26 Lyf og lækningavörur
Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð heilbrigðisráðherra. Það skiptist í tvo málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2024–2026.
- Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun.
- Markmið og mælikvarða sem sett hafa verið á málefnasviðinu má sjá á sérstöku mælaborði.
Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum
Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.
Heildargjöld málefnasviðs 26 Lyf og lækningarvörur árið 2026 eru áætluð 45.269,9 m.kr. og aukast um 2.358,8 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2025, eða sem svarar til 5,3%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 1.122,5 m.kr. milli ára, eða sem svarar til 2,5%.
Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2026–2030. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun.
Aðhaldsmarkmið málefnasviðsins felur í sér sértækar afkomubætandi aðhaldsráðstafanir vegna leyfisskyldra lyfja þar sem horft verði til innkaupa frá Norðurlöndunum og árlegs verðendurmats ásamt aukinni hagræðingu í opinberum innkaupum á lið hjálpartækja.
Hagræn skipting útgjalda
Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2024 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.
26.10 Lyf
Lyfjamál fjalla m.a. um framleiðslu, dreifingu, notkun og sölu lyfja og skyldra vara. Starfsemi málaflokksins er í höndum heilbrigðisráðuneytis, Landspítala, Lyfjastofnunar og Sjúkratrygginga Íslands. Embætti landlæknis sér um eftirlit með lyfjaávísunum.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2026 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2025. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
|
Helstu verkefni 2026 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu |
|
Markmið 1: Minnka ofnotkun ávanabindandi lyfja |
||
|
Tilraunaverkefni um niðurtröppun ávanabindandi lyfja. Framhaldsverkefni með niðurtröppunarappi og lyfjafræðilegri þjónustu. |
Heilbrigðisráðuneyti |
Innan ramma. |
|
Hvati settur inn í greiðslulíkan heilsugæslunnar þannig að heilsugæslustöðvum sé umbunað fyrir að trappa niður notkun ávanabindandi lyfja. |
Heilbrigðisráðuneyti |
Innan ramma |
|
Markmið 2: Aukin gæði við lyfjaval og afhendingu |
||
|
Innleiða lyfjalista til að styðja markvisst og hagkvæmt val lyfja í heilsugæslu. |
Þróunarmiðstöð heilsugæslunnar |
Innan ramma |
|
Markmið 3: Lækkun lyfjakostnaðar |
||
|
Endurskoðun á útgáfu lyfjaskírteina. |
Heilbrigðisráðuneyti og Sjúkratryggingar |
Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 36.417,1 m.kr. og hækkar um 2.097 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa-, gengis- og verðlagsbreytingum en þær lækka um 1.265,8 m.kr.
Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins hækkar um 689,9 m.kr. vegna raunvaxtar, fjölgunar íbúa og öldrunar þjóðarinnar.
- Fjárheimild málaflokksins hækkar um 1.700 m.kr. til ýmissa áherslumála ríkisstjórnarinnar. Þar af verða 700 m.kr. nýttar til að styrkja þjónustu vegna almennra lyfja og lækningatækja og 1.000 m.kr. til að efla þjónustu vegna leyfisskyldra lyfja.
- Sértæk aðhaldskrafa á málaflokkinn nemur 300 m.kr. og kemur til lækkunar á framlagi til leyfisskyldra lyfja. Þar verður horft til innkaupa frá Norðurlöndunum og árlegs verðendurmats.
26.30 Hjálpartæki
Meginverkefni málaflokksins eru úthlutun hjálpartækja og styrkja sjúkratrygginga almannatrygginga til að afla nauðsynlegra hjálpartækja með það að markmiði að draga úr áhrifum fötlunar eða færniskerðingar á líf notenda. Starfsemi málaflokksins er í höndum Sjúkratrygginga Íslands sem sjá að mestu um úthlutun hjálpartækja.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2026 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2025. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
|
Helstu verkefni 2026 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu |
|
Markmið 1: Einfalda aðgang fólks að hjálpartækjum og tryggja jafnræði við notkun þeirra |
||
|
Endurskoðun reglugerðar um styrki vegna hjálpartækja. |
Heilbrigðisráðuneyti |
Innan ramma |
|
Endurskoðun mats á þörf fyrir hjálpartæki. |
Heilbrigðisráðuneyti |
Innan ramma |
|
Markmið 2: Bæta aðgang að heildstæðum upplýsingum um hjálpartæki |
||
|
Efla island.is sem upplýsingalind um hjálpartæki. |
Heilbrigðisráðuneyti |
Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 8.852,8 m.kr. og hækkar um 261,8 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 29,5 m.kr.
Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins er aukin um 163,2 m.kr. vegna fjölgunar íbúa og öldrunar þjóðarinnar.
- Fjárheimild málaflokksins er aukin um 100 m.kr. til að mæta veikleika á hjálpartækjalið Sjúkratrygginga.
- Sértæk aðhaldskrafa á málaflokkinn nemur 1,4 m.kr. vegna opinberra innkaupa.
Fjárlög fyrir árið 2026