28 Málefni aldraðra

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð félags- og húsnæðismálaráðherra. Það skiptist í þrjá málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2024–2026.

Málefni aldraðra

Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.

Breyting á ramma á milli áranna 2025 og 2026

 

Heildargjöld málefnasviðs 28 Málefni aldraðra árið 2026 eru áætluð 127.566,1 m.kr. og aukast um 855 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2025 eða sem svarar til 0,7%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 5.996,2 m.kr. milli ára eða sem svarar til 4,9%.

Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2026–2030. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun.

Hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2024 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

Málefni aldraðra

28.10 Bætur skv. lögum um almannatryggingar, lífeyrir aldraðra

Starfsemi málaflokksins er í höndum Tryggingastofnunar sem annast framkvæmd með greiðslum samkvæmt lögum um almannatryggingar en það eru greiðslur ellilífeyris og vasapenings ellilífeyrisþega. Eins og fram kemur í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarflokkanna verður almennt frítekjumark ellilífeyris hækkað í 60.000 kr. á kjörtímabilinu. Gert er ráð fyrir að hækkunin verði í þremur skrefum, fyrst frá 1. janúar 2026. Einnig verður aldursviðbót á lífeyri öryrkja látin gilda áfram með ellilífeyri að uppfylltum nánari skilyrðum.

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 115.704,5 m.kr. og hækkar um 574 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 4.663,7 m.kr.

Ekki eru breytingar á hagrænni skiptingu.

Helstu verkefni 2026

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu

Markmið 1: Hækkaðar heildartekjur ellilífeyrisþega

Tryggja að lífeyrisgreiðslur fylgi þróun launavísitölu, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag.

Félags- og húsnæðismálaráðuneyti

Innan ramma1

Markmið 2: Aukin atvinnuþátttaka aldraðra

Hækka almennt frítekjumark ellilífeyrisþega.2

Félags- og húsnæðismálaráðuneyti

1.000 m.kr.

1 Breytt framkvæmd hefur áhrif á launa- og verðlagsbreytingar í málaflokknum.

2 Verkefnið styður jafnframt við markmið 1.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Gert er ráð fyrir 1 ma.kr. útgjaldaaukningu vegna 5.000 kr. hækkunar á mánaðarlegu almennu frítekjumarki ellilífeyris. Gert er ráð fyrir að það hækki frá 1. janúar 2026.
  2. Gert er ráð fyrir 300 m.kr. aukningu til að greiða öryrkjum aldursviðbót með ellilífeyri.
  3. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 4 ma.kr. vegna aukinna tekna ellilífeyrisþega.
  4. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 3,3 ma.kr. vegna kerfislægs vaxtar sem ætlað er að mæta áætlaðri fjölgun lífeyrisþega.
  5. Greiðslur almannatrygginga eru undanþegnar aðhaldskröfu.

28.20 Bætur skv. lögum um félagslega aðstoð, öldrun

Starfsemi málaflokksins er í höndum Tryggingastofnunar sem ber ábyrgð á framkvæmd greiðslna málaflokksins. Samkvæmt lögum um félagslega aðstoð er heimilt að greiða ýmiss konar styrki og uppbætur eins og heimilisuppbót, uppbót á lífeyri vegna tiltekins kostnaðar lífeyrisþega og uppbætur og styrki vegna bifreiðakaupa og reksturs bifreiða.

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 11.247 m.kr. og hækkar um 266 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 453,3 m.kr.

Ekki eru breytingar á hagrænni skiptingu.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 266 m.kr. vegna kerfislægs vaxtar sem ætlað er að mæta áætlaðri fjölgun lífeyrisþega.
  2. Greiðslur almannatrygginga eru undanþegnar aðhaldskröfu.

28.30 Þjónusta við aldraða og aðrar greiðslur, ótaldar

Undir þjónustu við aldraða og aðrar greiðslur, ótaldar, falla greiðslur samkvæmt lögum um eftirlaun til aldraðra, nr. 113/1994, og greiðslur samkvæmt lögum um félagslegan viðbótarstuðning við aldraða, nr. 74/2020. Með síðarnefndu lögunum hefur verið komið til móts við þann hóp aldraðra sem ekki hefur áunnið sér full réttindi í almannatryggingum. Líkt og gildir um málaflokk 28.20 ber Tryggingastofnun ábyrgð á framkvæmd greiðslna sem falla undir málaflokkinn.

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2026 er áætluð 614,6 m.kr. og hækkar um 15 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 24,2 m.kr.

Ekki eru breytingar á hagrænni skiptingu.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Gert er ráð fyrir 40 m.kr. útgjaldaaukningu vegna hækkunar á mánaðarlegu almennu frítekjumarki félagslegs viðbótarstuðnings fyrir aldraða. Gert er ráð fyrir að það hækki frá 1. janúar 2026 og verði jafnhátt frítekjumarki ellilífeyris.
  2. Niðurfellt er tímabundið 25 m.kr. framlag vegna hækkunar á almennu frítekjumarki á árinu 2025.
  3. Greiðslur almannatrygginga eru undanþegnar aðhaldskröfu.