15 Orkumál

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð ráðherra umhverfis-, orku- og loftslagsmála. Einn málaflokkur heyrir undir málefnasviðið sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2024–2026.

Orkumál

Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum, sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.

Breyting á ramma á milli áranna 2025 og 2026

Heildargjöld málefnasviðs 15 Orkumál árið 2026 eru áætluð 11.586,6 m.kr. og lækka um 2.325,0 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2025 eða sem svarar til 16,8%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum lækka útgjöldin um 2.234,1 m.kr. milli ára eða sem svarar til 16,2%.

Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2026–2030. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun.

Hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2024 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

Orkumál

15.10 Stjórnun og þróun orkumála

Starfsemi málaflokksins er í höndum Umhverfis- og orkustofnunar sem heldur utan um verkefni Loftslags- og orkusjóðs og auk þess heyra niðurgreiðslur á húshitun og jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku undir málaflokkinn.

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2026 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2025. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2026

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu

Markmið 1: Tryggt orkuöryggi fyrir alla landsmenn

Söfnun og miðlun upplýsinga um raforkuframboð og bætt yfirsýn og eftirlit með tiltæku varaafli raforku í landinu. Aukin úrræði til að tryggja orkuöryggi..

Umhverfis- og orkustofnun

Innan ramma

Aukið eftirlit og stýring vegna öryggisbirgða olíu.

Umhverfis- og orkustofnun

Innan ramma

Nýir orkukostir og bætt orkunýtni, s.s. vindorka á landi og á hafi, greining á möguleikum smávirkjana, varmadælna, sólar- og sjávarfallaorku og nýting glatvarma og græns varaafls.

Umhverfis- og orkustofnun

Innan ramma

Átaksverkefni um leit og nýtingu jarðhita.

Loftslags- og orkusjóður

Innan ramma

Græn orkuöflun. Virkir notendur framleiða fyrir eigin notkun og selja umframorku. Stuðningur við ör- og smávirkjanir og verkefni sem stuðla að bættri orkunýtni.

Loftslags- og orkusjóður

Innan ramma

Stuðningur við garðyrkjubændur varðandi innleiðingu á LED-ljósum í gróðurhúsum og öðrum orkusparandi búnaði

Loftslags- og orkusjóður

Innan ramma

Markmið 2: Aukið hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa í orkubúskap landsins

Beinn stuðningur við kaup á ökutækjum er ganga fyrir hreinni orku og uppbygging innviða.

Loftslags- og orkusjóður

Innan ramma

Greining á stöðu innviða fyrir orkuskipti og uppfærð orkuskipta- og innviðaáætlun.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti

Innan ramma

Gerð orkuöflunarstefnu.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti

Innan ramma

Markmið 3: Jöfnun orkukostnaðar á landsvísu

Full jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku á landsbyggðinni.

Umhverfis- og orkustofnun

Innan ramma

Aukin neytendavernd og samkeppni á raforkumarkaði.

Umhverfis- og orkustofnun ofl.

Innan ramma

 

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 11.586,6 m.kr. og lækkar um 2.325 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 90,9 m.kr.

Nokkur breyting er á hagrænni skiptingu á málaflokknum. Þannig eru 225 m.kr. færðar af rekstrarframlögum og rekstrartilfærslum á fjármagnstilfærslur hjá Loftslags- og orkusjóði. Þetta eru fjárveitingar sem áður tilheyrðu Loftslagssjóði.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Framlög til Loftslags- og orkusjóðs lækka um 2.500 m.kr. í samræmi við fjármálaáætlun. Um er að ræða styrki til orkuskipta sem tóku við af kerfi skattaívilnana árið 2024. Í upphafi var gert ráð fyrir að til verkefnisins yrði varið 7.500 m.kr. árlega árin 2024 og 2025 en síðan lækkaði upphæðin í 5.000 m.kr. árin 2026 til 2030.
  2. Framlög til Loftslags- og orkusjóðs lækka um 150 m.kr. þegar þriggja ára tímabundnu átaki í jarðhitaleit lýkur en áframhaldandi stuðningur er við leit og nýtingu jarðvarma.
  3. Framlög til Loftslags- og orkusjóðs lækka um 75 m.kr. þegar tímabundnu átaki vegna grænna fjárfestinga lýkur.
  4. Framlög til niðurgreiðslna á húshitun hækka tímabundið um 400 m.kr. til að mæta halla á liðnum.