21 Háskólastig
Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra. Það skiptist í þrjá málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2024–2026.
- Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun.
- Markmið og mælikvarða sem sett hafa verið á málefnasviðinu má sjá á sérstöku mælaborði.
Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum
Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.
Heildargjöld málefnasviðs 21 Háskólastig árið 2026 eru áætluð 73.170,4 m.kr. og aukast um 992 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2025 eða sem svarar til 1,4%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 3.716,4 m.kr. milli ára eða sem svarar til 5,4%.
Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2026–2030. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun.
Aðhald er útfært á háskóla og yfirstjórn málefnasviðsins, s.s. tilgreint er undir hverjum málaflokki.
Hagræn skipting útgjalda
Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2024 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.
21.10 Háskólar og rannsóknarstarfsemi
Starfsemi málaflokksins er í höndum fjögurra opinberra og þriggja einkarekinna háskóla, auk rannsóknastofnunarinnar Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum. Undir málaflokkinn fellur einnig Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands og starfsemi rannsókna-, fræða- og þekkingarsetra á landsbyggðinni auk Gæðamats íslenskra háskóla. Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2026 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2025. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
|
Helstu verkefni 2026 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu |
|
Markmið 1: Háskólar í þágu samfélags og atvinnuþróunar um land allt |
||
|
Unnin verði heildarstefna um háskólastarfsemi á Íslandi, m.a. til undirbúnings mögulegri endurskoðun lagaumhverfis íslenskra háskóla og til eflingar háskóla- og vísindastarfi um land allt.1,3 |
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti |
Innan ramma |
|
Unnin verði úttekt á námsbrautum til kennsluréttinda á vegum íslenskra háskóla. |
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti |
Innan ramma |
|
Stuðningur við sameiginlegar námsleiðir og prófgráður, innan lands sem á alþjóðavettvangi, m.a. í gegnum Evrópunet háskóla.1,3 |
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti |
Innan ramma |
|
Efling örnáms og raunfærnimats til að auka sveigjanleika sí- og endurmenntunar háskólamenntaðra og aðgengi ólíkra þjóðfélagshópa að færniþróun. |
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti |
Innan ramma |
|
Nemendur í háskólum tileinki sér gagnrýna hugsun og öðlist færni til að bregðast við upplýsingaóreiðu.1 |
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti |
Innan ramma |
|
Markmið 2: Framúrskarandi aðstæður fyrir námsmenn |
||
|
Áhersla á aðgengilega háskóla, aukna fjölbreytni og inngildingu nemenda og starfsfólks í háskólasamfélaginu, aðgerðir til úrbóta á kynjahalla, fjölgun ungra karla í námi sem og greiðara aðgengi fatlaðra. Unnið að fjölgun nemenda á sviðum með mönnunarþörf, s.s. innan heilbrigðis- og STEM-greina. |
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti |
Innan ramma |
|
Uppbygging húss Heilbrigðisvísindasviðs HÍ með áherslu á betri innviði og umgjörð rannsókna og náms.1 |
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti |
Innan ramma |
|
Uppbygging húsnæðis við Háskólann á Hólum, í þágu fiskeldis- og rannsóknaraðstöðu, auk aðstöðu fyrir námsbraut í hestafræði.1 |
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti |
Innan ramma |
|
Bygging jarðræktarmiðstöðvar við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri.1 |
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti og atvinnuvegaráðuneyti |
100 m.kr. |
|
Uppbygging húsnæðis fyrir Listaháskóla Íslands. |
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti |
Innan ramma |
|
Markmið 3: Aukin gæði og samkeppnishæfni í alþjóðlegum samanburði |
||
|
Eftirfylgni með innleiðingu árangurstengdrar fjármögnunar sem tekur tillit til árangurs í kennslu, rannsókna og annarrar starfsemi í þágu samfélags, auk birtingatölfræði, brautskráninga doktorsnema og árangurs af erlendri styrkjasókn.1,3 |
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti |
Innan ramma |
|
Efling háskólastigs með aðgerðum til stuðnings sameiningum og samvinnu háskóla, m.a. í gegnum háskólasamstæðu, sameiginlega stoðþjónustu og alþjóðasamstarf.1,2,3 |
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti |
Innan ramma |
|
Kannaður verði fýsileiki sameiginlegra siðanefnda háskóla, m.a. m.t.t. gervigreindar.1 |
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti |
Innan ramma |
|
Breytingar á gjaldtökuheimildum opinberra háskóla til að heimila innheimtu skólagjalda af nemendum utan EES-svæðis, til samræmis við önnur Norðurlönd. |
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti |
Innan ramma |
1 Verkefnið styður jafnframt við markmið 1 í málaflokki 7.10.
2 Verkefnið styður jafnframt við markmið 2 í málaflokki 7.10.
3 Verkefnið styður jafnframt við markmið 3 í málaflokki 7.10.
Markmiðin hafa verið endurskoðuð í samræmi við áherslur stjórnvalda í málaflokknum frá því sem birt var í mælaborði árangurs í júní sl.
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 65.904,2 m.kr. og hækkar um 537,8 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 2.627,6 m.kr.
Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins er aukin um 100 m.kr. vegna byggingar jarðræktarmiðstöðvar á Hvanneyri, sbr. markmið nr. 2.
- Fjárheimild málaflokksins er aukin um 250 m.kr. til eflingar á málaflokki háskóla.
- Fjárheimild málaflokksins er aukin um 400 m.kr. vegna breyttra forsendna um fjölgun nemenda.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 493,1 m.kr. og vegur þar þyngst 145,9 m.kr. sértækt aðhald á varasjóð málaflokksins en því sem eftir er verður dreift hlutfallslega á stofnanir málaflokksins.
21.30 Stuðningur við námsmenn
Undir málaflokkinn fellur Menntasjóður námsmanna.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2026 og hvaða markmið þau styðja við. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2025. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
|
Helstu verkefni 2026 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu |
|
Markmið 1: Að tryggja námsmönnum sem falla undir lögin tækifæri til náms, án tillits til efnahags og aðstæðna |
||
|
Endurskoðun laga um Menntasjóð námsmanna ásamt úthlutunarreglum, byggð á mati á framkvæmd nýrra laga sem tóku gildi árið 2020.1 |
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti |
Innan ramma |
|
Markmið 2: Jöfn og gagnsæ dreifing á framlagi ríkisins til nemenda og bætt námsframvinda nemenda í háskólum |
||
|
Markmið 3: Að styðja við öflugt menntakerfi sem er forsenda framfara |
||
1 Verkefnið styður jafnframt við markmið 2 og 3.
Markmiðin hafa verið endurskoðuð í samræmi við áherslur stjórnvalda í málaflokknum frá því sem birt var í mælaborði árangurs í júní sl.
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 4.976,8 m.kr. og hækkar um 263,6 m.kr. frá gildandi fjárlögum. Málaflokkurinn tekur ekki almennum launa- og verðlagsbreytingum.
Ekki er um breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins er aukin um 366,3 m.kr. vegna uppfærðrar áætlunar Menntasjóðs námsmanna á styrkjum til námsmanna vegna framfærslu barna.
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 94,7 m.kr. vegna uppfærðra áætlana um fjárþörf í málaflokknum.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 10,8 m.kr. með hlutfallslegri skiptingu niður á stofnanir innan málaflokksins.
21.40 Stjórnsýsla menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis
Undir málaflokkinn fellur starfsemi menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis en einnig falla málefni Rannsóknamiðstöðvar Íslands (Rannís) hér undir. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 2.289,4 m.kr. og hækkar um 190,6 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 96,8 m.kr.
Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Í samræmi við skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands er fjárheimild málaflokksins aukin um 154,9 m.kr. í samræmi við forsetaúrskurð um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta.
- Í samræmi við ákvörðun ríkisstjórnar er gert ráð fyrir að veita 50 m.kr. framlag til að efla málaflokk gervigreindar hjá ráðuneytinu.
- Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 35,2 m.kr. en þar vegur þyngst aðhald á aðalskrifstofu ráðuneytisins upp á 30,3 m.kr. með sértæku aðhaldi á aðalskrifstofu. Aðhald á Rannsóknarmiðstöð Íslands er 4,9 m.kr.
Fjárlög fyrir árið 2026