18 Menning, listir, íþrótta- og æskulýðsmál
Skilgreining málefnasviðs
Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð menningar- og viðskiptaráðherra, mennta- og barnamálaráðherra og umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Það skiptist í fimm málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2023–2025. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun.
Heildaryfirlit útgjalda og breytingar eftir tilefnum
Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.
Heildargjöld málefnasviðs 18 Menning, listir, íþrótta- og æskulýðsmál árið 2025 eru áætluð 24.075,4 m.kr. og aukast um 1.333,4 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2024, eða sem svarar til 6,1%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 2.253,3 m.kr. milli ára, eða sem svarar til 10,3%.
Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun, t.a.m. þannig að nýju útgjaldasvigrúmi hafi að einhverju leyti verið jafnað á móti aðhaldsmarkmiði. Aðhaldsmarkmiðið felur m.a. í sér sértækar afkomubætandi aðhaldsráðstafanir á málefnasviðum og er nánar fjallað um þær í kafla 5 Gjöld ríkissjóðs.
Hagræn skipting útgjalda
Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2023 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.
18.10 Safnamál
Starfsemi málaflokksins er í höndum ríkisins, sveitarfélaga, sjálfseignarstofnana og annarra aðila. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.
Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2025 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2024. Þannig endurspegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
|
Helstu verkefni 2025 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu til verkefnis |
|
Markmið 1: Að almenningur hafi betri aðgang að menningar- og náttúruarfi þjóðarinnar |
||
|
Unnið að stefnumótun um rafræna langtímavörslu skjala. |
Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
Innan ramma |
|
Hugað að auknu samstarfi og/eða sameiningu safna. |
Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
Innan ramma |
|
Vinna að uppbyggingu nýs sýningarhúsnæðis fyrir Náttúruminjasafn Íslands. |
Menningar- og viðskiptaráðuneyti og Náttúruminjasafn Íslands |
Innan ramma |
|
Áframhaldandi uppbygging menningarhúsa á landsbyggðinni, efling og uppbygging sögustaða með hliðsjón af ferðamálastefnu og tillögu til þingsályktunar þar að lútandi. |
Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
Innan ramma |
|
Frumathugun í húsnæðismálum Listasafns Íslands. |
Menningar- og viðskiptaráðuneytiog Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir |
Innan ramma |
|
Markmið 2: Efla vernd á menningararfi þjóðarinnar í samræmi við alþjóðlegar kröfur |
||
|
Vinna samkvæmt áætlun um uppbyggingu og endurnýjun varðveislurýma fyrir safnkost í ríkiseigu. |
Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
Innan ramma |
|
Stuðningur vegna reksturs varðveisluhúsnæðis Þjóðskjalasafns Íslands og kaupa á búnaði. |
Þjóðskjalasafn Íslands |
180 m.kr. |
|
Innleiðing á viðbragðsáætlunum safna vegna loftslags- og náttúruvár. |
Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
Innan ramma |
|
Markmið 3: Efla skráningu og rannsóknir safnkosts |
||
|
Meta stöðu skráninga og stafvæðingar safnkosts með hliðsjón af forgangsröðun stofnana og aðgengi almennings. |
Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 6.115,4 m.kr. og lækkar um 29,9 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 311,4 m.kr.
Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins hækkar um 180 m.kr. vegna nýs varðveisluhúsnæðis Þjóðskjalasafns Íslands. Framlagið skiptist annars vegar í 80 m.kr. vegna húsaleigu á varðveisluhúsnæðinu og hins vegar í 100 m.kr. tímabundið framlag til eins árs til kaupa á hillukerfum fyrir varðveisluhúsnæði að Sundaborg 11–13 sem tekið er á leigu vegna aukningar í skjalaskilum hjá skilaskyldum stofnunum.
- Fjárheimild málaflokksins er aukin varanlega um 10 m.kr. vegna framlags til Kvikmyndasafns Íslands í tengslum við stafvæðingu safnsins.
- Fjárheimild málaflokksins hækkar um 60 m.kr. þar sem tímabundið framlag vegna framkvæmdaverkefna gengur til baka. Framlagið er millifært af málaflokki 18.20 Menningarstofnanir yfir á málaflokk 18.10 Safnamál.
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 80,1 m.kr. í samræmi við áætlun um rekstrartekjur ríkisaðila.
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 35 m.kr. þar sem tímabundin framlög ganga til baka. Framlögin komu af tímabundnu fjárfestingarátaki ríkisstjórnarinnar til menningarmála.
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 55 m.kr. þar sem tímabundin framlög samkvæmt tilmælum fjárlaganefndar í ýmis verkefni tengd safnamálum falla niður.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 104,8 m.kr. sem er skipt hlutfallslega niður á stofnanir og verkefni málaflokksins.
18.20 Menningarstofnanir
Starfsemi málaflokksins nær yfir opinberar stofnanir á sviði lista og menningar, s.s. Þjóðleikhúsið, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Íslenska dansflokkinn, Kvikmyndamiðstöð Íslands og Minjastofnun Íslands. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.
Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2025 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2024. Þannig endurspegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
|
Helstu verkefni 2025 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu til verkefnis |
|
|
Markmið 1: Efla aðgengi og auka aðsókn að menningarstofnunum |
|||
|
Bætt aðgengi að íslenskum kvikmyndaarfi með samvinnu Kvikmyndamiðstöðvar Íslands og Kvikmyndasafns Íslands. |
Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
Innan ramma |
|
|
Unnið að aukinni samþættingu barnamenningar við starf menningarstofnana og miðstöðva listgreina með hliðsjón af þingsályktun um eflingu barnamenningar. |
Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
Innan ramma |
|
|
Markmið 2: Vernda menningararf þjóðarinnar með markvissari hætti |
|||
|
Efla skráningu menningarminja í landinu, bæði út frá skilgreindum forgangssvæðum og áherslusvæðum, þ.m.t. svæða sem eru utan skráningarskyldra svæða sveitarfélaga vegna skipulagsgerðar, þjóðlendna og friðlýstra svæða. |
Minjastofnun Íslands |
Innan ramma |
|
|
Efla tækniinnviði, upplýsingaveitur og miðlun gagna á sviði skráningar menningarminja, þ.m.t. gagnagrunn. |
Minjastofnun Íslands |
Innan ramma |
|
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 8.704,1 m.kr. og hækkar um 143,6 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 446,9 m.kr.
Ekki er um teljandi breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins er aukin varanlega um 75 m.kr. vegna stofnunar þjóðaróperu, sbr. frumvarp til laga um breytingar á lögum um sviðslistir, nr. 165/2019.
- Fjárheimild málaflokksins er aukin varanlega um 20 m.kr. vegna framlags til Kvikmyndamiðstöðvar Íslands vegna áframhaldandi verkefna samkvæmt kvikmyndastefnu.
- Fjárheimild málaflokksins hækkar um 268,9 m.kr. í samræmi við áætlun um rekstrartekjur ríkisaðila.
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 60 m.kr. þar sem tímabundið framlag til eins árs vegna framkvæmdaverkefna gengur til baka. Framlagið er millifært af málaflokki 18.20 Menningarstofnanir yfir á málaflokk 18.10 Safnamál.
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 40 m.kr. þar sem tímabundin framlög samkvæmt tilmælum fjárlaganefndar í ýmis verkefni tengd menningarstofnunum falla niður.
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 50 m.kr. þar sem tímabundið framlag gengur til baka. Framlagið kom af tímabundnu fjárfestingarátaki ríkisstjórnarinnar til menningarmála.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 88,3 m.kr. sem er skipt hlutfallslega niður á stofnanir og verkefni málaflokksins.
18.30 Menningarsjóðir
Starfsemi málaflokksins felst í fjárveitingum ríkisins sem er úthlutað í gegnum lögbundna sjóði. Helstu sjóðir málaflokksins eru Fornminjasjóður, Húsafriðunarsjóður, launasjóðir listamanna, Kvikmyndasjóður, Myndlistarsjóður, Bókasafnssjóður höfunda, Stuðningur við útgáfu bóka á íslensku, Starfsemi áhugaleikfélaga, Starfsemi atvinnuleikhópa (sviðslistasjóður), Tónlistarsjóður, Barnamenningarsjóður Íslands, Bókasafnasjóður og heiðurslaun listamanna. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.
Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2025 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2024. Þannig endurspegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
|
Helstu verkefni 2025 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu til verkefnis |
|
Markmið 1: Efla stöðu íslenskrar tungu í samfélaginu |
||
|
Unnið samkvæmt aðgerðaáætlunum í málefnum íslenskrar tungu og táknmáls. |
Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
Innan ramma |
|
Hækkun til starfslaunasjóða listamanna og tveir nýir starfslaunasjóðir verða að veruleika, launasjóður kvikmyndahöfunda og Vegsemd, fyrir listamenn 67 ára og eldri. |
Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
125 m.kr. |
|
Hefja innleiðingu á stefnum í málefnum bókmennta og sviðslista. |
Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
Innan ramma |
|
Unnið samkvæmt stefnumótun listgreina; kvikmynda-, myndlistar- og tónlistarstefnu. |
Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
Innan ramma |
|
Markmið 2: Hagnýting máltæknilausna fyrir almenning |
||
|
Máltækniáætlun 2 hrint í framkvæmd. |
Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
Innan ramma |
|
Markmið 3: Tryggja tölfræði og kyngreind gögn um menningarsjóði |
||
|
Skilgreining og birting lykiltalna um menningarstarf og skapandi greinar. |
Menningar- og viðskiptaráðuneyti, Hagstofa Íslands og Rannsóknasetur skapandi greina |
Innan ramma |
|
Unnið að aukinni skilvirkni sjóðakerfis lista, menningar og skapandi greina. |
Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 5.055,6 m.kr. og lækkar um 396,7 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 97,2 m.kr.
Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins er aukin varanlega um 125 m.kr. til hækkunar á starfslaunum listamanna. Breytingar voru gerðar á lögum um listamannalaun nr. 57/2009, í samræmi við áherslur í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar.
- Fjárheimild málaflokksins er aukin varanlega um 170 m.kr. til að efla Kvikmyndasjóð, Myndlistarsjóð, Sviðslistasjóð og Bókasafnssjóð höfunda.
- Fjárheimild málaflokksins er aukin tímabundið til eins árs um 48 m.kr. vegna stofnunar Tónlistarmiðstöðvar Íslands og eflingar sjóða þar undir í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og Menningarsókn – aðgerðaáætlun um listir og menningu til 2030.
- Fjárheimild málaflokksins hækkar um 153,2 m.kr. þar sem tímabundin framlög ganga til baka. Framlögin komu af tímabundnu fjárfestingarátaki ríkisstjórnarinnar til menningarmála.
- Fjárheimild málaflokksins hækkar um 13 m.kr. í samræmi við áætlun um rekstrartekjur ríkisaðila.
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 500 m.kr. vegna niðurfellingar tímabundins framlags til menningarmála. Framlagið var til þriggja ára, þ.e. 2021–2023, en hluti þess var færður til ársins 2024 vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar í júní 2022 til að draga úr þenslu og bæta afkomu.
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 119,7 m.kr. þar sem tímabundin framlög samkvæmt tilmælum fjárlaganefndar í ýmis verkefni tengd menningarmálum falla niður.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 254,4 m.kr. sem er skipt hlutfallslega niður á stofnanir og verkefni málaflokksins.
18.40 Íþrótta- og æskulýðsmál
Starfsemi í málaflokknum er að mestu leyti á hendi frjálsra félaga og félagasamtaka sem og sveitarfélaga, í samstarfi við ríkið. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.
Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2023 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2024. Þannig endurspegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
|
Helstu verkefni 2025 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu til verkefnis |
|
Markmið 1: Bæta umgjörð og auka gæði í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi |
||
|
Unnið að undirbúningi vegna þjóðarleikvanga í frjálsíþróttum og knattspyrnu. |
Mennta- og barnamálaráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti, forsætisráðuneyti, ÍSÍ og sérsambönd |
Innan ramma |
|
Unnið að undirbúningi framkvæmda vegna þjóðarleikvangs (Þjóðarhallar) fyrir inniíþróttir. |
Mennta- og barnamálaráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti, forsætisráðuneyti, ÍSÍ og sérsambönd |
1.500 m.kr. |
|
Fylgjast með þátttöku barna með annað móðurmál en íslensku í íþrótta- og æskulýðsstarfi í samvinnu við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og setja áherslur í samninga við íþróttahreyfinguna og sjóði sem stuðla að aukinni þátttöku iðkenda í þessum hópi. |
Mennta- og barnarmálaráðuneyti, Menntavísindasvið HÍ og íþrótta- og æskulýðsfélög |
Innan ramma |
|
Innleiðing aðgerðaáætlunar í tómstunda- og félagsstarfi barna og ungmenna. |
Mennta- og barnamálaráðuneyti, æskulýðsráð, samband sveitarfélaga og umboðsmaður barna |
Innan ramma |
|
Efla starfsemi samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs. |
Mennta- og barnamálaráðuneyti |
Innan ramma |
|
Efla almenningsíþróttastarf íþróttahreyfingarinnar, s.s. íþróttir eldri borgara. |
Mennta- og barnamálaráðuneytið |
Innan ramma |
|
Markmið 2: Efla umgjörð og stuðning við afreksíþróttafólk |
||
|
Þróa samstarfsvettvang gegn hagræðingu úrslita í íþróttakeppnum í samræmi við alþjóðasamning Evrópuráðsins. Samlegð við starfsemi Lyfjaeftirlits Íslands verði skoðuð. |
Mennta- og barnamálaráðuneyti, dómsmálaráðuneyti, ríkislögreglustjóri og hagsmunaaðilar |
Innan ramma |
|
Efla heildarumgjörð afreksíþrótta og þ.m.t. að vinna að réttindamálum afreksfólks í íþróttum. |
Mennta- og barnamálaráðuneyti, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands |
250 m.kr. |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 3.130,7 m.kr. og hækkar um 1.589 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 16,7 m.kr.
Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins er aukin um 1.500 m.kr. til framkvæmda við Þjóðarhöll.
- Fjárheimild málaflokksins hækkar um 250 m.kr. til þess að fylgja eftir aðgerðum í stjórnarsáttmála tengdum afreksíþróttum. Fjárheimildin er flutt af málaflokki 20.10 Framhaldsskólar.
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 146 m.kr. vegna tímabundinna verkefna sem falla niður. Helstu framlög sem falla niður eru 20 m.kr. framlag til uppbyggingar á landsmótssvæði fyrir landsmót hestamanna 2024 og vegna annarra tímabundinna framlaga frá fjárlaganefnd í ýmis íþróttatengd verkefni sem eru að falla niður.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 15 m.kr. og lækkar fjárheimild málaflokksins sem því nemur. Skiptist aðhaldið niður á milli verkefna og sjóða innan málaflokksins.
18.50 Stjórnsýsla menningar og viðskipta
Starfsemi málaflokksins er í höndum menningar- og viðskiptaráðuneytis. Nánar er fjallað um málaflokkinn i fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 1.069,6 m.kr. og hækkar um 27,4 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 47,7 m.kr.
Ekki er um breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins er aukin um 49 m.kr. til að efla og styrkja stjórnsýslu ráðuneytis menningar, ferðamála og viðskipta.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 11,8 m.kr. sem fellur að mestu leyti á menningar- og viðskiptaráðuneytið.
Fjárlög fyrir árið 2025