03 Æðsta stjórnsýsla
Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð forsætisráðherra. Það skiptist í þrjá málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2024–2026.
- Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun.
- Markmið og mælikvarða sem sett hafa verið á málefnasviðinu má sjá á sérstöku mælaborði.
Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum
Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.
Heildargjöld málefnasviðs 03 Æðsta stjórnsýsla árið 2026 eru áætluð 3.233 m.kr. og aukast um 12 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2025 eða sem svarar til 0,4%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 134,8 m.kr. milli ára eða sem svarar til 4,4%.
Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2026–2030. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun. Aðhaldsmarkmið málefnasviðsins felur m.a. í sér sértækar afkomubætandi aðhaldsráðstafanir vegna aukinnar hagræðingar í opinberum innkaupum og endurskoðunar jafnlaunavottunar auk almennrar aðhaldskröfu á málefnasviðið.
Hagræn skipting útgjalda
Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2024 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.
03.10 Embætti forseta Íslands
Undir málaflokkinn fellur rekstur forsetaembættisins.
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 418,7 m.kr. og lækkar um 10,8 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 21,8 m.kr.
Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 5 m.kr. vegna tímabundins framlags sem veitt var vegna biðlauna fráfarandi forseta Íslands sem fellur niður.
- Hlutdeild málaflokksins í almennri aðhaldskröfu og sértækum hagræðingarkröfum málefnasviðsins nemur 6,5 m.kr.
03.20 Ríkisstjórn
Undir málaflokkinn falla laun ráðherra í ríkisstjórn og aðstoðarmanna þeirra. Liðurinn tekur breytingum í samræmi við fjölda ráðherra og aðstoðarmanna á hverjum tíma.
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 854,7 m.kr. og lækkar um 85,5 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 57,5 m.kr.
Helsta breyting á fjárheimildum málaflokksins er:
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 85,5 m.kr. vegna fækkunar ráðherra og aðstoðarmanna vegna breyttrar skipunar Stjórnarráðsins.
03.30 Forsætisráðuneyti
Undir þennan málaflokk fellur aðalskrifstofa forsætisráðuneytisins og tengd verkefni sem ekki verða auðveldlega felld undir önnur málefnasvið og málaflokka. Margar áskoranir kalla á aukna og skilvirka samhæfingu innan Stjórnarráðsins og samstarf á vettvangi ráðherranefnda. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal helstu verkefni, áskoranir og tækifæri.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2026 og hvaða markmið þau styðja við. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2025. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
|
Helstu verkefni 2026 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu |
|
Markmið 1: Traust á opinberri stjórnsýslu1 |
||
|
Leiðbeiningarefni um vandaða stjórnsýsluhætti verður þróað áfram. |
Forsætisráðuneyti |
Innan ramma |
|
Unnið verður að eftirfylgni kannana OECD um traust almennings á stjórnvöldum, m.a. með gerð mælaborðs. |
Forsætisráðuneyti |
Innan ramma |
|
Markmið 2: Aukin hagsæld og samkeppnishæfni |
||
|
Bætt umgjörð þjóðhagsmála og greining á stöðu og þróun síðustu ára. |
Forsætisráðuneyti |
Innan ramma |
|
Mótun og innleiðing atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar um aukna verðmætasköpun og framleiðslu í jafnvægi við samfélag, innviði og náttúru. |
Forsætisráðuneyti |
Innan ramma |
|
Eftirfylgni rannsóknar á samfélagslegum áhrifum fátæktar. |
Forsætisráðuneyti |
Innan ramma |
1. Orðalagsbreyting á markmiði 1 í fjármálaáætlun 2026–2030.
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 1.959,6 m.kr. og hækkar um 108,3 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 43,5 m.kr.
Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins er aukin um 515 m.kr. vegna tímabundins framlags til nýbyggingar við Stjórnarráðshúsið.
- Fjárheimild málaflokksins er aukin um 91 m.kr. Í fyrsta lagi eru 27 m.kr. til samræmis við samkomulag, dags. 8. nóvember 2024, við Háskóla Íslands um árlegt framlag í fjögur ár til styrktar prófessorsstöðu sem fráfarandi forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, sinnir. Í öðru lagi er 60 m.kr. framlag til almenns útgjaldasvigrúms, sem skiptist í 50 m.kr. vegna áherslumála og 10 m.kr. í viðhaldsverkefni. Í þriðja lagi eru 4 m.kr. vegna breytinga á greiðslufyrirkomulagi á Microsoft-samningi.
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 382 m.kr. vegna tímabundins framlags sem veitt var í fjárlögum 2025 vegna viðhaldsverkefna og lagfæringar á aðgengi og aðstöðu og öryggismálum í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 45,3 m.kr. vegna millifærslu á fjárheimild til annarra málefnasviða, 25,5 m.kr. til Mannréttindastofnunar Íslands vegna nýrra laga, nr. 88/2024, um Mannréttindastofnun Íslands og 19,8 m.kr. til fjármála- og efnahagsráðuneytisins vegna flutnings verkefna og starfsmanns milli ráðuneyta.
- Hlutdeild málaflokksins í almennri aðhaldskröfu og sértækum hagræðingarkröfum málefnasviðsins nemur 70,4 m.kr. Á aðalskrifstofu ráðuneytisins eru útfærðar 38,3 m.kr. og á ýmis verkefni málaflokksins eru útfærðar 32,1 m.kr.
Fjárlög fyrir árið 2026