6 Fjárreiður ríkisaðila í A2- og A3-hluta
Í þessum kafla er yfirlit yfir fjárreiður A2-hluta og A3-hluta aðila. Í næsta kafla er birt samstæðuyfirlit fyrir A-hlutann í heild þar sem tekið hefur verið tillit til innbyrðis viðskipta aðila þannig að A-hlutinn verði samanburðarhæfur við framsetningu þjóðhagsreikninga. Þannig er gengið út frá því að full samsvörun verði á milli A-hlutans og uppgjörs Hagstofunnar á fjármálum hins opinbera. Nánar er fjallað um framsetningu ríkisfjármála í viðauka. Flokkun ríkisaðila í A2- og A3-hluta má sjá í meðfylgjandi töflu.
Tafla 6.1 Flokkun ríkisaðila í A2- og A3-hluta
6.1 Áætlanir A2-hluta ríkisaðila
Til A2-hluta ríkisaðila teljast lána- og fjárfestingarsjóðir og önnur starfsemi sem er rekin undir stjórn ríkisins og stendur undir sér með sölu á vöru eða þjónustu, leigu og lánastarfsemi. Yfirlit um þessi félög má sjá í töflu 6.2 þar sem fram koma helstu tölur úr ársreikningum þeirra vegna ársins 2024 og í töflu 6.3 má sjá yfirlit yfir áætlaðar lykilstærðir þessara aðila á næsta ári.
Tafla 6.2 Helstu tölur úr ársreikningum A2-hluta ríkisaðila fyrir árið 2024
Tafla 6.3 Áætlaðar lykilstærðir A2-hluta ríkisaðila fyrir árið 2026
Á árinu 2026 er gert ráð fyrir því að A2-hluta ríkisaðilar verði samtals með jákvæða afkomu sem nemur 8,6 ma.kr. Er það verulegur viðsnúningur samanborið við fyrri ár sem einkum má rekja til uppgjörs á ÍL-sjóði sem var samþykkt í apríl 2025. Fjárfestingarhreyfingar og fjármögnunarhreyfingar breytast talsvert milli áranna 2025 og 2026 og er sú breyting að mestu tilkomin vegna uppgjörsins. Nánar er fjallað um uppgjör ÍL-sjóðs í kafla 9 Efnahagur, lántökur og endurlán.
Afkoma Menntasjóðs námsmanna batnar talsvert milli ára, en afkoman er verulega háð vaxtastigi og verðbólgu. Þetta leiðir til þess að afkoman getur verið mjög sveiflukennd, þar sem breytingar á þessum þáttum hafa bein áhrif á tekjur og gjöld sjóðsins.
Tafla 6.4 Samandregið rekstrar- og sjóðstreymisyfirlit A2-hluta ríkisaðila
6.2 Áætlanir A3-hluta ríkisaðila
Til A3-hluta ríkisaðila telst starfsemi hlutafélaga sem eru að meiri hluta í eigu ríkissjóðs en sinna hlutverkum á sviði opinberrar þjónustu. Þessi félög eru sjálfstæðir lögaðilar en starfsemi þeirra er ekki byggð á markaðslegum forsendum. Í töflu 6.5 koma fram helstu lykilstærðir úr ársreikningum stærstu aðilanna, þ.e. þeirra sem höfðu eignir yfir 3 ma.kr. og/eða tekjur yfir 1 ma.kr. Fasteignafélagið Þórkatla, sem var stofnað árið 2024, er A-3 ríkisaðili sem hefur það hlutverk að sinna kaupum, umsýslu og ráðstöfun húsnæðis í Grindavík, í samræmi við heimildir laga nr. 16/2024 um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík.
Tafla 6.5 Helstu tölur úr ársreikningum stærstu A3-hluta ríkisaðila fyrir árið 2024
Á árinu 2026 er gert ráð fyrir að A3-hluta ríkisaðilar verði samtals með neikvæða afkomu sem nemur um 0,9 ma.kr. Halla á rekstri þessara aðila má að stærstu leyti rekja til reksturs Nýs Landspítala. Tafla 6.6 sýnir samandregið rekstrar- og sjóðstreymisyfirlit ríkisaðila í A3-hluta. Halli af reglulegri starfsemi þessara aðila skýrist fyrst og fremst af háum rekstrargjöldum Nýs Landspítala, en til jafns við þau kemur framlag úr ríkissjóði. Stærsti hluti fjárfestingarhreyfinga skýrist af fjárfestingaráætlun Betri samgangna ohf. og Fasteigna Háskóla Íslands ehf.
Tafla 6.6 Samandregið rekstrar- og sjóðstreymisyfirlit A3-hluta ríkisaðila
Fjárlög fyrir árið 2026