23 Sjúkrahúsþjónusta
Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð heilbrigðisráðherra. Það skiptist í þrjá málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2024–2026.
- Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun.
- Markmið og mælikvarða sem sett hafa verið á málefnasviðinu má sjá á sérstöku mælaborði.
Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum
Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.
Heildargjöld málefnasviðs 23 Sjúkrahúsþjónusta árið 2026 eru áætluð 192.293,9 m.kr. og aukast um 11.910,3 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2025 eða sem svarar til 6,8%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 17.971 m.kr. milli ára eða sem svarar til 10,3%.
Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2026–2030. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun.
Aðhaldsmarkmið málefnasviðsins felur m.a. í sér sértækar afkomubætandi aðhaldsráðstafanir vegna aukinnar hagræðingar í opinberum innkaupum og rannsóknaþjónustu, endurskoðunar jafnlaunavottunar og niðurfellingar á varasjóðum málaflokka. Jafnframt er sértæk aðhaldskrafa á málaflokk 23.1 Sérhæfð sjúkrahúsþjónusta þar sem unnið verður úr tillögum fagráðs um forgangsröðun í heilbrigðiskerfinu og þær útfærðar innan heilbrigðiskerfisins fyrir 2. umræðu fjárlaga. Málaflokkar málefnasviðsins bera ekki almenna aðhaldskröfu.
Hagræn skipting útgjalda
Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2024 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.
23.10 Sérhæfð sjúkrahúsþjónusta
Starfsemi málaflokksins er í höndum heilbrigðisráðuneytis, Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri. Hlutverk Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri er að veita heilbrigðisþjónustu sem á hverjum tíma samræmist skyldu slíks sjúkrahúss, m.a. sérfræðiþjónustu í nær öllum viðurkenndum greinum læknisfræði, hjúkrunarfræði og eftir atvikum öðrum greinum heilbrigðisvísinda sem stundaðar eru hér á landi, með aðgengi að stoðdeildum og rannsóknardeildum.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2026 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2025. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
|
Helstu verkefni 2026 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu |
|
Markmið 1: Efla mönnun í heilbrigðisþjónustu |
||
|
Mannauðsstefna í heilbrigðisþjónustu til 2030 liggur fyrir. Aðgerðaáætlun er unnin fyrir eitt ár í senn. |
Heilbrigðisráðuneyti |
Innan ramma. |
|
Áfram unnið að lifandi mælaborði um greiningu á mönnun heilbrigðisþjónustunnar. |
Heilbrigðisráðuneyti |
Innan ramma |
|
Unnið að forsendum mönnunarlíkana í heilbrigðisþjónustu þannig að stofnanir geti með samræmdum hætti innleitt mönnunarviðmið miðað við þörf og getu. |
Heilbrigðisráðuneyti |
Innan ramma |
|
Áfram unnið að eflingu sérnáms heilbrigðisstétta hérlendis til að eiga betri möguleika á að standa undir mönnun til framtíðar. |
Heilbrigðisráðuneyti |
Innan ramma |
|
Markmið 2: Stytta biðtíma eftir nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu |
||
|
Vinna að því að koma á fót samræmdum biðlistum fyrir sem flesta þætti þjónustu innan sérgreinasjúkrahúsa. |
Embætti landlæknis, Sjúkratryggingar, LSH og Sjúkrahúsið á Akureyri |
Innan ramma |
|
Áframhaldandi vinna við útvistun þeirra verkefna sem leysa má á öðrum þjónustustigum en sérgreinasjúkrahúsum og auka þannig getu sérgreinasjúkrahúsa til að anna þeim verkefnum sem þau ein geta leyst. |
Heilbrigðisráðuneyti, LSH, Sjúkrahúsið á Akureyri, heilbrigðisstofnanir og SÍ |
Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 168.002,1 m.kr. og hækkar um 11.266,1 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 5.463,7 m.kr.
Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins hækkar um 1.500 m.kr. til ýmissa áherslumála ríkisstjórnarinnar, m.a. til eflingar meðferðarúrræða við fíknivanda, styrkingar móttöku þolenda heimilisofbeldis, innleiðingar NAT-skimunar (e. Nucleic Acid Testing) hjá Blóðbankanum, upptöku litningarannsókna án inngrips á Landspítala, NIPT (e. Non Invasive Prenatal Testing) o.fl.
- Reiknaður raunvöxtur í veittri þjónustu innan málaflokksins vegna fjölgunar og öldrunar þjóðarinnar er 2.195,2 m.kr.
- Fjárheimild málaflokksins er hækkuð um 5.562 m.kr. í samræmi við framkvæmdaáætlun Nýs Landspítala.
- Fjárheimild málaflokksins hækkar um 2.500 m.kr. vegna byggingar nýrrar legudeildar við Sjúkrahúsið á Akureyri.
- Fjárheimild málaflokksins hækkar um 600 m.kr. vegna reksturs átta nýrra öryggisvistunarrýma á geðsviði á Kleppi. Unnið er að breytingum á húsnæðinu vegna þessara nýju úrræða sem verða tekin í notkun árið 2026.
- Fjárheimild málaflokksins hækkar um 200 m.kr. vegna hækkunar á DRG-potti til að tryggja að Sjúkratryggingar geti greitt fyrir umframframleiðslu samkvæmt samningi um þjónustutengda fjármögnun við bæði Landspítala og Sjúkrahúsið á Akureyri.
- Millifærðar eru á málaflokkinn 258,1 m.kr. vegna niðurfellinga þjónustusamninga Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri við Sjúkratryggingar. Fjárveitingin er færð í framleiðslugrunn stofnananna.
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 950 m.kr. vegna tímabundinna verkefna sem falla niður, átaks í lýðheilsutengdum aðgerðum og brúarverkefnis á bráðamóttöku Landspítala.
- Millifærðar eru 225 m.kr. á málefnasvið 25 Hjúkrunar- og endurhæfingarþjónusta til meðferðarúrræða við fíknivanda.
- Útgjaldaheimild málaflokksins lækkar um 166,5 m.kr. vegna samsvarandi breytinga á sértekjum.
- Fjárheimild málaflokksins hækkar um 142,6 m.kr. vegna breytts greiðslufyrirkomulags Microsoft-samninga.
- Fjárheimild málaflokksins hækkar um 530 m.kr. vegna hliðrunar á byggingarferli legudeildar á Sjúkrahúsinu á Akureyri en framkvæmdum var frestað um eitt ár.
- Sértæk aðhaldskrafa á málaflokkinn nemur 1.961,3 m.kr. Þar af eru 200 m.kr. í rannsóknaþjónustu (betri yfirsýn yfir nýtingu tækja og mannafla), 534,8 m.kr. vegna opinberra innkaupa sem skiptist hlutfallslega milli Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri og 1.000 m.kr. vegna stofnunar fagráðs um forgangsröðun í heilbrigðiskerfinu en tillögur frá því verða útfærðar nánar í 2. umræðu fjárlaga. Einnig er varasjóður málaflokksins að upphæð 201,4 m.kr. felldur niður annað árið í röð.
23.20 Almenn sjúkrahúsþjónusta
Starfsemi málaflokksins er í höndum heilbrigðisstofnana í heilbrigðisumdæmum. Þess má geta að í lögum um heilbrigðisþjónustu heitir almenn sjúkrahúsþjónusta nú annars stigs þjónusta. Landspítalinn og Sjúkrahúsið á Akureyri veita annars stigs sjúkrahúsþjónustu fyrir íbúa sem búa í heilbrigðisumdæmum höfuðborgarsvæðisins og á Norðausturlandi en allar fjárveitingar til þessara tveggja stofnana eru undir málaflokki 23.1.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2026 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2025. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
|
Helstu verkefni 2026 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu |
|
Markmið 1: Efla aðgang sjúklinga að skilgreindri sérhæfðri heilbrigðisþjónustu á heilbrigðisstofnunum |
||
|
Unnið verði úr tillögum starfshóps um rétta þjónustu á réttum stað m.t.t. verkaskiptingar milli sérgreinasjúkrahúsa, sérgreinalækna og þjónustu heilsugæslu og tryggja samvinnu þeirra á milli þannig að þjónustan verði samfelld og skilvirk. |
Heilbrigðisráðuneyti |
Innan ramma |
|
Unnið verði úr mati á stöðu stafrænna mála í heilbrigðiskerfinu og mótaðar tillögur sem stuðla að samfellu í þjónustu og bættri upplifun notenda. |
Heilbrigðisráðuneyti |
Innan ramma |
|
Markmið 2: Sjúklingar komist í liðskiptaaðgerðir innan ásættanlegs biðtíma miðað við viðmið embættis landlæknis |
||
|
Stytting biðar eftir liðskiptaaðgerð með breyttu verklagi í samvinnu þjónustuveitenda. |
Heilbrigðisráðuneyti |
Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 19.985,1 m.kr. og hækkar um 558,6 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 758 m.kr.
Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er fjárheimild málaflokksins aukin um 1.100 m.kr. vegna styrkingar á rekstrargrunni heilbrigðisstofnana til að ná fram áherslumálum í heilbrigðisþjónustu.
- Millifærðar eru 836,7 m.kr. á málaflokk 25.10 vegna samræmingar á fjárheimildum hjúkrunarrýma sem rekin eru af heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni og hjúkrunarrýma sem greidd eru skv. samningum við Sjúkratryggingar Íslands.
- Reiknaður raunvöxtur í veittri þjónustu innan málaflokksins vegna fjölgunar og öldrunar þjóðarinnar er 283,8 m.kr.
- Útgjaldaheimild málaflokksins hækkar um 187 m.kr. vegna samsvarandi breytinga á sértekjum.
- Sérstakar aðhaldsráðstafanir eru 119,6 m.kr. Þar af er aukin hagræðing í opinberum innkaupum 94,7 m.kr., endurskoðun jafnlaunavottunar 3,4 m.kr. og þá er varasjóður málaflokks að upphæð 21,5 m.kr. felldur tímabundið niður annað árið í röð.
- Millifærðar eru 200 m.kr. á málaflokk 23.10 til að styrkja rekstur Sjúkrahússins á Akureyri.
- Fjárheimild málaflokksins hækkar um 86,6 m.kr. vegna breytts greiðslufyrirkomulags vegna Microsoft-samninga.
23.30 Erlend sjúkrahúsþjónusta
Framkvæmd málaflokksins er í höndum Sjúkratrygginga Íslands sem sjá um samningagerð við erlend sjúkrahús ásamt því að hafa milligöngu um greiðslur fyrir heilbrigðisþjónustu milli landa þar sem milliríkjasamningar gilda. Til erlendrar sjúkrahúsþjónustu telst heilbrigðisþjónusta sem veitt er erlendis og greitt er fyrir af Sjúkratryggingum í samræmi við reglugerðir um þjónustuna. Um er að ræða nauðsynlega heilbrigðisþjónustu sem ekki er í boði á Íslandi, nauðsynlega heilbrigðisþjónustu sem er ekki veitt á Íslandi innan tímamarka og heilbrigðisþjónustu yfir landamæri innan EES-lands (landamæratilskipun). Að auki heyrir sjúkrakostnaður vegna veikinda og slysa erlendis undir málefnasviðið.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2026 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2025. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
|
Helstu verkefni 2026 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu |
|
Markmið 1: Aðgerðir sem áður voru gerðar erlendis á grundvelli biðtímareglugerðar eru framkvæmdar hérlendis |
||
|
Stytta biðlista með fjölgun aðgerða sem framkvæmdar eru hér á landi, bæði á vegum opinberra aðila og einkaaðila. Áætlun verði gerð um flutning aðgerða til landsins m.t.t. nýtingar bjarga hérlendis, þ.m.t. fjármagns sem nú er nýtt til þjónustu erlendis. |
Heilbrigðisráðuneyti og Sjúkratryggingar Íslands, sjúkrahús og heilbrigðisstofnanir |
Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 4.306,7 m.kr. og hækkar um 85,6 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa-, gengis- og verðlagsbreytingum en þær lækka um 161 m.kr.
Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helsta breyting á fjárheimildum málaflokksins er eftirtalin:
- Fjárheimild til málaflokksins hækkar um 85,6 m.kr. vegna raunvaxtar, fjölgunar íbúa og öldrunar þjóðarinnar.
Fjárlög fyrir árið 2026