHR (High Commissioner for Human Rights)UTN808080802023
UNDP (Þróunaráætlun S.þj.)UTN30303030Ótímab.
UNESCO (Menningarmálastofnun S.þj. )UTN515151512023
Heimsmarkmiðasjóður atvinnulífsins - ýmsir samningarUTN1257325132026
Malaví - Mangochi hérað grunnþjónustaUTN2502502502502023
Sierra Leone - UNICEF WASH í sjávarbyggðumUTN267267

2026
Nkhotakota - héraðsverkefni.UTN5505505505502027
Úganda - Namayingo byggðarþróun.UTN3503503503502023
Skólamáltíðir í Malaví WFPUTN808080802024
Malaví - UNFPA.UTN909090902026
Verkefni UNFPA í Úganda vegna fæðingarfistilsUTN707070702026
Úganda - Buikwe byggðaþróunUTN420200

2025
NAI, árlegt stofnframlagUTN13131313Ótímab.
UNICEF NEXUS ÚgandaUTN989898982023
Sierra Leone - Alþjóðabankinn - bláa hagkerfiðUTN505050502024
Skólamáltíðir í Sierra Leone WFP.UTN626262622024
UNFPA - (Mannfjöldasjóður S.þj.) UTN1401401401402025
ENDEV - MalavíUTN60


2024
Mannréttindastofnun Malaví - samningur.UTN16


2024
UNHCR (Flóttamannastofnun S.þj.) - JemenUTN505050502026
UNHCR (Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna) - JemUTN404040402025
WFP (Matvælaáætlun SÞ) - Mið-SahelUTN303030302023
UNHCR (Flóttamannastofnun S.þj.) - Mið-SahelUTN303030302023
OCHA svæðasjóður (CBPF) - Mið-Sahel.UTN303030302023
OCHA svæðasjóður (CBPF) - Palestína UTN253030302023
 OCHA svæðasjóður (CBPF) - JemenUTN40   4040    402025
 OCHA svæðasjóður (CBPF) - AfganistanUTN40 4040402024
 ABC Barnahjálpin-Viðbygg. Ecolo ABC Children's Aid UTN 20115 2026
 Aurora velgarðarsjóður-Atvinnuhæfni ungs fólks, SíerraUTN 117  2025
 CLF á Íslandi-Forvarnir gegn barnahjónaböndum, Úgan.UTN21   2025
 SÍK - Eflum nemendur og kennara, KeníaUTN5   2025
 SÍK - Tækifæri til náms, KeníaUTN164   2025
 Aurora velgarðarsjóður - Hönnun að betri lífsgæðuUTN2   2025
 Barnaheill - Kynningarefni í Síerra Leóne og LíberíuUTN2   2024
 Landssamband ungmennafélaga - Ungmennafulltrúi S.þj.UTN2   2025
 SOS barnaþorpin - Líf barna í Nepal, ÍslandUTN1   2024
 Þroskahjálp - Fötluð börn í Mangochi, MalavíUTN888 2026
 OCHA svæðasjóður (CBPF) - Líbanon (Human. Fund)UTN 606060602025
 OCHA svæðasjóður (CBPF) - Súdan (Human. Fund)UTN303030302025
 WFP (Matvælaáætlun S.þj.) - SúdanUTN404040402025
 UNDP - Global Progr. on Rule of Law and Human R.UTN505050502028
Samtals
 
37.164
36.015
33.209
32.286
 

1Vakin er athygli á því að þar sem samningsupphæð vantar getur ýmist verið um tímabundinn samning að ræða eða eftir á að taka ákvörðun um endurnýjun samnings.

Allar upphæðir eru í milljónum króna