09 Almanna- og réttaröryggi
Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð dómsmálaráðherra. Það skiptist í fimm málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2024–2026.
- Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun.
- Markmið og mælikvarða sem sett hafa verið á málefnasviðinu má sjá á sérstöku mælaborði.
Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum
Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.
Heildargjöld málefnasviðs 09 Almanna- og réttaröryggi árið 2026 eru áætluð 50.134,2 m.kr. og aukast um 3.736,7 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2025 eða sem svarar til 8,4%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 5.666,4 m.kr. milli ára eða sem svarar til 12,7%.
Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2026–2030. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun. Aðhaldsmarkmið málefnasviðsins felur m.a. í sér sértækar aðhaldsráðstafanir vegna aukinnar hagræðingar í opinberum innkaupum, endurskoðunar jafnlaunavottunar auk lækkunar á varasjóðum málaflokka. Málefnasviðið er undanþegið almennri aðhaldskröfu.
Hagræn skipting útgjalda
Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2024 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.
09.10 Löggæsla
Starfsemi málaflokksins er í höndum ríkislögreglustjóra og níu lögregluembætta. Undir málaflokkinn fellur einnig landamæraeftirlit, menntun lögreglumanna, almannavarnir og leit og björgun á landi.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2026 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2025. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
|
Helstu verkefni 2026 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu |
|
Markmið 1: Besta mögulega þjónustustig |
||
|
Fjölgun lögreglumanna um 50.* |
Embætti lögreglu |
1.250 m.kr. |
|
Útgáfa nýrrar löggæsluáætlunar. |
Dómsmálaráðuneyti |
Innan ramma |
|
Markmið 2: Hæsta mögulega öryggisstig |
||
|
Uppbygging brottfararstöðvar.** |
Dómsmálaráðuneyti |
500 m.kr. |
|
Styrkari lagaumgjörð um almannavarnir og efling áfallaþols – ný heildarlög. |
Dómsmálaráðuneyti |
Innan ramma |
|
Breyting á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili – rafrænt eftirlit. |
Dómsmálaráðuneyti |
Innan ramma |
|
Útgáfa nýrrar landsáætlunar gegn kynbundnu ofbeldi. |
Dómsmálaráðuneyti |
Innan ramma |
|
Aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi – útgáfa aðgerðaáætlunar, efling samstarfs og breytingar á lögum, m.a. öflugri lagaumgjörð varðandi upptöku fjárhagslegs ágóða af brotum. |
Dómsmálaráðuneyti |
Innan ramma |
*Verkefnið styður jafnframt við markmið nr. 2 innan sama málaflokks sem og markmið nr. 1 í málaflokki 9.30 um aðgang að réttarvörslukerfinu.
** Starfsemi brottfararstöðvar styður jafnframt við markmið í málaflokki 9.50 Fullnustumál þar sem léttir á plássum í fangelsum þegar brottfararstöðin verður tekin í notkun.
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 29.255,3 m.kr. og hækkar um 1.544,2 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 1.366,4 m.kr.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er fjárheimild málaflokksins aukin um 1.250 m.kr. vegna fjölgunar lögreglumanna um 50, sbr. markmið nr. 1.
- Útgjaldasvigrúm málefnasviðsins er aukið um 500 m.kr. sem verður nýtt til að fjármagna starfsemi brottfararmiðstöðvar í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar.
- Fjárheimild málaflokksins er aukin um 56,9 m.kr. vegna breytinga á greiðslufyrirkomulagi Microsoft-samninga.
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 117,6 m.kr. vegna tímabundinna verkefna sem falla niður.
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 100 m.kr. vegna lækkunar framlags til safnliðar vegna sértækra aðhaldsráðstafana.
- Framlag í varasjóð málaflokksins, 83,9 m.kr., er fellt niður vegna sértækra aðhaldsráðstafana.
- Tímabundin niðurfelling fjárheimildar safnliðar, 110,7 m.kr., í fjárlögum 2025 kemur aftur í ramma.
- Málaflokkurinn er undanþeginn almennri aðhaldskröfu.
- Hlutdeild málaflokksins í sértækum aðhaldsráðstöfunum, 155,8 m.kr., vegna opinberra innkaupa og endurskoðunar jafnlaunavottunar er deilt hlutfallslega niður á verkefni og stofnanir málaflokksins.
09.20 Landhelgi
Starfsemi málaflokksins er í höndum Landhelgisgæslu Íslands. Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2026 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2025. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
|
Helstu verkefni 2026 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu |
|
Markmið 1: Tryggja öryggi og eftirlit í auðlindalögsögu Íslands |
||
|
Styrking starfsemi Landhelgisgæslunnar. |
Landhelgisgæslan |
1.310 m. kr. |
|
Markmið 2: Besti mögulegi viðbúnaður í leit og björgun |
||
|
Samkomulag um leigu á þremur björgunarþyrlum til næstu sjö ára. |
Landhelgisgæslan |
Innan ramma |
Markmiðin hafa verið endurskoðuð í samræmi við áherslur stjórnvalda í málaflokknum frá því sem birt var í mælaborði árangurs í júní sl.
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 9.347,6 m.kr. og hækkar um 921,1 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 237,6 m.kr.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er fjárheimild málaflokksins aukin um 1.310 m.kr. til eflingar starfsemi Landhelgisgæslunnar, sbr. markmið nr. 1.
- Fjárheimild málaflokksins hækkar um 14,4 m.kr. vegna breytinga á greiðslufyrirkomulagi Microsoft-samninga.
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 240 m.kr. vegna tímabundins framlags sem fellur niður.
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 3,3 m.kr. vegna sértækra aðhaldsráðstafana vegna framlags í varasjóð sem er fellt niður.
- Málaflokkurinn er undanþeginn almennri aðhaldskröfu.
- Hlutdeild málaflokksins í sértækum aðhaldsráðstöfunum, 166,6 m.kr., vegna opinberra innkaupa og endurskoðunar jafnlaunavottunar er deilt hlutfallslega niður á verkefni og stofnanir málaflokksins.
09.30 Ákæruvald og réttarvarsla
Starfsemi málaflokksins er í höndum embættis ríkissaksóknara og embættis héraðssaksóknara, ríkislögmanns og lögreglustjóraembættanna hvað varðar meðferð ákæruvalds.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2026 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2025. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
|
Helstu verkefni 2026 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu |
|
Markmið 1: Réttlát og örugg málsmeðferð |
||
|
Þróun á réttarvörslugátt þar sem áherslan er á koma á aðgengi að gögnum og upplýsingum um stöðu mála fyrir aðila máls. |
Dómsmálaráðuneyti og stofnanir réttarvörslukerfisins |
Innan ramma |
|
Innleiðing talgreinis til að rita upp skýrslutökur fyrir dómi. |
Dómsmálaráðuneyti og Dómstólasýslan |
Innan ramma |
|
Einfaldari og skilvirkari afgreiðsla bóta til þolenda rannsóknarúrræða með breytingum á lögum um meðferð sakamála. |
Dómsmálaráðuneyti |
Innan ramma |
|
Markmið 2: Aukin skilvirkni og gæði |
||
|
Þróun á réttarvörslugátt þar sem áherslan er á koma á aðgengi að gögnum og upplýsingum um stöðu mála fyrir aðila máls. |
Dómsmálaráðuneyti og stofnanir réttarvörslukerfisins |
Innan ramma |
Markmiðin hafa verið endurskoðuð í samræmi við áherslur stjórnvalda í málaflokknum frá því sem birt var í mælaborði árangurs í júní sl.
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 2.522 m.kr. og lækkar um 73,1 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 138,8 m.kr.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Útgjaldasvigrúm málaflokksins er aukið um 20 m.kr. til styrkingar á starfsemi ríkislögmanns.
- Fjárheimild málaflokksins hækkar um 5,2 m.kr. vegna breytinga á greiðslufyrirkomulagi Microsoft-samninga.
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 90,4 m.kr. vegna hliðrunar á framlagi vegna verkloka og niðurlagningar óbyggðanefndar þann 1. janúar 2026 eins og lögin gera ráð fyrir.
- Málaflokkurinn er undanþeginn almennri aðhaldskröfu.
- Hlutdeild málaflokksins í sértækum aðhaldsráðstöfunum, 7,9 m.kr., vegna opinberra innkaupa og endurskoðunar jafnlaunavottunar er deilt hlutfallslega niður á verkefni og stofnanir málaflokksins.
09.40 Réttaraðstoð og bætur
Til málaflokksins heyrir fjárhagslegur stuðningur ríkisins við þá sem leita þurfa réttar síns fyrir dómstólum en hafa ekki til þess fjárhagslegt bolmagn, greiðslur til brotaþola vegna líkamstjóns og miska sem leiðir af broti á almennum hegningarlögum og greiðsla kostnaðar sem embætti lögreglustjóra, héraðsdómstólar og embætti ríkissaksóknara greiða öðrum en starfsmönnum viðkomandi embætta vegna rannsóknar og reksturs opinberra mála.
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 2.723 m.kr. og eru óbreyttar frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 33,9 m.kr.
09.50 Fullnustumál
Starfsemi málaflokksins er í höndum Fangelsismálastofnunar. Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2026 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2025. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
|
Helstu verkefni 2026 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu |
|
Markmið 1: Örugg fangelsi og virk varnaðaráhrif |
||
|
Bygging nýs fangelsis að Stóra-Hrauni.. |
Framkvæmdasýsla ríkisins og dómsmálaráðuneyti |
1.300 m.kr.. |
|
Styrking starfsemi Fangelsismálastofnunar til að tryggja aukið öryggi starfsfólks og fanga í fangelsum og eflingu fangavarðanáms. |
Fangelsismálastofnun |
230 m.kr. |
|
Fangelsisplássum á Sogni fjölgað. |
Fangelsismálastofnun |
43 m.kr. |
Markmiðin hafa verið endurskoðuð í samræmi við áherslur stjórnvalda í málaflokknum frá því sem birt var í mælaborði árangurs í júní sl.
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 6.286,3 m.kr. og hækkar um 1.344,5 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 153 m.kr.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins er aukin tímabundið um 1.300 m.kr. vegna upphafs framkvæmda vegna byggingar nýs fangelsis að Stóra-Hrauni.
- Í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er fjárheimild málaflokksins aukin um 230 m.kr. vegna styrkingar á starfsemi Fangelsismálastofnunar.
- Fjárheimild málaflokksins er aukin um 43 m.kr. vegna fjölgunar rýma í afplánun á Sogni.
- Fjárheimild málaflokksins hækkar um 7 m.kr. vegna breytinga á greiðslufyrirkomulagi Microsoft-samninga.
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 203 m.kr. vegna tímabundinna verkefna sem falla niður.
- Málaflokkurinn er undanþeginn almennri aðhaldskröfu.
- Hlutdeild málaflokksins í sértækum aðhaldsráðstöfunum, 32,5 m.kr., vegna opinberra innkaupa og endurskoðunar jafnlaunavottunar er deilt hlutfallslega niður á verkefni og stofnanir málaflokksins.
Fjárlög fyrir árið 2026