20 Framhaldsskólastig

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð mennta- og barnamálaráðherra. Það skiptist í fjóra málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2024–2026.

Framhaldsskólastig

Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.

Breyting á ramma á milli áranna 2025 og 2026

Heildargjöld málefnasviðs 20 Framhaldsskólastig árið 2026 eru áætluð 53.311,4 m.kr. og aukast um 950,1 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2025 eða sem svarar til 1,9%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 4.192,7 m.kr. milli ára eða sem svarar til 8,5%.

Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2026–2030. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun.

Aðhaldskrafa er á málefnasviðið. Hún er útfærð á málaflokk 20.10 Framhaldsskólar, bæði á stofnanir og safnliði málaflokksins.

Hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2024 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

Framhaldsskólastig

20.10 Framhaldsskólar

Ábyrgð á málaflokknum liggur hjá mennta- og barnamálaráðuneyti, bæði er varðar rekstur og fagleg málefni framhaldsskólastigsins. Löggjöf um málaflokkinn tekur til opinberra framhaldsskóla og annarra framhaldsskóla sem hlotið hafa viðurkenningu til kennslu á framhaldsskólastigi. Framhaldsskólarnir eru um 40 og bjóða ýmist upp á almennt eða sérhæft nám, þar af bjóða 30 upp á fjölbreytt heildstætt nám samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla. Saga skólanna og sérhæfing er ólík, þeir eru misjafnir að stærð og gerð og staðsettir víðs vegar um landið. Undir málaflokkinn falla einnig fagleg málefni, s.s. starfsþróun kennara, námskrárgerð og innleiðing og eftirfylgni með aðalnámskrá.

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2026 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2025. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2026

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu

Markmið 1: Hækka hlutfall nemenda sem ljúka starfs- og tækninámi og jafna kynjadreifingu

Halda áfram undirbúningi og framkvæmdum við stækkun fimm framhaldsskóla (FB, VMA, MÍ, FS, FNV) með það markmið að mæta samfélagslegum, faglegum og fjárhagslegum áskorunum og fjölga nemendum í starfs- og tækninámi.

Mennta- og barnamálaráðuneyti

Innan ramma

Einfalda og skýra leiðir fullorðinna inn í starfsnám og til að fá raunfærni sína metna.

Mennta- og barnamálaráðuneyti

Innan ramma

Vinna að jafnari kynjadreifingu í starfsnámi í samstarfi við fulltrúa atvinnulífsins og starfsnámsskóla.

Mennta- og barnamálaráðuneyti, starfsnámsskólar

Innan ramma

Markmið 2: Fjölga nemendum sem ljúka námi úr framhaldsskóla

Efla, samræma og þróa námsframboð á framhaldsskólastigi svo að það mæti betur fjölbreyttum þörfum nemenda.

Mennta- og barnamálaráðuneyti

Innan ramma

Uppbygging heildstæðrar skólaþjónustu á framhaldsskólastigi með áherslu á þjónustu, ráðgjöf og stuðning við framhaldsskóla.

Mennta- og barnamálaráðuneyti og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Innan ramma

Menntastefna 2030. Innleiðing á 2. áfanga menntastefnunnar – aðgerðaáætlun 2025–2027 með tilliti til forgangsröðunar.

Mennta- og barnamálaráðuneyti

Innan ramma

Markmið 3: Auka gæði menntunar i framhaldsskólum

Innleiða endurskoðuð gæðaviðmið um skólastarf í framhaldsskólum til notkunar í innra mati skólanna.

Mennta- og barnamálaráðuneyti

Innan ramma

Framkvæma ytra mat sem byggir á nýjum gæðaviðmiðum og breyttu fyrirkomulagi sem felur í sér aukna viðveru á vettvangi.

Mennta- og barnamálaráðuneyti

Innan ramma

Þróun gagnagrunns fyrir námsbrautir framhaldsskóla með það að markmiði að tryggja yfirsýn yfir námsframboð og gefa skólum kost á því að þróa og samræma námsbrautir á miðlægum vettvangi.

Mennta- og barnamálaráðuneyti

Innan ramma

     

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 51.380,5 m.kr. og hækkar um 950,1 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 3.184,3 m.kr.

Við vinnslu frumvarps til fjárlaga 2026 var stuðst við sömu nemendatölur og voru í fjárlögum 2025. Fyrir 2. umræðu fjárlaga 2026 verða gerðar breytingar á nemendafjöldatölum og fjárveitingum til skóla þar sem þá liggja fyrir betri upplýsingar um skólavist nemenda í fullu námi enda þá nokkuð liðið á skólaárið.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er fjárheimild málaflokksins aukin um 150 m.kr. vegna fjölgunar nemenda í verknámi, sbr. markmið nr. 1.
  2. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 1.500 m.kr. vegna mikillar fjölgunar nemenda haustið 2025 þar sem um óvenju stóran árgang er að ræða. Þessum fjármunum verður útdeilt í 2. umræðu fjárlaga 2026 þegar betri upplýsingar um fjölda reiknaðra nemenda í fullu námi liggja fyrir.
  3. Fjárfestingarheimild málaflokksins lækkar um 500 m.kr. vegna flutnings fjárheimilda á milli ára en fjárheimildin kemur aftur árið 2027. Þessi frestun hefur ekki áhrif á framkvæmdir árið 2026.
  4. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 57,2 m.kr. vegna lækkunar á varasjóði málaflokksins.
  5. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 20,6 m.kr. vegna hækkunar sértekna sem hækka um sömu fjárhæð.
  6. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 777,3 m.kr. og lækkar fjárheimild málaflokksins sem því nemur. Skiptist aðhaldið annars vegar upp á 500 m.kr. vegna hliðrunar fjárfestingarheimilda og hins vegar niður á milli stofnana og safnliða málaflokksins upp á 277,3 m.kr.

20.20 Tónlistarfræðsla

Um málaflokkinn gilda lög um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla, nr. 75/1985, og taka þau til tónlistarskóla sem reknir eru af sveitarfélögum og annarra sem njóta styrks samkvæmt lögunum. Mennta- og barnamálaráðuneytið fer með faglega umsjón og eftirlit með tónlistarfræðslu, s.s. yfirstjórn námskrár- og námsefnisgerðar. Þá skipar ráðuneytið samstarfsnefnd tónlistarfræðslunnar til að fjalla í heild um starfsemi tónlistarskóla, samstarf skólanna og/eða rekstraraðila þeirra sem og samstarf tónlistarskóla við grunnskóla og framhaldsskóla.

Í annarri aðgerðaáætlun menntastefnu til 2030 er bent á að engin lög séu til um listmenntun í landinu, hvorki heildstæð né í einstökum listgreinum. Stjórnvöld vinna nú að undirbúningi rammalöggjafar um listfræðslu, þar sem m.a. verður kveðið á um tilgang listmennta, þ.m.t. tónlistarmenntunar.

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 812,1 m.kr. og tekur ekki breytingum frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 35,8 m.kr.

20.30 Vinnustaðanám og styrkir

Tilgangur löggjafar um vinnustaðanámssjóð er að auðvelda nemendum að ljúka tilskildu námi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla, koma til móts við kostnað fyrirtækja og stofnana af vinnustaðanámi og auðvelda fyrirtækjum og stofnunum að taka nemendur á náms- eða starfsþjálfunarsamning.

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 392,6 m.kr. og tekur ekki breytingum frá gildandi fjárlögum. Engar almennar launa- og verðlagsbreytingar koma inn á málaflokkinn.

20.40 Jöfnun námskostnaðar

Undir málaflokkinn falla lög um námsstyrki, nr. 79/2003. Námsstyrkir eru veittir til jöfnunar á fjárhagslegum aðstöðumun nemenda í framhaldsskólum að því leyti sem búseta veldur þeim misþungri fjárhagsbyrði eða efnaleysi torveldar þeim nám.

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 726,2 m.kr. og tekur ekki breytingum frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 22,5 m.kr.