12 Landbúnaður

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð atvinnuvegaráðherra. Það skiptist í þrjá málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2024–2026.

Landbúnaður

Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.

Breyting á ramma á milli áranna 2025 og 2026

Heildargjöld málefnasviðs 12 Landbúnaður árið 2026 eru áætluð 25.566,9 m.kr. og lækka um 474,7 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2025 eða sem svarar til 1,9%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 338,4 m.kr. milli ára eða sem svarar til 1,3%.

Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2026–2030. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun. Útfærsla aðhaldskröfu á málefnasviðinu felur bæði í sér sértækar og almennar ráðstafanir, auk þess sem unnið er að verkefnum hjá ráðuneytinu sem stuðla eiga að aukinni skilvirkni og bættri nýtingu opinbers fjár.

Hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2024 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

Landbúnaður

12.10 Stjórnun landbúnaðarmála

Starfsemi málaflokksins er í höndum atvinnuvegaráðuneytisins. Helstu verkefni sem falla undir málaflokkinn eru: stjórnun landbúnaðarmála og framkvæmd búvörusamninga, stjórnsýsla Matvælastofnunar, nýting auðlinda lands og vöktun og eftirlit stjórnvalda. Matvælastofnun sinnir ýmsum stjórnsýsluverkefnum, eftirliti, fræðslu og þjónustu við landbúnað, sjávarútveg, fiskeldi, fyrirtæki og neytendur í þeim tilgangi að stuðla að heilbrigði og velferð dýra, heilbrigði plantna og öryggi, heilnæmi og gæðum matvæla. Búvörusamningar móta að miklu leyti regluverk og stuðningsaðgerðir stjórnvalda í þágu landbúnaðar og hafa þar með talsverð áhrif á starfsskilyrði greinarinnar. Undir málaflokkinn falla m.a. búvörulög, nr. 99/1993, og búnaðarlög, nr. 70/1998. Í gildi eru matvælastefna og landbúnaðarstefna til ársins 2040.

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2026 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2025. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2026

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu

Markmið 1: Efla fæðuöryggi og standa vörð um heilbrigði plantna og dýra, velferð dýra og öryggi matvæla

Efling kornræktar til aukningar á innlendri framleiðslu á korni til fóðurs og til manneldis. Unnið verður að aðgerðum samkvæmt aðgerðaáætluninni Bleikir akrar.1 Á meðal aðgerða eru fjárfestingastuðningur, framleiðslustuðningur og þróunarverkefni.

Atvinnuvegaráðuneyti

Innan ramma

Innleiðing verndandi arfgerða gegn riðuveiki í íslenska sauðfjárstofninum.

Atvinnuvegaráðuneyti

10 m.kr.

Heildstæð stefnumótun um dýravelferð og heilbrigði og endurskoðun viðeigandi laga.

Atvinnuvegaráðuneyti

Innan ramma

Útboð á söfnunarkerfi dýraleifa.2

Atvinnuvegaráðuneyti

Innan ramma

Efling eftirlits með lagareldi með fjölgun stöðugilda hjá Matvælastofnun og hugbúnaðar- og tækjakaupum.3

Matvælastofnun

50 m.kr.

Markmið 2: Draga úr losun gróðurhúsalofttegunda vegna landbúnaðar og auka bindingu

Efling rannsókna og bætt þekking á loftslagsáhrifum íslensks landbúnaðar í samræmi við alþjóðlegar gæðakröfur um losunarbókhald.4

Atvinnuvegaráðuneyti

Innan ramma

Innleiðing aðgerða í landbúnaði skv. aðgerðaáætlun í loftslagsmálum.

Atvinnuvegaráðuneyti

10 m.kr.

Markmið 3: Skapa skilyrði til fjölbreyttari landbúnaðarframleiðslu með sjálfbærni og verðmætasköpun að leiðarljósi

Heildarendurskoðun á stuðningskerfi í landbúnaði.

Atvinnuvegaráðuneyti

Innan ramma

     

1. Á árinu 2026 er gert ráð fyrir 378 m.kr. framlagi til verkefnisins sem helst óbreytt frá fjárlögum 2025.
2. Að öllu óbreyttu verður útboð klárað fyrir lok árs 2025 og mun þá liggja fyrir nánari útfærsla verkefnisins.
3. Verkefnið styður við markmið 2 á málefnasviði 13.
3. Í gildi er samningur atvinnuvegaráðuneytisins og Landbúnaðarháskóla Íslands um rannsóknir, þróunarvinnu og sérhæfða ráðgjöf á sviði landbúnaðar- og matvælaframleiðslu. Fjárheimild samningsins er vistuð á málefnasviði 21.

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 23.215 m.kr. og hækkar um 45 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 724,3 m.kr.

Rekstrarframlög hækka um 148,9 m.kr. að frátöldum launa- og verðlagsbreytingum sem skýrist fyrst og fremst af uppfærðri tekjuáætlun Matvælastofnunar. Að öðru leyti er ekki um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins hækkar um 152,4 m.kr. í samræmi við uppfærða tekjuáætlun Matvælastofnunar.
  2. Fjárheimild málaflokksins hækkar um 50 m.kr. til að auka eftirlit Matvælastofnunar með sjókvíaeldi og tryggja fullnægjandi eftirlit með skráningum og innra eftirliti sjókvíaeldisfyrirtækja. Kemur það framlag til viðbótar 176 m.kr. framlagi sem veitt var í fjárlögum 2025 til verkefnisins. Tillagan er hluti af aðgerðum stjórnvalda til að bregðast við áskorunum í sjávarútvegi og fiskeldi. Verkefnið er í samræmi við markmið 1 í málaflokki 12.10.
  3. Gert er ráð fyrir 120 m.kr. framlagi á árinu 2026 til að mæta kostnaði við arfgerðargreiningu til hraðrar innleiðingar verndandi aðgerða í íslenska sauðfjárstofninn og nemur hækkunin til verkefnisins 10 m.kr. frá gildandi fjárlögum. Verkefnið er í samræmi við markmið 1 í málaflokki 12.10.
  4. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 125 m.kr. að raungildi í samræmi við ákvæði samninga um starfsskilyrði í nautgriparækt, sauðfjárrækt og garðyrkju og rammasamnings um almenn starfsskilyrði landbúnaðarins. Á móti þessari lækkun er gert ráð fyrir samtals 602 m.kr. hækkun til fyrrgreindra búvörusamninga í samræmi við verðlagsforsendur frumvarpsins.
  5. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 59 m.kr.

12.20 Rannsóknir, þróun og nýsköpun í landbúnaðarmálum

Starfsemi málaflokksins er í höndum atvinnuvegaráðuneytisins. Rannsóknir, þróun og nýsköpun í landbúnaðarmálum varða aðgerðir stjórnvalda til að stuðla að sjálfbærri hagnýtingu auðlinda, þróun nýrra afurða og aukinni verðmætasköpun matvælaframleiðslu.

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 880,4 m.kr. og lækkar um 23,8 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 23,1 m.kr.

Helstu breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins felast í 97,6 m.kr. flutningi af rekstrartilfærslum yfir á rekstrarframlög í tengslum við þjónustusamning um matvælarannsóknir. Að öðru leyti er ekki um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Samtals flytjast 27,9 m.kr. yfir á málaflokkinn með breyttri forgangsröðun innan ramma málefnasviða ráðuneytisins. Annars vegar flytjast 20 m.kr. af málefnasviði 13 til að mæta auknum kostnaði við ýmis landbúnaðartengd verkefni og hins vegar 7,9 m.kr. af málefnasviði 7 til að mæta áherslum á sviði matvælarannsókna.
  2. Niðurfelld tímabundin framlög nema samtals 11 m.kr.
  3. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 40,7 m.kr.

12.60 Stjórnsýsla matvælaráðuneytisins

Undir málaflokkinn heyrir stjórnsýsla matvælaráðuneytisins. Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 1.471,5 m.kr. og lækkar um 495,9 frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 65,7 m.kr.

Rekstrarframlög hækka um 308,7 m.kr. að frátöldum launa- og verðlagsbreytingum sem skýrist fyrst og fremst af fjárheimild sem millifærð er í tengslum við breytingar á Stjórnarráði Íslands í samræmi við forsetaúrskurð 5/2025. Að öðru leyti er ekki um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins hækkar um 293,9 m.kr. vegna flutnings fjárheimildar til aðalskrifstofu ráðuneytisins í tengslum við breytingar á Stjórnarráði Íslands í samræmi við forsetaúrskurð 5/2025.
  2. Samtals eru 40 m.kr. fluttar á málaflokkinn af málefnasviði 13. Um er að ræða breytta forgangsröðun milli málefnasviða ráðuneytisins til að bregðast við breyttri verkefnastöðu.
  3. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 25,1 m.kr.