02 Dómstólar

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð dómsmálaráðherra. Það skiptist í fjóra málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2024–2026.

Dómstólar 

Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.

Breyting á ramma á milli áranna 2025 og 2026

Heildargjöld málefnasviðs 02 Dómstólar árið 2026 eru áætluð 4.602,3 m.kr. og lækka um 3,7 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2025 eða sem svarar til 0,1%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 328,9 m.kr. milli ára eða sem svarar til 7,7%.

Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2026–2030. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun.

Aðhaldsmarkmið málefnasviðsins felur m.a. í sér sértækar aðhaldsráðstafanir vegna aukinnar hagræðingar í opinberum innkaupum, endurskoðunar jafnlaunavottunar og lækkunar á varasjóðum málaflokka. Málefnasviðið er undanþegið almennri aðhaldskröfu.

Hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2024 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

Dómstólar

02.10 Hæstiréttur

Starfsemi málaflokksins er í höndum Hæstaréttar. Kveðið er á um dómstólaskipunina í I. kafla laga um dómstóla, nr. 50/2016. Í stefnu dómstólanna 2023–2028, sem unnið var að vorið 2023, koma fram gildi, markmið og áherslur dómstólanna og dómstólasýslunnar á tímabilinu.

Verkefni í málaflokknum má finna undir málaflokki 02.40 Dómstólasýslan.

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 602,3 m.kr. og lækkar um 0,9 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 44,4 m.kr. Breytingin felst í hlutdeild málaflokksins í sértækum aðhaldsráðstöfunum og aðgerðum málefnasviðsins sem nemur 1,8 m.kr. og 0,9 m.kr. framlagi til að mæta breytingum á greiðslufyrirkomulagi Microsoft-samninga.

02.20 Héraðsdómstólar

Starfsemi málaflokksins er í höndum héraðsdómstólanna. Kveðið er á um dómstólaskipunina í I. kafla laga um dómstóla, nr. 50/2016. Í stefnu dómstólanna 2023–2028, sem unnið var að vorið 2023, koma fram gildi, markmið og áherslur dómstólanna og dómstólasýslunnar á tímabilinu.

Verkefni í málaflokknum má finna undir málaflokki 02.40 Dómstólasýslan.

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 2.513,3 m.kr. og lækkar um 1,6 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 203,4 m.kr. Breytingin felst í hlutdeild málaflokksins í sértækum aðhaldsaðgerðum málefnasviðsins sem nemur 18,2 m.kr. og 6 m.kr. auknu framlagi vegna breytinga á greiðslufyrirkomulagi Microsoft-samninga.

02.30 Landsréttur

Starfsemi málaflokksins er í höndum Landsréttar. Kveðið er á um dómstólaskipunina í I. kafla laga um dómstóla, nr. 50/2016. Í stefnu dómstólanna 2023–2028, sem unnið var að vorið 2023, koma fram gildi, markmið og áherslur dómstólanna og dómstólasýslunnar á tímabilinu.

Verkefni í málaflokknum má finna undir málaflokki 02.40 Dómstólasýslan.

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 1.022,2 m.kr. og lækkar um 0,9 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 67,2 m.kr. Breytingin felst í hlutdeild málaflokksins í sértækum aðhaldsaðgerðum málefnasviðsins sem nemur 3,1 m.kr. og 2,2 m.kr. framlagi til að mæta breytingum á greiðslufyrirkomulagi Microsoft-samninga

02.40 Dómstólasýslan

Starfsemi málaflokksins er í höndum Dómstólasýslunnar. Kveðið er á um dómstólaskipunina í I. kafla laga um dómstóla, nr. 50/2016. Í II. kafla laganna er kveðið á um hlutverk og helstu verkefni dómstólasýslunnar. Í stefnu dómstólanna 2023–2028, sem unnið var að vorið 2023, koma fram gildi, markmið og áherslur dómstólanna og dómstólasýslunnar á tímabilinu.

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2026 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2025. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2026

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu

Markmið 1: Réttlát og opinber málsmeðferð

Þróun á réttarvörslugátt þar sem áherslan er á koma á aðgengi að gögnum og upplýsingum um stöðu mála fyrir aðila máls.

Dómsmálaráðuneyti, dómstólasýslan og aðrar stofnanir réttarvörslukerfisins

Innan ramma

Öruggara aðgengi að húsnæði dómstóla með innleiðingu verklags við áhættumat og gerð viðbragðsáætlunar hjá dómstólum.

Dómstólasýslan

Innan ramma

Greind tækifæri til að stytta málsmeðferðartíma í einkamálum.

Dómstólasýslan

Innan ramma

Bætt aðstaða túlka og nýr tækjabúnaður.

Dómstólasýslan

Innan ramma

Markmið 2: Aukin skilvirkni og gæði

Innleiðing talgreinis til að rita upp skýrslutökur fyrir dómi.

Dómstólasýslan í samvinnu við dómsmálaráðuneyti

Innan ramma

Undirbúningur fyrir stafræna málsmeðferð í ákveðnum tegundum einkamála, m.a. með það að markmiði að einfalda og stytta málsmeðferð. Það þjónar einnig markmiði nr. 1.

Dómstólasýslan

Innan ramma

Þróun upplýsingatæknibúnaðar og innleiðing stafrænnar málsmeðferðar samhliða þróun réttarvörslugáttar.

Dómstólasýslan

Innan ramma

Áframhald vinnu við þróun stafrænna og sjálfvirkra lausna til hagnýtingar í fleiri verkefnum.

Dómstólasýslan

Innan ramma

Úttekt á öryggi upplýsingatæknikerfa.

Dómstólasýslan

Innan ramma

Markmið 3: Aukið traust til dómstóla

Greining tölfræðiupplýsinga, bætt framsetning og miðlun þeirra.

Dómstólasýslan

Innan ramma

     

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 464,5 m.kr. og lækkar um 0,3 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 17,6 m.kr. Breytingin felst í hlutdeild málaflokksins í sértækum aðhaldsráðstöfunum málefnasviðsins sem nemur 0,8 m.kr. og 0,5 m.kr. framlagi til að mæta breytingum á greiðslufyrirkomulagi Microsoft-samninga.