8 Fjárreiður ríkisaðila í B-hluta
Til B-hluta teljast fyrirtæki og lánastofnanir sem eru undir beinni stjórn ríkisins og rekin eru á ábyrgð ríkissjóðs og ekki teljast til A-hluta. Þessir aðilar starfa á markaði og standa að stærstum hluta undir kostnaði við starfsemi sína með tekjum af sölu á vöru eða þjónustu til almennings og fyrirtækja. Einungis þrjú fyrirtæki og einn sjóður teljast til B-hluta. Það eru Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (ÁTVR), Happdrætti Háskóla Íslands (HHÍ), Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR) og Nýsköpunarsjóðurinn Kría sem tók til starfa í byrjun árs 2025 og varð til við sameiningu Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og Kríu, sprota- og nýsköpunarsjóðs. Framsetning á fjárreiðum aðila í B-hluta er eins og í reikningsskilum fyrirtækja í sambærilegum rekstri og reikningsskil þeirra skulu uppfylla kröfur laga um ársreikninga.
Á árinu 2026 er gert ráð fyrir því að afgangur verði af rekstri þessara aðila sem nemur 1,2 ma.kr. Tafla 8.1 sýnir nokkrar lykilstærðir úr fjárreiðum B-hluta aðila sem byggjast á fjárhagsáætlunum þeirra fyrir árið 2026. Arðgreiðslur B-hluta aðila í ríkissjóð eru áætlaðar 750 m.kr., en einungis einn B-hluta aðili, ÁTVR, greiðir arð í ríkissjóð. Áætlað er að Happdrætti Háskóla Íslands greiði 6.000 m.kr. framlag á næsta ári sem renni til framkvæmda og viðhalds fasteigna Háskóla Íslands.
Tafla 8.1 Áætlaðar lykilstærðir B-hluta ríkisaðila fyrir árið 2026
Í töflu 8.2 er samandregið rekstrar- og sjóðstreymisyfirlit fyrir ríkisaðila í B-hluta í heild. Fjármögnunarhreyfingar aukast töluvert milli ára, að mestu þar sem framlag Happdrættis Háskóla Íslands hækkar úr 3,6 ma.kr. árið 2025 og er áætlað 6 ma.kr. árið 2026.
Tafla 8.2 Samandregið rekstrar- og sjóðstreymisyfirlit B-hluta ríkisaðila
Fjárlög fyrir árið 2026