Fjárlög fyrir árið 2026

Fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2026 var afgreitt sem lög frá Alþingi 18. nóvember 2025. Sjá helstu niðurstöður fjárlaga.

Hvaða áhrif hafa fjárlögin á þig:

Forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar er að snúa við hallarekstri undanfarinna ára. Gert er ráð fyrir að á árinu 2027 verði ríkissjóður rekinn með afgangi í fyrsta sinn síðan árið 2018.

 

Skreytimynd

Aukinn stöðugleiki

Með innleiðingu stöðugleikareglu eru varanlegar skorður settar við ósjálfbærum útgjaldavexti. Ríkisútgjöld verða ekki lengur aukin umfram vöxt verðmætasköpunar. Mikilvægast er að með stöðuleikareglu og jafnvægi í ríkisfjármálum er komið í veg fyrir að bætt lífskjör í dag verða fjármögnuð með lánum og reikningurinn sendur komandi kynslóðum.

Lægri vextir

Vaxtagreiðslur ríkissjóðs sem eru bein afleiðing af hallarekstri undanfarinna ára munu nema um 125 ma.kr. Það er hærri fjárhæð en nemur rekstri alla framhaldsskóla og hálskóla á landinu. Lækkun skulda og um leið vaxtagreiðsla ríkissjóðs er því eitt mikilvægasta verkefni ríkisstjórnarinnar.

Umbætur og hagræðing

Markmiði fjármálaáætlunar um 11 ma.kr. hagræðingu er náð og gott betur. Gert er ráð fyrir að til ársins 2030 náist 107 milljarða króna hagræðing. Með hagræðingu í rekstri ríkisins og hóflegum útgjaldavexti er tryggt að staða ríkissjóðs mun batna og vaxtakostnaður hans lækka.

Með fjárlögum 2026 verður létt undir með barnafólki og stuðningi beint þangað sem þörfin er mest. Ábyrgð í ríkisrekstrinum þýðir að reikningurinn fyrir lífsgæðum dagsins í dag verður ekki sendur kynslóðum framtíðarinnar.

 

Lægri vextir fyrir heimili og fyrirtæki

Sterk efnahagsstjórn skilar sér í bættum hag heimila. Með jafnvægi í ríkisfjármálum skapast svigrúm fyrir lækkun vaxta með því að styðja við verðbólgumarkmið Seðlabankans. Frá því í lok 2024 hefur árleg greiðslubyrði vaxta af 30 milljóna króna jafngreiðsluláni lækkað um ríflega 500 þúsund krónur.

Léttum undir með barnafólki

Ríkisstjórnin hækkar m.a. framlög til Fæðingarorlofssjóðs, leggur aukið fé í framhaldsskólana og uppbyggingu verknáms og fjármagnar sérhæfða þjónustu við börn með fjölþættan vanda.

Þar sem þörfin er mest

Til að bæta lífsgæði allra hefur ríkisstjórnin aukið stuðning við lífeyrisþega með hækkun á almennu frítekjumarki ellilífeyrisþega, hækkun á aldursviðbót til örorkulífeyrisþega og hærri framlögum til að koma til móts við fjölgun endurhæfingarlífeyrisþega.

 

Þrátt fyrir aðhaldssemi í útgjöldum eru stigin stór og mikilvæg skref í uppbyggingu heilbrigðisþjónustu um land allt.

 

Lægri vextir fyrir heimili og fyrirtæki

Sterk efnahagsstjórn skilar sér í bættum hag heimila. Með jafnvægi í ríkisfjármálum skapast svigrúm fyrir lækkun vaxta með því að styðja við verðbólgumarkmið Seðlabankans. Frá því í lok 2024 hefur árleg greiðslubyrði vaxta af 30 milljóna króna jafngreiðsluláni lækkað um ríflega 500 þúsund krónur.

Léttum undir með barnafólki

Ríkisstjórnin hækkar m.a. framlög til Fæðingarorlofssjóðs, leggur aukið fé í framhaldsskólana og uppbyggingu verknáms og fjármagnar sérhæfða þjónustu við börn með fjölþættan vanda.

Þar sem þörfin er mest

Til að bæta lífsgæði allra hefur ríkisstjórnin aukið stuðning við lífeyrisþega með hækkun á almennu frítekjumarki ellilífeyrisþega, hækkun á aldursviðbót til örorkulífeyrisþega og hærri framlögum til að koma til móts við fjölgun endurhæfingarlífeyrisþega.

Með umbótum í ríkisfjármálunum hefur þegar skapast svigrúm til þess að mæta þeim brýnu áskorunum sem íslenskt samfélag stendur frammi fyrir. Nýjum útgjöldum er forgangsraðað til verkefna sem stuðla að öryggi borgaranna.

 

Öruggari samgöngur

7,5 ma.kr. er varið í fjárfestingar, viðhald og þjónustu á vegakerfinu til að vinna á þeirri bráðu innviðaskuld sem hefur safnast frá hruni. Því til viðbótar er settur aukinn kraftur í framkvæmdir við snjóflóðavarnir.

Öruggari landamæri

Ný brottfararmiðstöð verður opnuð fyrir erlenda ríkisborgara sem dvelja ólöglega í landinu. Þá eru varnir Íslands efldar, m.a. með auknum framlögum til Landhelgisgæslunnar og netöryggismála, ásamt því að framlög til stuðnings Úkraínu eru aukin.

Öruggara samfélag

Á árinu verður stöðugildum innan lögreglunnar fjölgað um 50, fjármagn lagt í byggingu nýs fangelsis, öryggis- og réttardeildin á Kleppi stækkuð um helming og sett á fót ný öryggisvistun fyrir ósakhæfa einstaklinga.
Fjárlög 2024

Fjárlög afgreidd frá Alþingi

Fjármála- og efnahagsráðherra lagði fram fjárlagafrumvarp á Alþingi fyrir árið 2026 9. september 2025. Frumvarpið var samþykkt sem lög frá Alþingi 18. nóvember 2025.
Ferli frumvarps og fjárlög í heild á vef Alþingis
  • Fjárlög 2025 (kemur síðar)
Graf, skreytimynd

Greiningar

Á rafrænu mælaborði má skoða greiningu gjalda í rekstur, tilfærslur og fjárfestingu fyrir árin 2025-2029 samkvæmt alþjóðlegum hagskýrslustaðli um opinber fjármál.

Nánar

Fjármálaáætlun 2026-2030, kaflaskipting

Skjöl og gögn

Öll helstu skjöl og gögn sem tengjast frumvarpinu, svo sem myndagögn úr frumvarpinu, ítarefni, töflur, töfluviðaukar og talnagögn fjárlagafrumvarpsins á Excel-formi.

Nánar

Fréttatilkynningar

Fréttatilkynningar ráðuneyta sem tengjast efni fjárlagafrumvarps fyrir 2026.

Nánar

Í stuttu máli

Helstu atriði fjárlagafrumvarps 2026 sett fram með einföldum og skýrum hætti í máli og myndum. Yfirlit á einni síðu og hægt að stækka hverja mynd til að skoða nánar.

Nánar