19 Fjölmiðlun

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra. Undir það heyrir einn málaflokkur sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2024–2026.

Fjölmiðlun

Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.

Breyting á ramma á milli áranna 2025 og 2026

Heildargjöld málefnasviðs 19 Fjölmiðlun árið 2026 eru áætluð 7.471,5 m.kr. og aukast um 322,3 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2025 eða sem svarar til 4,5%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 326,8 m.kr. milli ára eða sem svarar til 4,6%.

Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2026–2030. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun.

Hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2024 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

Fjölmiðlun

19.10 Fjölmiðlun

Starfsemi málaflokksins er í höndum fjölmiðlanefndar, Ríkisútvarpsins ohf. og einka­rekinna fjölmiðla.

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2026 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2025. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2026

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu

Markmið 1: Stuðningur við einkarekna fjölmiðla efli ritstjórnir fjölmiðla

Innleiða fjölmiðlastefnu.

Menningar- , nýsköpunar- og háskólaráðuneyti

Innan ramma

Styrkja stöðu einkarekinna fjölmiðla, sbr. endurskoðað stuðningskerfi og aðgerðir í fjölmiðlastefnu.

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti

Innan ramma

Styrkja sérstaklega stöðu svæðisbundinna fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins.

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti

Innan ramma

Markmið 2: Sjálfstætt Ríkisútvarp sem nýtur trausts og sinnir vandaðri og aðgengilegri fjölmiðlaþjónustu í almannaþágu

Áhersla á leikið íslenskt efni til að auka framboð og gæði á leiknu íslensku sjónvarpsefni skv. þjónustusamningi.

RÚV

Innan ramma

Unnið verði að því að nýta gervigreind til uppbyggingar á máltæknilausnum og sjálfvirkri textun í rauntíma á íslensku tal- og myndefni.

RÚV

Innan ramma

Unnið verði að breyttu fyrirkomulagi starfsemi Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði.

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti og RÚV

Innan ramma

Markmið 3: Aukin stafræn færni, netöryggi og miðlalæsi allra aldurshópa, með áherslu á börn og ungmenni

Samanburðarrannsóknir á stafrænni færni, netöryggi og miðlalæsi.

Fjölmiðlanefnd

Innan ramma

Miðlalæsis- og netöryggisfræðsla í grunnskólum til að efla stafræna færni.

Fjölmiðlanefnd

Innan ramma

 

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 7.471,5 m.kr. og hækkar um 322,3 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 4,5 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 20 m.kr. til samræmis við tekjuáætlun af útvarpsgjaldi.
  2. Aðhaldskrafa málaflokksins nemur 8,1 m.kr. sem er skipt hlutfallslega á stofnanir og verkefni málaflokksins.