25 Hjúkrunar- og endurhæfingarþjónusta

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð heilbrigðisráðherra og félags- og húsnæðismálaráðherra. Það skiptist í tvo málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2024–2026.

Hjúkrunar- og endurhæfingarþjónusta

Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.

Breyting á ramma á milli áranna 2025 og 2026

Heildargjöld málefnasviðs 25 Hjúkrunar- og endurhæfingarþjónusta árið 2026 eru áætluð 93.213,9 m.kr. og aukast um 3.673,3 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2025, eða sem svarar til 4,2%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 5.652,3 m.kr. milli ára, eða sem svarar til 6,5%.

Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2026–2030. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun.

Aðhaldsmarkmið málefnasviðsins eru tvenns konar; almenn og sértæk. Málaflokkur 25.10 Hjúkrunar- og dvalarrými ber ekki almenna aðhaldskröfu en málaflokkur 25.20 Endurhæfingarþjónusta gerir það. Sértækar aðhaldsráðstafanir vegna aukinnar hagræðingar í opinberum innkaupum eru færðar á málaflokk 25.10. Einnig er sértæk aðhaldskrafa sem felur í sér að varasjóður málaflokks 25.20 er felldur tímabundið niður annað árið í röð.

Hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2024 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

Hjúkrunar- og endurhæfingarþjónusta

25.10 Hjúkrunar- og dvalarrými

Undir málaflokkinn fellur uppbygging og starfsemi hjúkrunar- og dvalarrýma á hjúkrunarheimilum og á heilbrigðisstofnunum, einnig dagdvöl, almenn og sérhæfð og Framkvæmdasjóður ­aldraðra. Starfsemi málaflokksins er í höndum sjálfseignarstofnana, sveitarfélaga, hlutafélaga og heil­brigðis­­stofnana. Málaflokkurinn heyrir undir tvö ráðuneyti; heilbrigðisráðuneytið sem hefur með höndum heilbrigðisþjónustu í hjúkrunarrýmum og sérhæfðum dagdvalarrýmum og félags- og húsnæðismálaráðuneytið sem sér um stjórn, skipulag og stefnumótun öldrunarmála fyrir landið í heild, annað en heilbrigðisþjónustu. Í því felst m.a. uppbygging hjúkrunarheimila, greiðsla húsaleigu og allur rekstur dvalarrýma og almennra dagdvala. Einnig hefur félags- og húsnæðismálaráðuneytið umsjón með Framkvæmdasjóði aldraðra.

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2026 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2025. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2026

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu

Markmið 1: Stytta biðtíma eftir hjúkrunarrýmum

Ljúka húsnæðisuppbyggingu fyrir 106 ný hjúkrunarrými.

Félags- og húsnæðismálaráðuneyti

536,3 m.kr. í húsaleigu. Fjárfesting innan ramma

Rekstur 106 nýrra hjúkrunarrýma.

Heilbrigðisráðuneyti

2.010 m.kr.

Gerð nýrra samninga við sveitarfélög um uppbyggingu hjúkrunarheimila.

Félags- og húsnæðismálaráðuneyti

Innan ramma

Markmið 2: Efling almennrar líknarmeðferðar á hjúkrunarheimilum

Unnin verði hæfniviðmið um líknarmeðferð fyrir starfsfólk hjúkrunarheimila.

Heilbrigðisráðuneyti og Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu

Innan ramma

Unnið verði að uppsetningu meðferðaráætlunar í rafrænni sjúkraskrá hjúkrunarheimila vegna deyjandi íbúa.

Heilbrigðisráðuneyti og embætti landlæknis

Innan ramma

Innleiddir verði gæðavísar sem sérstaklega eiga við um líknarmeðferð á hjúkrunarheimilum.

Heilbrigðisráðuneyti og embætti landlæknis

Innan ramma

Markmið 3: Heildræn yfirsýn yfir eftirspurn og þjónustuþarfir einstaklinga sem þurfa sérhæfða dagdvöl

Efla skráningu og gera biðlista eftir þjónustu sérhæfðra dagdvala miðlægan.

Heilbrigðisráðuneyti og embætti landlæknis

Innan ramma

Kortleggja þörf þjónustuþega fyrir sveigjanleika í dvalartíma.

Sjúkratryggingar Íslands

Innan ramma

 

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 84.520 m.kr. og hækkar um 3.777,5 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 1.604,5 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 2.010 m.kr. til reksturs nýrra hjúkrunarrýma, sbr. markmið nr. 1.
  2. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 536,3 m.kr. vegna leigu á fasteignum nýrra hjúkrunarrýma, sbr. markmið nr. 1.
  3. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 220 m.kr. vegna áætlaðrar aukinnar hjúkrunarþyngdar.
  4. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 836,7 m.kr. vegna samræmingar á fjárheimildum hjúkrunarrýma sem rekin eru af heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni og hjúkrunarrýma sem greidd eru skv. samningum við Sjúkratryggingar Íslands.
  5. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 180 m.kr. til þess að fjárveiting til Fram­kvæmdasjóðs aldraðra samsvari áætluðum tekjum af gjaldi í sjóðinn.
  6. Fjárheimild málaflokksins er hækkuð um 50,2 m.kr. vegna breytinga á rekstrartekjuáætlunum stofnana.
  7. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 55,7 m.kr. og er þar um að ræða sértæka hagræðingu í opinberum innkaupum. Málaflokkurinn er ekki látinn bera almenna aðhaldskröfu.

25.20 Endurhæfingarþjónusta

Undir málaflokkinn falla meðferðar- og endurhæfingarstofnanir sem hafa það að markmiði að styðja fólk til sjálfsbjargar, vinnufærni og sjálfstæðrar búsetu heima sem lengst. Starfsemi málaflokksins er í höndum einkarekinna heilbrigðisstofnana, m.a. á grundvelli samninga við Sjúkratryggingar Íslands (t.d. Reykjalundar, Heilsustofnunar Náttúrulækningafélags Íslands og SÁÁ).

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2026 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2025. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2026

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu

Markmið 1: Aukin samfella í endurhæfingarþjónustu

Stigskipting á þjónustu endurhæfingarúrræða í samræmi við skilgreiningu WHO.

Heilbrigðisráðuneyti

Innan ramma

Staðlað árangursmat í endurhæfingarþjónustu.

Heilbrigðisráðuneyti

Innan ramma

Markmið 2: Viðeigandi endurhæfingarþjónusta á réttum tíma

Samræmt mat á endurhæfingarþörfum á öllum stigum heilbrigðisþjónustu.

Heilbrigðisráðuneyti

Innan ramma

Skilgreining á snemmtækri endurhæfingarþjónustu.

Heilbrigðisráðuneyti

Innan ramma

 

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 8.693,9 m.kr. og lækkar um 104,2 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 374,5 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 480 m.kr. vegna tímabundinna framlaga til SÁÁ, Samhjálpar, Endurhæfingarstöðvar Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra, Parkinsonsamtakanna, Krýsuvíkursamtakanna og Ljóssins sem falla niður.
  2. Fjárheimild málaflokksins hækkar um 425 m.kr. vegna eflingar meðferðarúrræða við fíknivanda.
  3. Millifærðar eru 10 m.kr. af málaflokknum á málaflokk 23.10 til Landspítala vegna skaðaminnkandi aðgerða gegn ópíóíðafaraldri (útvegun Naloxone).
  4. Fjárheimild málaflokksins hækkar um 45 m.kr. vegna aukinna þjónustukaupa af HL-stöðinni í Reykjavík.
  5. Almenn aðhaldskrafa málaflokksins nemur 84,2 m.kr. Samningsupphæðir við endurhæfingarstofnanir lækka sem því nemur. Einnig er gerð sértæk aðhaldskrafa sem felur í sér að varasjóður málaflokks 25.20 að fjárhæð 7,5 m.kr. er felldur tímabundið niður annað árið í röð.