12 Yfirlit yfir lagabreytingar
Lagabreytingar vegna tekjuhliðar fjárlagafrumvarpsins:
Lög nr. 90/2003, um tekjuskatt. Lagt verður til að tímabundnar útreikningsreglur og viðmiðunarfjárhæðir vaxtabóta verði framlengdar óbreyttar um eitt ár og felldar brott frá og með 1. janúar 2027.
Lög nr. 90/2003, um tekjuskatt. Lagt verður til að tímabundnar útreikningsreglur og viðmiðunarfjárhæðir barnabóta verði framlengdar óbreyttar um eitt ár.
Lög nr. 90/2003, um tekjuskatt. Lagt verður til að samsköttunarheimild hjóna og sambýlisfólks milli tveggja skattþrepa verði felld brott frá og með álagningarári 2027.
Lög nr. 90/2003, um tekjuskatt. Lagt verður til að nýting persónuafsláttar til greiðslu fjármagnstekjuskatts verði felld brott frá og með álagningarári 2027.
Lög nr. 129/2009, um umhverfis- og auðlindaskatta. Lagt verður til að fjárhæðir kolefnisgjalds verði hækkaðar um 3,7% í samræmi við forsendur fjárlagafrumvarps fyrir árið 2026.
Lög nr. 71/1997, um lögræði. Lagt til að ákvæði 50. gr. laganna um gjald vegna skipunar ráðsmanns og breytinga á störfum hans verði fellt brott og þess í stað verði kveðið á um gjald í lögum nr. 88/1991, um aukatekjur ríkissjóðs.
Lög nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Lögð verður til framlenging á ákvæði til bráðabirgða sem kveður á um að framlag lífeyrissjóða skv. lögum um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða, nr. 60/2012, á árinu 2026 verður ekki núvirt við tryggingafræðilega athugun á fjárhag sjóðanna.
Lög nr. 39/1988, um bifreiðagjald. Lagt verður til að bifreiðagjald hækki um 3,7% í samræmi við forsendur fjárlagafrumvarps fyrir árið 2026.
Lög nr. 96/1995, um gjald af áfengi, tóbaki, nikótíni o.fl. Lagt verður til að áfengis-, tóbaks- og nikótíngjald hækki um 3,7% í samræmi við forsendur fjárlagafrumvarps fyrir árið 2026.
Lög nr. 23/2013, um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu. Lögð verður til 3,7% hækkun á sérstöku gjaldi til Ríkisútvarpsins í samræmi við forsendur fjárlagafrumvarps fyrir árið 2026.
Lög nr. 125/1999, um málefni aldraðra. Lögð verður til 3,7% hækkun á gjaldi í Framkvæmdasjóð aldraðra í samræmi við forsendur fjárlagafrumvarps fyrir árið 2026.
Lög nr. 162/2002, um úrvinnslugjald. Lögð verður til breyting á fjárhæðum úrvinnslugjalds og nýjar gjaldskyldar vörur í samræmi við tillögu stjórnar Úrvinnslusjóðs.
Lög nr. 113/1990, um tryggingagjald. Lögð er til framlenging á afnámi tekna hjá starfsendurhæfingarsjóðum, sem starfræktir eru á grundvelli laga um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða, af almennu tryggingagjaldi.
Lög nr. 88/1991, um aukatekjur ríkissjóðs. Lögð verður til hækkun gjalda fyrir umsóknir um dvalarleyfi og ríkisborgararétt, umsóknir og þjónustu sýslumannsembættanna og Þjóðskrár Íslands.
Lög nr. 52/1989, um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur. Lagðar eru til hækkanir á skilagjaldi og umsýsluþóknun.
Lög nr. 96/2023, um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir. Lagt verður til að fjárhæð losunargjalds vegna gjaldskyldrar losunar sem á sér stað árið 2026 skv. 4. mgr. 20. gr. verði breytt til samræmis við breytingar á meðalverði losunarheimilda á Evrópska efnahagssvæðinu eins og það er á árstímabili sem lýkur 31. júlí árið áður.
Lög nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl. Lagt verður til að almennt og sérstakt bensíngjald hækki um 3,7% í samræmi við forsendur fjárlagafrumvarps fyrir árið 2026.
Lög nr. 87/2004, um olíugjald og kílómetragjald. Lagt verður til að olíugjald og almennt og sérstakt kílómetragjald hækki um 3,7% í samræmi við forsendur fjárlagafrumvarps fyrir árið 2026.
Lög nr. 101/2023, um kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða. Lagt verður til að kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða hækki um 3,7% í samræmi við forsendur fjárlagafrumvarps fyrir árið 2026.
Lög nr. 87/2011, um gistináttaskatt og innviðagjald. Lögð verður til tímabundin lækkun á innviðagjaldi til eins árs sem skemmtiferðaskip í millilandasiglingum greiða fyrir hvern farþega á meðan skip dvelur í höfn hér á landi eða annars staðar á tollsvæði ríkisins.
Lagabreytingar vegna gjaldahliðar fjárlagafrumvarpsins:
Lög nr. 91/1987, um sóknargjöld o.fl. Lagt verður til að festa fjárhæð sóknargjalda við 1.133 kr. á einstakling á mánuði en samkvæmt því mun ákvörðuð lækkun sóknargjaldsins nema 7,2%.
Lög nr. 166/2011, um greiðslu kostnaðar við rekstur umboðsmanns skuldara. Lögð verður til breyting á hlutfalli af álagningarstofni sem gjaldskyldir aðilar skulu greiða miðað við áætlaðan rekstrarkostnað stofnunarinnar fyrir árið 2026 með hliðsjón af áætlaðri stöðu í árslok 2025.
Lög nr. 38/2010, um Íslandsstofu, sjálfseignarstofnun. Lagt verður til að framlög til Íslandsstofu verði ákveðin af Alþingi í fjárlögum ár hvert og ákvæði um markaðsgjald flutt efnislega óbreytt úr lögum um Íslandsstofu, sjálfseignarstofnun, nr. 38/2010, yfir í lög um tryggingagjald, nr. 113/1990.
Lög nr. 99/1999, um greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi og skilavald. Lögð verður til breyting á eftirlitsgjaldi í samræmi við áætlanir Seðlabanka Íslands um rekstrarkostnað við fjármálaeftirlit á árinu 2026.
Lög nr. 60/2012, um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða. Lögð verður til framlenging á bráðabirgðaákvæði þar sem kveðið er annars vegar á um að starfsendurhæfingarsjóðir fái ekki tekjur af almennu tryggingagjaldi á árinu 2026 og hins vegar að atvinnurekendur, þeir sem stunda sjálfstæða starfsemi og lífeyrissjóðir greiði áfram sama hlutfall af stofni til iðgjalds á árinu 2026, eða 0,10%.
Lög nr. 125/1999, um málefni aldraðra. Lögð verður til framlenging á því að Framkvæmdasjóði aldraðra sé heimilt að verja fé til að standa straum af rekstrarkostnaði hjúkrunarrýma fyrir aldraða.
Lög nr. 100/2007, um almannatryggingar. Félags- og húsnæðismálaráðherra leggur fram frumvarp um breytingu á almennu frítekjumarki ellilífeyris og frítekjumarki félagslegs viðbótarstuðnings aldraðra.
Lög nr. 74/2020, um félagslegan viðbótarstuðning við aldraða. Félags- og húsnæðismálaráðherra leggur fram frumvarp um breytingu á almennu frítekjumarki ellilífeyris og frítekjumarki félagslegs viðbótarstuðnings aldraðra.
Lög nr. 49/1997, um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum. Lögð verður til framlenging um eitt ár á II. bráðabirgðaákvæði sem kveður á um heimild til að nota fé ofanflóðasjóðs til að taka þátt í greiðslu kostnaðar við hættumat vegna eldgosa, vatnsflóða og sjávarflóða.
Lög nr. 85/2008, um opinbera háskóla. Lögð verður til hækkun skrásetningargjalds í opinbera háskóla.
Fjárlög fyrir árið 2026