24 Heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð heilbrigðisráðherra. Það skiptist í fjóra málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2024–2026.

Heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa

Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.

Breyting á ramma á milli áranna 2025 og 2026

Heildargjöld málefnasviðs 24 Heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa árið 2026 eru áætluð 102.779,1 m.kr. og aukast um 2.012,2 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2025, eða sem svarar til 2,1%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 5.711,6 m.kr. milli ára, eða sem svarar til 5,9%.

Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2026–2030. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun.

Aðhaldsmarkmið málefnasviðsins felur m.a. í sér sértækar afkomubætandi aðhalds­ráðstafanir vegna aukinnar hagræðingar í opinberum innkaupum og niðurfellingar á varasjóðum málaflokka. Jafnframt er sértæk aðhaldskrafa á málaflokk 24.10 Heilsugæsla vegna aukinnar greiðsluþátttöku sjúkratryggðra sem verður útfærð innan heilbrigðiskerfisins fyrir 2. umræðu fjárlaga. Málaflokkar 24.10 Heilsugæsla og 24.20 Sérfræðiþjónusta og hjúkrun bera ekki almenna aðhaldskröfu og er almennt aðhald því aðeins útfært á málaflokka 24.30 Sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og talþjálfun og 24.40 Sjúkraflutningar.

Hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2024 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

Heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa

24.10 Heilsugæsla

Heilsugæslan er fyrsti viðkomustaður notenda heilbrigðisþjónustunnar en þar er veitt fyrsta stigs og eftir atvikum annars stigs heilbrigðisþjónusta. Starfsemi málaflokksins er í höndum heilbrigðisráðuneytis, Heilsugæslu höfuðborgar­svæð­isins, heilsugæslusviða heilbrigðis­stofnana heilbrigðisumdæma og einkarekinna heilsu­gæslu­stöðva.

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2026 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2025. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2026

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu

Markmið 1: Greitt aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu óháð aldri

Umbótaverkefni í geðheilbrigðisþjónustu barna. Bættir verkferlar, rafræn kerfi, betri nýting mannauðs og fleiri umbóta- og samstarfsverkefni.

Heilbrigðisráðuneyti og heilsugæslur um allt land

Innan ramma

Kortlagning fyrstu línu geðheilbrigðisþjónustu fullorðinna um landið og umbótavegferð í framhaldi.

Heilbrigðisráðuneyti og heilsugæslur um allt land

Innan ramma

Markmið 2: Að auka notkun skjólstæðinga á Heilsuveru

Flutningur á virkni og upplýsingum frá Heilsuveru yfir á Ísland.is ásamt nýjum viðbótum í þjónustu til að efla stafræna heilbrigðisþjónustu og auka aðgengi sjúklinga.

Heilbrigðisráðuneyti, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins og embætti landlæknis

Innan ramma

 

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 49.855,3 m.kr. og hækkar um 1.696,4 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 1.907,7 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Reiknaður raunvöxtur á veittri þjónustu innan málaflokksins er 830 m.kr.
  2. Fjárheimild málaflokksins hækkar um 2.300 m.kr. til ýmissa áherslumála ríkisstjórnarinnar. Þar af eru geðheilbrigðismál efld í samræmi við áætlun og geðheilbrigðisstefnu með áherslu á aukna þjónustu við börn, ásamt meðferðar­úrræðum við fíknivanda, Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar o.fl.
  3. Fjárheimild málaflokksins hækkar um 42,9 m.kr. vegna breytts greiðslufyrirkomulags vegna Microsoft-samninga.
  4. Millifærðar eru 420 m.kr. á málefnasvið 25 Hjúkrunar- og endurhæfingarþjónusta annars vegar til eflingar meðferðarúrræða við fíknivanda og hins vegar vegna aukinnar hjúkrunarþyngdar á hjúkrunarheimilum.
  5. Millifærðar eru 66 m.kr. á málefnasvið 23 Sjúkrahúsþjónusta vegna uppbyggingar sérhæfðrar geðþjónustu fyrir aldraða.
  6. Millifærðar eru 100 m.kr. á málaflokk 24.20 Sérfræðiþjónusta og hjúkrun vegna afnáms tilvísanakerfis barna til sérgreinalækna.
  7. Útgjaldaheimild málaflokksins hækkar um 26,1 m.kr. vegna samsvarandi breytinga á sértekjum.
  8. Sértæk aðhaldskrafa á málaflokkinn nemur 1.087,5 m.kr. Þar af eru 1.000 m.kr. vegna aukinnar greiðsluþátttöku sjúkratryggðra sem verður útfærð fyrir 2. umræðu fjárlaga, innan heilbrigðiskerfisins. Málaflokkurinn er ekki látinn bera almenna aðhaldskröfu.

24.20 Sérfræðiþjónusta og hjúkrun

Starfsemi málaflokksins er í höndum sjálfstætt starfandi sérgreinalækna, tannlækna, hjúkrunarfræðinga, sálfræðinga og ljósmæðra. Viðkomandi fagaðilar veita sérhæfða þjónustu utan sjúkrahúsa. Þjónustan er almennt veitt á grundvelli samninga Sjúkratrygginga Íslands og nær til rannsókna og meðferða.

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2026 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2025. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2026

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu

Markmið 1: Að efla þróun á starfsemi sérgreinalækna utan sjúkrahúsa

Unnið að þróun á þjónustu sérgreinalækna

í gegnum samstarfssamning SÍ og LÍ. Sérstaklega er horft til verklags í tengslum við þverfagleg teymi og forgangsröðun þjónustu m.t.t. þjónustuþarfar á landsbyggðinni.

Sjúkratryggingar Íslandsog Læknafélag Íslands

Innan ramma

Markmið 2: Greitt aðgengi að meðferðarúrræði vegna vímuefnavanda

Gerð nýrrar vímuefnastefnu.

Heilbrigðisráðuneyti

Innan ramma

Markmið 3: Efling fæðingarþjónustu sem miðar að eðlilegu fæðingarferli

Unnið skv. aðgerðaáætlun um barneignaþjónustu til ársins 2030 þar sem m.a. er lögð áhersla á að efla fæðingaþjónustu sem miðar að eðlilegu fæðingarferli innan og utan sjúkrahúsa.

Heilbrigðisráðuneyti og Sjúkratryggingar Íslands

Innan ramma

 

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 37.289,1 m.kr. og hækkar um 95,4 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 1.292,8 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 100 m.kr. til að afnema tilvísanir barna til sérgreinalækna.
  2. Fjárheimild málaflokksins hækkar um 648,5 m.kr. vegna raunvaxtar, fjölgunar íbúa og öldrunar þjóðarinnar.
  3. Millifærðar eru 258,1 m.kr. á málefnasvið 23 Sjúkrahúsþjónusta vegna niðurfellinga þjónustusamninga Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri við Sjúkratryggingar. Fjárveitingin er færð í framleiðslugrunn stofnana þar sem viðkomandi verk eru framkvæmd.
  4. Millifærðar eru 50 m.kr. á málefnasvið 26 Lyf og lækningavörur til að styrkja hjálpartækjalið Sjúkratrygginga.
  5. Millifærðar eru 45 m.kr. á málefnasvið 25 Hjúkrunar- og endurhæfingarþjónusta vegna aukinna þjónustukaupa af HL-stöðinni í Reykjavík.
  6. Fellt er niður tímabundið 300 m.kr. framlag vegna átaks í lýðheilsutengdum aðgerðum.

 

24.30 Sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og talþjálfun

Starfsemi málaflokksins er í höndum sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa og talmeinafræðinga sem veita þjónustu á grundvelli samninga við Sjúkratryggingar Íslands. Þá fellur þjónusta Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands einnig undir málaflokkinn en þar er sinnt bæði heyrnar- og talmeinaþjónustu.

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2026 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2025. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2026

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu

Markmið 1: Biðtími eftir þjónustu sjúkraþjálfara er < 30 dagar skv. miðlægum biðlista

Gerð og útfærsla miðlægrar biðlistalausnar eftir þjónustunni.

Sjúkratryggingar Íslands

Innan ramma

Afnám kröfu um tilvísanir lækna til sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara.

Heilbrigðisráðuneyti

Innan ramma

Markmið 2: Fjölga sjálfstætt starfandi talmeinafræðingum sem eru skráðir í miðlægan gagnagrunn1

Miðlæg biðlistalausn gerð aðgengileg sjálfstætt starfandi talmeinafræðingum.

Sjúkratryggingar Íslands

Innan ramma

Krafa um skráningu í rafræna sjúkraskrá sett inn í samning Sjúkratrygginga við sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga.

Sjúkratryggingar Íslands

Innan ramma

1 Orðalagi markmiðs breytt frá því sem birt var í mælaborði árangurs í júní sl.

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 10.521 m.kr. og hækkar um 171,6 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 330,4 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins hækkar um 174,6 m.kr. vegna raunvaxtar, fjölgunar íbúa og öldrunar þjóðarinnar.
  2. Fjárheimild málaflokksins hækkar um 1,5 m.kr. vegna breytts greiðslufyrirkomulags vegna Microsoft-samninga.
  3. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins ásamt sértækum aðhaldsaðgerðum nemur 7,4 m.kr.

24.40 Sjúkraflutningar

Til sjúkraflutninga teljast allir flutningar sjúkra og slasaðra utan sjúkrahúsa, á landi og í lofti. Þjónustan er veitt af rekstraraðilum sem starfa samkvæmt samningum við Sjúkratryggingar Íslands eða á vegum heilbrigðisstofnana. Undir þennan málaflokk falla einnig ferðir innan lands sem greiddar eru á grundvelli reglugerðar um ferðakostnað.

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2026 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2025. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2026

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu

Markmið 1: Skjótari viðbrögð við bráðaútköllum í dreifbýli

Innleiða verkefni skv. uppfærðri aðgerðaáætlun um bráðaþjónustu og sjúkraflutninga til ársins 2030.

Heilbrigðisráðuneyti, Landspítali og framkvæmdaraðilar sjúkraflutninga.

Innan ramma

Markmið 2: Betri faglegur stuðningur á vettvangi

Ljúka innleiðingu samræmdrar rafrænnar skráningar í flutningstækjum sjúkraflutninga.

Embætti landlæknis og framkvæmdaraðilar sjúkraflutninga

Innan ramma

Vinna áfram að því að flytja nám sjúkraflutningamanna inn í almenna skólakerfið.

Heilbrigðisráðuneyti, mennta- og barnamálaráðuneyti, embætti landlæknis og Sjúkrahúsið á Akureyri

Innan ramma

Tryggja faglegan sérhæfðan stuðning á vettvangi með fjarheilbrigðislausnum.

LSH, Neyðarlínan og framkvæmdaraðilar sjúkraflutninga

Innan ramma

 

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 5.113,7 m.kr. og hækkar um 48,8 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 168,5 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins hækkar um 85,6 m.kr. vegna raunvaxtar, fjölgunar íbúa og öldrunar þjóðarinnar.
  2. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins ásamt sértækum aðhaldsaðgerðum nemur 40,6 m.kr.