14 Ferðaþjónusta

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð atvinnuvegaráðherra. Einn málaflokkur heyrir undir málefnasviðið sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2024–2026.

Ferðaþjónusta

Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.

Breyting á ramma á milli áranna 2025 og 2026

Heildargjöld málefnasviðs 14 Ferðaþjónusta árið 2026 eru áætluð 2.402,6 m.kr. og lækka um 30,5 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2025 eða sem svarar til 1,3%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum lækka útgjöldin um 14,7 m.kr. milli ára eða sem svarar til 0,6%.

Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2026–2030. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun. Útfærsla aðhaldskröfu á málefnasviðinu felur bæði í sér sértækar og almennar ráðstafanir auk þess sem unnið er að verkefnum hjá ráðuneytinu sem stuðla eiga að aukinni skilvirkni og bættri nýtingu opinbers fjár. Vakin er athygli á því að innan málefnasviðsins er búið að aðlaga fjárheimildir í tengslum við breytta verkaskiptingu ráðuneyta vegna breytinga á Stjórnarráðinu.

Hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2024 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

Ferðaþjónusta

14.10 Ferðaþjónusta

Starfsemi málaflokksins er í höndum atvinnuvegaráðuneytis, Ferðamálastofu, Flug­þróunar­sjóðs og Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða. Unnið er að forgangsröðun verkefna í aðgerða­áætlun með ferðamálastefnu til 2030 til að tryggja megi framkvæmd þeirra.

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2026 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2025. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2026

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu

Markmið 1: Aukin verðmætasköpun

Endurskoðun á regluverki, stjórnsýslu og fjármögnun innviða í ferðaþjónustu.1

Atvinnuvegaráðuneytið

Innan ramma

Endurskoðun á fyrirkomulagi gjaldtöku í ferðaþjónustu..

Atvinnuvegaráðuneytið

Innan ramma

Gagnaöflun og rannsóknir í ferðaþjónustu.2

Atvinnuvegaráðuneytið

Innan ramma

Beint millilandaflug til Akureyrar og Egilsstaða með styrkingu á Flugþróunarsjóði.

Ferðamálastofa

Innan ramma

Markmið 2: Jákvæðari upplifun heimamanna og ferðamanna

Fjármögnun og rekstur áfangastaða og endurskoðun á Framkvæmdasjóði ferðamannastaða.3

Atvinnuvegaráðuneytið, Ferðamálastofa

Innan ramma

Endurskoðun á regluverki tengdu öryggi ferðamanna.

Atvinnuvegaráðuneytið,

Innan ramma

Endurskoðun á gæða- og umhverfisvottun fyrir ferðaþjónustu.

Atvinnuvegaráðuneytið

Innan ramma

Markmið 3: Aukin umhverfisleg sjálfbærni í ferðaþjónustu

Þróun verkfærakistu til að meta þolmörk og bregðast við álagi á áfangastöðum ferðamanna.

Atvinnuvegaráðuneytið, Ferðamálastofa

Innan ramma

Álagsstýring á áfangastöðum ferðamanna.

Atvinnuvegaráðuneytið, Ferðamálastofa

Innan ramma

1 Meðal annars aðgerðir B.2, B.3, C.2, C.9 og C.11 í aðgerðaáætlun með ferðamálastefnu til 2030.
2 Meðal annars aðgerðir A.1, A.4, A.5, A.6, A.7 og A.8 í aðgerðaáætlun með ferðamálastefnu til 2030.
3 Meðal annars aðgerðir C.3, C.4 og C.5 í aðgerðaáætlun með ferðamálastefnu til 2030.

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 2.402,6 m.kr. og lækkar um 30,5 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 15,8 m.kr.

Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 28 m.kr. Að öðru leyti er ekki um miklar breytingar á fjárheimildum málaflokksins að ræða.